Morgunblaðið - 09.10.2005, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Aðgerðagreining við vinnslu á dilka-kjöti“ nefnist lokaverkefni JóhannsH.K. Líndal til meistaraprófs viðverkfræðideild Háskóla Íslands.
Næstkomandi þriðjudag mun hann halda fyr-
irlestur um verkefnið að Keldnaholti í fræðslu-
erindaröð sem Landbúnaðarháskóli Íslands
stendur fyrir.
„Verkefnið er í raun og veru tvískipt, í fyrsta
lagi fjallar það um kjötmat og hvort það er
hægt að beita tölfræðilegum aðferðum við að
flokka skrokka og síðari hlutinn fjallar um að-
gerðagreiningu í kjötvinnslu sem skiptist í best-
un, hermun og upplýsingatækni,“ segir Jóhann.
„Kjötmat á dilkaskrokkum er enn að mestu
huglægt og framkvæmt af kjötmatsmönnum.
Það hafa verið þróaðar flokkunaraðferðir sem
hugsanlega gætu leyst kjötmatsmenn af hólmi.
Í fyrri hluta verkefnisins skoða ég hvernig ein
slík aðferð flokkar miðað við núverandi kerfi en
einnig eru skoðaðir aðrir möguleikar eins og
fækkun flokka í núverandi kerfi. Í seinni hluta
verkefnisins er sýnt hvernig þrjár mismunandi
aðferðir iðnaðarverkfræðinnar, þ.e. hermun,
upplýsingatækni og bestun, geta nýst sem
hjálpartæki við ákvörðunartöku. Hermilíkan
var gert til að skoða ferli kjötvinnslu við út-
flutning á ferskum lærum og hryggjum. Upp-
lýsingatækni felst í því að gera forrit sem
hjálpar við samanburð á sölu afurða erlendis og
innanlands. Bestuninni var ætlað að greina
hvernig ætti að ráðstafa því kjöti sem stendur
til boða, miðað við tíma sem tekur að vinna
hverja og eina vöru, sem takmarkast við þann
mannskap og tímamörk sem hann hefur til að
vinna vörurnar.“
Jóhann segir að hann hafi ákveðið að taka
þetta efni fyrir í lokaverkefninu vegna mikillar
umræðu um kjötmatið meðal bænda og að hon-
um hafi langað til að finna aðferð við kjötmat
með tölvu.
Heildarniðurstaðan úr verkefninu um kjöt-
matið er að sögn Jóhanns sú að kerfið eins og
það er núna sé flóknara en það þurfi að vera.
„Það kæmi betur út ef flokkunum yrði fækkað,
þeir þurfa ekki að vera fleiri en fimm. Nið-
urstaðan úr seinni hlutanum er sú að hermunin
gefur ágætis raun og bestunin á að vera hjálp-
artæki við ákvarðanatöku.
Rauði þráðurinn í gegnum þetta verkefni var
að nýta aðferðir í iðnaðarverkfræði til að leysa
vandamálin í verkefninu sem voru í sambandi
við kjötmat og kjötvinnslu.“
Fræðsluerindi Jóhanns hefst kl. 14.30, þriðju-
daginn 11. október, í fundarsal Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Keldnaholti, 3. hæð. Þetta er
fyrsta erindið í fræðsluerindaröð sem Lbhí
stendur fyrir á hálfsmánaðarfresti í vetur.
Fræðsluerindi | Meistaraverkefni í verkfræði um kjötmat og kjötvinnslu
Jóhann Haukur Krist-
inn Líndal er frá Holta-
stöðum í Langadal í
Austur-Húnavatns-
sýslu en foreldrar hans
eru bændur þar á bæ.
Jóhann er 27 ára og býr
nú í Reykjavík.
Hann lauk framhalds-
skólanámi frá Fjöl-
brautaskóla Norður-
lands vestra á
Sauðárkróki, Bs-gráðu í verkfræði frá Háskóla
Íslands árið 2003 og mun nú í október útskrif-
ast með mastersgráðu í verkfræði einnig frá
Háskóla Íslands.
