Morgunblaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 20
Í nóvember fyrir tæpu ári þótti dóttur Gylfa, Gerði Gröndal, faðir sinn óvenju gulleitur í andliti. Hún er læknir og dreif hann í blóðprufu. Í framhaldinu uppgötvaðist að Gylfi var með krabbamein í brisi. Guli liturinn stafaði af galli í blóð- inu. „Þetta var gífurlegt áfall, alveg ólýsanlegt, og ekki bara fyrir mig heldur alla fjölskylduna. Ég hef allt- af verið hraustur um dagana og varð óskaplega hissa þegar ég fékk þenn- an úrskurð. Mér hefur bókstaflega ekki orðið misdægurt,“ segir Gylfi. Strax var ljóst að krabbameinið yrði ekki læknað. Hins vegar mátti reyna að hefta útbreiðslu þess. Gylfi fór í viðamikla skurðaðgerð, þar sem hann var opnaður frá brjósti og niður fyrir kvið, en æxlið reyndist of stórt til að hægt væri að fjarlægja það. Það lá upp við slagæð og að skera það burtu var hættulegt. Ógleði, máttleysi og kulvísi Gylfi var í framhaldinu settur á krabbameinslyf. „Gallinn við lyfin er að aukaverkanirnar eru yfirgengi- legar, ógleðin er slík og máttleysið. Þessu fylgir líka kulvísi og margt annað. Fyrstu krabbameinslyfin sem ég fékk ætluðu mig lifandi að drepa,“ segir hann. Seinna fékk Gylfi önnur lyf sem hann þoldi betur. Auk þess fór hann í geislameðferð. Margir þola slíka meðferð illa en hún fór ágætlega í Gylfa. Með geisluninni tókst að minnka æxlið, ekki það mikið þó að það væri skurðtækt. Lyfin sem hann er á í dag halda krabbamein- inu í skefjum. „Lyfin geta ekki læknað meinið en þau gefa mér tíma,“ segir hann. Hann hefur um þriðjungskraft miðað við áður og segist ekki kvalinn. Verkjalyf nái að mestu að slá á kvalirnar. Gylfi er á fótum í dag og er ánægður með það. „Ég var rúm- liggjandi meira og minna í þrjá mánuði. Það var mjög erfitt. Þegar ég var kominn á fætur leitaði ég í heitara loftslag og fór til Kanarí- eyja. Þar gat ég gengið úti við og aukið mér enn frekar kraft. Til að fá styrk þarf maður nefnilega að hreyfa sig. Á lyfjunum verður mér kalt og því er erfitt að ganga úti á Íslandi,“ segir hann. Stríðsfrumur og hryðjuverkasýklar Gylfi talar vel um krabbameins- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss. Hann segir þjónustuna góða, starfsfólkið elskulegt og viðmótið gott. Í dag er hann heima en fer hálfsmánaðarlega á göngudeildina og fær þau lyf sem ekki eru á töflu- formi. Þeim er dælt í hann í æð. Í einu ljóðanna lýsir hann því hvernig hann liggi í fjóra tíma í senn og lyfin flæði um æðarnar. Hann sér fyrir sér hvernig hans eigin stríðsfrumur sæki að hryðjuverkasýklum sem hertekið hafa brisið, öllum að óvör- um. „Þetta er barátta og ég gerði mér snemma ljóst að hugarfarið yrði að vera í lagi. Þetta er ekki einungis líkamleg barátta, hið andlega hefur einnig mikið að segja. Ég tók strax þá ákvörðun að vera ekki sýknt og heilagt að tala um veikindin, til að fá þau ekki á heilann og þreyta alla í kringum mig. Ég ákvað að yrkja mig frekar frá þessu öllu saman. Menn gera það gjarnan, að skrifa sig frá hlutunum. Það er kannski kjarninn í ljóðlistinni. Þá er fólk að sigrast á einhverju,“ segir Gylfi og bætir hugsandi við að ljóðin hafi meira og minna komið af sjálfu sér. „Það var einkennileg upplifun. Ég hef fengist við ljóðagerð síðan ég var ungur og þetta getur verið mjög erfitt – eilífar endurtekningar og út- strikanir. Í þessu tilviki var þetta auðveldara og kom bókstaflega af sjálfu sér,“ segir hann. Hræðsla við að tala um krabbamein Gylfi kinkar kolli þegar hann er spurður hvort skrifin hafi