Morgunblaðið - 09.10.2005, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
SPÁÐ er stórhríð á Norður- og Austurlandi um
og eftir helgi og hafa sumir bændur áhyggjur af
sauðfé sem gengur úti. Þetta er annar veður-
hvellurinn sem gengur yfir á þessu hausti og
voru bændur sumstaðar komnir með fé á gjöf
um tíma.
Við þessar aðstæður vilja bændur losna við
sem mest af lömbum í sláturhús. Hjá Norð-
lenska á Húsavík hefur verið unnið lengur fram
eftir deginum en ráðgert var. Svipaða sögu er
að segja frá SS á Selfossi og líkur eru á að þar
verði slátrað á laugardaginn eftir viku, en al-
mennt er ekki slátrað um helgar. Sauðfé varð
klakabrynjað á Norður- og Austurlandi fyrir
skömmu þegar gekk á með snjókomu og frosti.
Bændur í Bárðardal og Mývatnssveit og víðar á
landinu neyddust til að taka fé á gjöf vegna jarð-
banns.
Nauðsynlegt að bregðast við
Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri hjá
Norðlenska á Húsavík, sagði að nauðsynlegt
hefði verið að bregðast við og auka slátrun í slát-
urhúsinu vegna þessa ástands. Afköstin hafi
verið aukin um 250 fjár á dag.
Hann segir að menn hafi áformað að slátra
um helgi, en hætt við það. Nú sé hins vegar spáð
stórhríð og því sé hætt við að sama ástand skap-
ist aftur.
Hermann Árnason, sláturhússtjóri hjá SS á
Selfossi, hafði sömu sögu að segja. Mikill þrýst-
ingur væri frá bændum að koma lömbum í slátr-
un. „Pressan er meiri en oftast áður.“ Hermann
sagði að kalt hefði verið í veðri í allt haust og
grös væru farin að falla. Þetta leiddi aftur til
þess að lömbin væru ekkert að bæta á sig hold-
um.
Hann sagði líklegt að slátrað yrði hjá SS á
laugardaginn eftir viku. Þetta væri óvenjulegt
og raunar ekki æskilegt því að vinna í sláturhús-
um væri erfiðisvinna og mikið álag væri á
starfsfólkinu.
Sauðfjárbændur áhyggjufullir yfir vondri veðurspá um helgina
Vilja losna við sem
flest lömb í sláturhús
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Sameiningarkosningar fóru fram
víða um land í gær, laugardag.
Kosið var um sextán sameining-
artillögur í 61 sveitarfélagi.
Helgi Steinsson, bóndi á Syðri-
Bægisá og oddviti Hörgár-
byggðar, og Hjörleifur M. Hjart-
arson, vinnumaður hans, á stærri
myndinni, voru fyrstir á kjörstað í
Hlíðarbæ í gærmorgun og greiddu
atkvæði um sameiningu sveitarfé-
laga í Eyjafirði. Báðir sögðust þeir
hafa greitt atkvæði gegn samein-
ingu.
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra greiddi atkvæði í heimabæ
sínum, Hveragerði, skömmu fyrir
hádegið og er myndin til hliðar
tekin við það tækifæri.
Samtals búa um 96 þúsund
manns í þeim sveitarfélögum þar
sem kosningarnar fóru fram. Á
kjörskrá voru 69.144 og voru kjör-
staðir áttatíu talsins. Fæstir kjós-
endur voru í Mjóafjarðarhreppi,
eða 32, en flestir í Hafnarfirði,
15.570.
Komið hefur fram að allt að 2,4
milljörðum króna á að verja til
sameiningarframlaga úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga og verður
þeim fjármunum m.a. varið til að
byggja upp ný sveitarfélög og
styrkja innviði þeirra.
Morgunblaðið/Kristján
Morgunblaðið/Sverrir
Kosið
um sam-
einingu
ÞEGAR Rússinn Gleb Therekhin skrifaði
bréf til Kvennalistans bað hann um að sér
yrði hjálpað að komast í samband við ís-
lenska konu – því eins og hann segir í við-
tali í Tímariti Morg-
unblaðsins í dag: „... ég
hélt að þær væru með
konur á lista.“ Bréfið
skrifaði hann á íslensku
líkt og annað skömmu
áður, eða 1994, sem
barst hingað til lands í
gegnum faxtæki í Um-
ferðarmiðstöðinni og
birtist þá m.a. í Morg-
unblaðinu.
Hvorugt bréfanna skilaði árangri og
ekki heldur það sem Gleb sendi til tíma-
ritsins Heima er best í millitíðinni.
Kvennalistakonur svöruðu bréfi Glebs og
leiðréttu misskilning hans um eðli listans.