Aðgerðagreining við vinnslu á dilkakjöti
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það þarf félagslega færni til að koma
eigin hagsmunum á framfæri. Það sem
virðist ósköp hversdagslegt er nið-
urstaða vandlegs útreiknings. Þegar þú
gerir þér grein fyrir þessu, muntu fá
áhuga á að leggja meiri hugsun í þín
„hversdagslegu“ viðbrögð.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hvöt þín til óhófs spennist sífellt á móti
fjárhagslegri visku. En heppnin er með
þér í dag, og hlutir sem þú hefur áhuga
á, munu verða þér mjög dýrmætir ef þú
heldur þeim nógu lengi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert algerlega inn á við, eins og þú sér
að herða upp hugann fyrir stóran leik. Í
næstu viku verðurðu fyrir áskorunum í
vinnunni. Og með því að hvíla þig í dag
verðurðu í fínu formi til að takast á við
þessar áskoranir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Stjörnurnar hvetja þig til að klára heil-
langan lista af verkefnum. Þú ert þannig
stemmd/ur að þú ert alveg til í það. Settu
bara upp brosið og þú munt hlæja þig í
gegnum verkið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allur sá persónulegi þroski sem þú hefur
verið að vinna í að undanförnu, sjálfs-
hjálparbókalesturinn og hæfileika-
uppfóstrunin, mun borga sig. Árangur
erfiðisins kemur í ljós á einu augnabliki –
augnabliki sem þú gengur inn í herbergi
og hefur mikil áhrif.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Jafnvel þótt þú sért bara að taka til
heima hjá þér, notarðu samt sköp-
unarkraftinn til þess. Fylltu augun af
nýjum myndum, eyrun af tónlist og
hjartað af ljóðlist.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Merkið þitt er þekkt fyrir glöggskyggni,
og þú munt nýta þér það til að vita hvað
þú vilt. Þú gerir þér grein fyrir því um
leið og það verður á vegi þínum. Þú skalt
bregðast snögglega við til að fá hreppa
verðlaunin þín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú stillir skap þitt inn á lund erfiðasta
fjölskyldumeðlimsins – hvílíkt afrek. Þér
verður hrósað fyrir það, kannski ekki
núna, frekar yfir hátíðarnar. Vá!
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú finnur hvorki fyrir þreytu né leiða.
En þú gætir verið innilega áhugalaus.
Þetta fær aðra til að halda að þú sért
hafin/n yfir smámálin, og kannski er það
bara satt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Stjörnurnar einbeita sér að hégóma og
að vera aðlaðandi. Þú getur sparað þér
mikil ósköp með því að gera þér grein
fyrir einni staðreynd. Kyntöfrar þínir
felast mun meira í framkomu þinni en að
hafa sig til á einn eða annan hátt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þegar sólin skín áttu alltaf vini. En þú
vilt líka eiga vini í verra veðri. Gakktu úr
skugga um að fólkið sem þú þekkir sé
ekki „sólskinsfólkið“.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þegar þú kærir þig um, ertu meistari í
að fá fólk til að vera sammála skoðunum
þínum. En ekki nota þennan ofurkraft
bara af því að þú getur það! Það er miklu
skemmtilegra að umgangast fólk sem
ögrar þér.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Alveg síðan Venus hóf að
kanna ævintýralegt um-
dæmi bogamannsins, höf-
um við fengið klikkaðar hugmyndir um
hvernig við getum fengið meiri ást inn í
lífið. Eigum við að elta hana á röndum,
tæla hana, ferðast á enda veraldar í leit
að henni eða halda niðri í okkur and-
anum þar til hún kemur? Hin skynsama
steingeit mun hjálpa okkur að finna við-
eigandi nálgun.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 andspænis, 4
svara, 7 góð lykt, 8 skilja
eftir, 9 lengdareining, 11
hermir eftir, 13 langar
til, 14 sjúkdómur, 15
jarðaði, 17 autt, 20 ósoð-
in, 22 gufa, 23 lítils skips,
24 hluta, 25 hafa upp á.
Lóðrétt | 1 missa marks,
2 gamalær, 3 tyrfinn
texti, 4 karldýr, 5 hluti
hringflatar, 6 stétt, 10
svardagi, 12 dýr, 13
skynsemi, 15 þreif, 16
trylltar, 18 bylgjukvikið,
19 rýja, 20 lof, 21 kapp-
söm.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 geðvondur, 8 gyllt, 9 lydda, 10 uml, 11 tærir, 13
senna, 15 seinn, 18 óninn, 21 átt, 22 launi, 23 trauð, 24
sannindin.
Lóðrétt: 2 eflir, 3 votur, 4 núlls, 5 undin, 6 ógát, 7 gata,
12 iðn, 14 enn, 15 sæla, 16 iðuna, 17 náinn, 18 óttan, 19
iðaði, 20 næði.
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 c5 4. d5 exd5 5.
cxd5 d6 6. e4 Bg4 7. h3 Bxf3 8. Dxf3
Rbd7 9. Bf4 De7 10. Rc3 a6 11. 0–0–0
g6 12. g4 Bg7 13. Dg3 Rxe4 14. Rxe4
Dxe4 15. Bxd6 0–0–0 16. Bg2 Db4 17.
Db3 Dxb3 18. axb3 Hhe8 19. Bf4 Bd4
20. Hxd4 cxd4 21. Kd2 Re5 22. He1
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í St.
Vincent í Ítalíu. Levan Pantsulaia
(2.510) hafði svart gegn Dimitri Kom-
arov (2.521). 22. … Rd3! 23. Hxe8
Rxf4 svartur hefur nú unnið tafl þar
sem eftir 24. Hxd8 Kxd8 25. Be4 Kd7
mun svartur fyrr eða síðar vinna d-peð
hvíts. Í stað þess að berjast fyrir lífi
sínu í slíku endatafli kaus hvítur frekar
að tapa skákinni með því að gefa svört-
um biskupinn sinn. 24. He7 Rxg2 25.
Hxf7 Hd7 26. Hf8+ Kc7 27. f4 Hxd5
28. Kd3 Hd7 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.