hjálpað honum. Um það sé engum blöðum að fletta. Hann bætir hálffeiminn við að hann hafi ekki ætlast til að ljóðaflokkurinn yrði gefinn út, þetta hafi fyrst og fremst verið hans leið til að glíma við krabbameinið. „Þegar menn lásu þetta yfir vildu þeir hins vegar endilega gefa það út og ég lét á endanum undan. Ég er alveg búinn að sætta mig við það núna að þetta komi fyrir sjónir al- mennings. Það er ábyggilega for- vitnilegt og gott fyrir þá sem eru með krabbamein að lesa hugleiðing- ar og viðbrögð annars sem glímir við það sama. Einnig gæti það verið athyglisvert fyrir aðstandendur. Svona veikindi leggjast kannski enn þyngra á fjölskyldu og vini en þann sem er veikur. Áfallið fyrir þau er gífurlegt. Það er af sem áður var að ekki megi tala um sjúkdóm sem þennan. Mér finnst að um þetta þurfi að ræða og ekki fara í felur með það. Þetta er staðreynd sem þýðir ekki að flýja,“ segir Gylfi. Hann bendir á að fólk sé almennt hrætt við að tala um krabbamein. Margir verði vand- ræðalegir þegar þeir heyri fréttir sem þessar og viti ekki hvað þeir eigi að segja. „Það er svo sem ósköp eðlilegt. Menn vita hreinlega ekki hvernig þeir eiga að bregðast við,“ segir hann. Þegar allt verður dýrmætt Aðspurður segir Gylfi að dauðinn hafi áður verið honum fjarlægur. Hann hafi í raun ekki velt fyrir sér þeim möguleika að hann gæti fengið banvænan sjúkdóm. „Að berjast við svona veikindi er alveg ný reynsla,“ segir hann, þagn- ar örstutta stund en bætir síðan hlæjandi við: „Ég er nú svo illa að mér að þegar ég greindist vissi ég naumast hvað bris var!“ Gylfi segir krabbameinið hafa breytt hugsunarhættinum. „Þegar maður liggur svona á sjúkrahúsi og getur ekki einu sinni farið fram úr, byrjar maður óneitanlega að hugsa. Ég fór að hugsa um lífið og dauðann og það er einmitt það sem ljóðabók- in fjallar um, hugleiðingar um bar- áttu við banvænan sjúkdóm. Lífið gjörbreytist og maður fer að meta það öðruvísi. Allt verður svo dýr- mætt, sem maður sá ekki áður. Þá var það svo hversdagslegt. Núna þegar á að taka það allt af mér kann ég að meta það og veit hvers virði það er. Það er ánægjuleg lífs- reynsla. Ég iðrast þess bara að hafa ekki notið lífsins betur þegar ég var frískur,“ segir hann. Hann bætir við að það að stíga fyrstu skrefin úr rúminu eftir leguna, hafi verið eins og að byrja að lifa á nýjan leik. Það hafi orðið honum umhugsunarefni. „Þótt ég nái ekki fullri heilsu, kemst ég samt þetta. Þó þetta mikil heilsa er mér mikils virði,“ segir hann. Með kveðskap gegn Gylfi Gröndal hefur stundað ritstörf allt sitt líf. Nýjasta ljóðabók hans, Eitt vor enn, fjallar á opinskáan hátt um baráttu hans við ólæknandi krabbamein. Bókin er ólík öllu því sem Gylfi hefur áð- ur skrifað, enda tilefnið óvenjulegt og bókin byggð á reynslu sem hann átti ekki von á að verða fyrir. Sigríður Víðis Jónsdóttir ræddi við Gylfa um krabbameinið og heyrði í leiðinni af banda- rískum her heima í túni og baráttu á Alþýðublaðinu. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Gylfi Gröndal í stofunni heima hjá sér. Hann greindist fyrir tæpu ári með ólæknandi krabbamein í brisi og byrjaði fljótlega að semja ljóð um reynslu sína. ’Ég tók strax þáákvörðun að vera ekki sýknt og heilagt að tala um veik- indin, til að fá þau ekki á heilann og þreyta alla í kringum mig. Ég ákvað að yrkja mig frekar frá þessu öllu saman.‘ ’En móðir mín hafðimiklar áhyggjur. Hún sagði að skáld væru alltaf svo óhamingjusöm!‘ 20 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.