Gleb gafst ekki upp og án þess að kunna
orð í íslensku hélt hann áfram að semja
bréf á íslensku á bókasafni heima í Rúss-
landi með hjálp hálfrar aldar gamallar
dansk-íslenskrar orðabókar og annarrar
ensk-íslenskrar. Honum tókst að raða
saman íslenskum orðum þar sem hann lýs-
ir yfir áhuga á að fá vinnu og væna konu
hér á Fróni „... kynnast með kvenmaður
frá Ísafold, með tilgangur bréfaviðskipti.“
Dvaldi hér í sumar
Átta árum eftir að hann skrifaði fyrsta
bréfið sendi hann annað til Heima er best
og upplýsti að hann væri strætisvagnabíl-
stjóri í „Moskvuborgarríkissamfélagsleg-
urþjóðfarþegasamgöngukerfi“ og hefði al-
menna víðtæka starfsreynslu. Þetta var
fyrir þremur árum. Magnfríður Dís Ei-
ríksdóttir rak þá augun í bréfið í Heima er
best og langaði að gera eitthvað fyrir
„blessaðan manninn“.
Þessi þrautseigi Íslandsvinur dvaldi hér
síðastliðið sumar og undi hag sínum vel.
Hann var að vísu leiður yfir að hafa ekki
fengið vinnu. | Tímarit
Morgunblaðið/Golli
Bréf Glebs til Kvennalistans er varðveitt
á Kvennasögusafni Íslands.
„Kynnast með
kvenmaður
frá Ísafold“
Gleb Therekhin
ICELAND Express hefur
áætlunarflug til Alicante á
Spáni næsta vor. Fyrsta
flugið verður 17. maí og
verður flogið tvisvar í viku
yfir sumarið.
Birgir Jónsson, forstjóri
Iceland Express, segir að
sömu verðflokkar muni
gilda í fluginu þangað og til
annarra áfangastaða, þ.e.
ódýrustu sætin verði seld á
7.995 krónur aðra leið.
Fram kemur að endanleg
mynd er komin á áætlanir
félagsins fyrir sumarið og
að sala á sumarferðum hefst
á miðvikudaginn kemur, en
auk Alicante verður flogið
til Berlínar, Friedrichs-
hafen, Gautaborgar, Stokk-
hólms og Frankfurt Hahn
en fyrir er félagið með dag-
leg flug til Kaupmannahafn-
ar og London.
Keyptu Markmenn
Nýlega festi Iceland Ex-
press kaup á ferðaskrifstof-
unni Markmenn sem hefur
meðal annars sérhæft sig í
sölu ferða á knattspyrnu-
leiki og svokallaðra golf-
ferða. Nafni ferðaskrifstof-
unnar verður breytt í
Express ferðir og segir
Birgir að með þessu aukist
möguleikar Iceland Ex-
press á því að bjóða upp á
ódýrar pakkaferðir fyrir þá
sem þess óska.
Birgir segir að þessir
nýju áfangastaðir séu til
marks um að mikill sóknar-
hugur sé í Iceland Express
en að hans sögn hefur
rekstri félagsins verið snúið
við og verður hagnaður af
honum á þessu ári.
Iceland Express í
flug til Alicante
Iceland Express | 4
MIKILL áhugi er á flugnámi
og í Flugskóla Íslands hf.,
langstærsta flugskólanum,
stunda nú tæplega 100 manns
nám, tæplega 50 manns eru í
einkaflugmannsnámi og 46 í
atvinnuflugmannsnámi. Össur
Brynjólfsson yfirkennari segir
að þetta sé met, aldrei áður
hafi svo margir stundað nám
við skólann og aðeins einu
sinni áður hafi svo margir lært
til atvinnuflugmanns í einu.
Þá stunda um 10 manns
bóklegt einkaflugmannsnám
hjá Flugfélaginu Geirfugli svo
fleiri dæmi séu nefnd.
Sjálfsagt tengist þessi aukni
áhugi á flugnámi því að at-
vinnuástand meðal flugmanna
hefur verið með besta móti
undanfarin tvö ár eða svo.
Hörður Vignir Magnússon,
varaformaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna,
segir að sl. vetur hafi um 100
íslenskir flugmenn hafið störf
hjá flugfélögum. Aldrei áður í
sögu þjóðarinnar hafi svo
margir flugmenn verið ráðnir
til starfa.
Metfjöldi leggur
stund á flugnám
Aldrei fleiri flugmenn ráðnir SAMÞYKKT var einróma á
fundi í Sjúkraliðafélagi Ís-
lands að vísa kjaradeilu fé-
lagsins vegna starfsmanna á
stofnunum í Samtökum fyrir-
tækja í heilbrigðisþjónustu til
ríkisáttasemjara og hefja
undirbúning verkfalls.
Í ályktun fundarins er lýst
megnri óánægju með það hve
lengi hefur dregist að ganga
frá samningum um kjör og
önnur starfsréttindi. „Þolin-
mæði okkar er þrotin. Stein-
inn tók úr með rangtúlkun
samninganefndar SFH á und-
irrituðu bráðabirgðasam-
komulagi frá 26. sept. Sam-
komulag sem átti að leiða til
sátta en snerist upp í and-
hverfu sína.“
Þolinmæði
sjúkraliða
er þrotin