Morgunblaðið - 09.10.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 25
Meðan svokallaðBaugsmál tröllríðurumræðu og athyglihérlendis heldurheimurinn áfram að
snúast án þess við gefum því gaum.
En snúningur hnattarins er ekki
það eina sem við leiðum ekki hugann
að varðandi veröldina. Á tímum
stanslauss upplýsingaáreitis er það
sannara en nokkru sinni að það sem
við höfum ekki beinlínis fyrir aug-
unum gæti allt eins hreint ekki verið
til.
Þar sem ég var erlendis í viku-
tíma um daginn missti ég þannig al-
gerlega af fjölmiðlastórviðrinu hér á
Fróni um Baugssamsteypuna, hina
og þessa ein-
staklinga og
samskipti
þeirra. Ég sá
aðra fjölmiðla og
fékk aðra mynd
af veröldinni.
Hún var m.a. svona: Fátækir Afr-
íkubúar horfðu nýlega forviða á það
að fjöldi manna í auðugasta ríki ver-
aldar mátti um stund búa við sömu
aðstæður og þeir. Við vandræðum
þeirra var brugðist með fjárveitingu
upp á 200 milljarða Bandaríkjadala
til aðstoðar og endurreisnar. Það
eru meira en tólf þúsund milljarðar
íslenskra króna.
Þótt segja megi ýmislegt jákvætt
um framlög velmegunarþjóða til
hjálparstarfs í Afríku liggur það
samt fyrir að viðlíka fjármunir og
nauðsynlegt þótti að veita til upp-
byggingar í Louisiana eru ofboðs-
legir í samanburði við það sem ríki
heims verja til þróunaraðstoðar við
þann milljarð fólks sem býr í Afríku.
Eins og við náðum að frétta hér
heima, áður en Baugsveðrið skall á,
þá höfðu menn í áraraðir hunsað
viðvaranir og upplýsingar um yfir-
vofandi hættu af flóðum í New Or-
leans. Margir telja hið sama eiga við
um ástandið í Afríku.
Allir sem vilji vita það viti nefni-
lega að aðeins sé tímaspursmál hve-
nær ástandið í Afríku verði svo
slæmt að allt sem sést hefur hingað
til blikni í samanburði.
Hamfarir í Afríku? Er það ekki
hversdagslegt ástand, spyrja menn.
Hefur það ekki verið eins í fleiri ald-
ir? Svarið er því miður nei. Ástandið
hefur nefnilega snarversnað frá
árinu 1985, þegar hungrið í Afríku
náði í fyrsta sinn athygli allrar
heimsbyggðarinnar.
Á síðustu áratugum hafa 11 millj-
ónir afrískra barna misst annað for-
eldri sitt eða bæði af völdum alnæm-
is, 25 milljónir manna eru HIV-smit-
aðar og yfir tvær milljónir deyja
árlega af völdum sjúkdómsins.
Á síðasta fjórðungi síðustu aldar
dró enn sundur með Afríku og vel-
ferðarríkjunum í fjárhagslegu tilliti.
Að Suður-Afríku slepptri námu
heildartekjur allra hinna 48 þjóða
sunnanverðrar Afríku árið 1997
þannig sömu upphæð og heildar-
tekjur Belgíu.
Sérfræðingar í málefnum álf-
unnar stóru hafa því notað tækifær-
ið í kjölfar fellibylsins Katrínar til að
hvetja Vesturlönd til að huga nú í
tæka tíð að þeim upplýsingum sem
fyrir liggja um aðsteðjandi vanda
Afríku í líki viðvarandi hung-
ursneyðar og síversnandi AIDS-
faraldurs.
En viðbrögðin láta á sér standa.
Kannski eru menn uppteknir af öðr-
um málum.
Eins og Íslendingar. – Hver sendi
hverjum tölvupóst?
Baugsmál og
aðrar hamfarir
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Karlar, konur og ofbeldi
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Málþing í tilefni af norrænu rannsóknaverkefni
á Grand Hótel Hvammi fimmtudaginn 13. október.
Dagskrá
Kl. 8:45-9:00 Morgunverður
Kl. 9:00-9:15 Ingólfur V. Gíslason, sviðsstjóri Jafnréttisstofu:
Norræna rannsóknaverkefnið Kyn og ofbeldi.
Kl. 9:15-10:15 Peter Edward Gill, prófessor við Háskólann
í Gävle í Svíþjóð:
„Gender Experiences and the Scripting of
Androgynous Violence.“
Kl. 10:15-10:30 Kaffihlé.
Kl. 10:30-11:00 Jónína Einarsdóttir, lektor í mannfræði við
Háskóla Íslands:
„Það mælti mín móðir ...“ Ofbeldi gegn börnum á
Íslandi í ljósi sögunnar.
Kl. 11:00-11:30 Freydís Jóna Freysteinsdóttir, lektor
í félagsráððgjöf við Háskóla Íslands:
Börn sem hafa orðið vitni að ofbeldi milli foreldra:
Niðurstöður íslenskrar rannsóknar.
Kl. 11:30-12:00 Guðrún Agnarsdóttir, læknir:
Kynferðisofbeldi - meinvættur ungra kvenna?
Fundarstjóri er Hans Kristján Guðmundsson,
forstöðumaður Rannís.
Vegna aukinna umsvifa í
blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið að ráða
fólk í blaðburð víða á
höfuðborgarsvæðinnu
sem fyrst.
Vinsamlega hafið
samband í síma 569-
1122 eða sendið
tölvupóst á
netfangið
bladberi@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
mbl.is
smáauglýsingar