Fréttablaðið - 18.11.2004, Side 44
F2 10 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Hvað er langt síðan...
Á nýju plötunni
sinni fer hinn
kraftmikli Páll
Rósinkranz
ótroðnar slóðir og
syngur á ylhýru
móðurmálinu
frumsamin lög eft-
ir mörg mætustu,
núlifandi
söngskáld þjóðarinnar. Páll svarar hér
samviskuspurningum sem varða lífið
og tilveruna.
...þú hneykslaðist?
Ég varð yfir mig hneykslaður þegar
ég varð vitni af skömmum sem
rigndu yfir vin minn Róbert Scmidt
þegar hann skaut og snæddi
múkka, sem sjálfur hafði veitt sér
skarf í matinn sem hann nartaði í
af græðgi. Þess má geta að múkk-
inn var ljúffengur og borðaður
með bestu lyst.
...þú fékkst sekt?
Það er ekki langt síðan. Var tekinn
fyrir of hraðan akstur í Breiðholt-
inu fyrir tveimur mánuðum síðan.
...þú svafst yfir þig?
Ég svaf hressilega yfir mig í morg-
un. Er annars morgunhress, en á
það til að sofa fulllengi frameftir ef
ég fer seint í háttinn.
...þú gafst gjöf?
Ég gaf konunni minni blóm síðast í
fyrradag.
...þú syndgaðir?
Úff, það er af svo mörgu að taka
þar, en ég legg mig vitaskuld í líma
við að syndga ekki.
...þú grést yfir bíómynd?
Ég vatnaði músum yfir örlögum
Krists þegar ég sá þá mögnuðu
kvikmynd The Passion of Christ.
...þú fannst fyrir stolti?
Ég er ákaflega stoltur af börnunum
mínum.
...þú sagðir ósatt?
Ég legg ekki í vana minn að ljúga.
Eða var ég kannski að ljúga núna?
...hjálpaðir ókunnugum?
Það var í fyrra að ég tók upp í bíl-
inn útlending sem átti í stökustu
vandræðum með að koma sér á
flugvöllinn. Ég sá aumur á þessum
vegalausa manni og ók honum á
réttan stað.
...þú svafst á hóteli?
Ég sef jafnan á hótelum þegar ég
ferðast, en síðast hallaði ég mér í
hótelherbergi í sumar.
...þú fékkst bakþanka?
Maður fær reglulega bakþanka, en
það hvorki þýðir né gerir manni
gott að dvelja við þá.
...þú sendir póstkort?
Það var fyrir jólin síðast, en annars
sendi ég bara tölvupóst núorðið.
...þú tókst kollhnís?
Mörg, mörg ár. Svo langt síðan að
ég man ekki lengur þann gjörning.
Fr
ét
ta
b
la
ð
ið
/L
jó
sm
: S
te
fá
n
K
ar
ls
so
n
Álitsgjafar F2
Þórunn Högnadóttir
förðunarmeistari
og stílisti.
Hún er ógurlega nýjunga-
gjörn og er sífellt að breyta
heima hjá sér; alltaf samt til
batnaðar.
Helga Ólafsdóttir
fatahönnuður.
Ein af best klæddu konum
landsins sem er óhrædd við
að feta nýjar brautir þegar
kemur að tískunni. Hún
kann að baka.
Baldur Rafn Gylfason hár-
greiðslumaður og annar eig-
andi Mojo/Monroe.
Hann elskar að tæta og
trylla á krossaranum sínum
þegar hann er ekki að hafa
hendur í hári fólks.
Hulda Karlotta
Kristjánsdóttir
fatahönnuður í Latabæ. Hún
hefur smekk fyrir óhefð-
bundinni hönnun og elskar
hönnunarhópinn As Four.
Huldu dreymir um að kom-
ast til New York að kaupa
sér skó.
Gunnar
Eyjólfsson
leikari og
Svanhildur
Hólm sjón-
varpskona
Þórunn Kjóllinn er
flottur í sniðinu en
efnið er alveg afleitt.
Helga Kjóllinn er allt
of konulegur fyrir
svona unga stelpu.
Hún hefði átt að
vera meiri töffari og
allavega sleppa sjal-
inu.
Baldur Hún er
glæsileg stelpa með
fallegt hár en kjóll-
inn er ekki alveg að
gera sig. Hún og
Gunnar gætu verið
hjón miðað við dress-
ið.
Hulda Þessi kjóll er
ekki að gera sig.
Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti og Dorrit
eiginkona hans
Hulda Glæsilegur jakki en hún
hefði þurft að vera í einhverju
öðru að neðan. Mér finnst hún yf-
irleitt mjög flott í tauinu, en hefði
getað verið smartari á Eddunni.
Baldur Dorrit gerir mikið fyrir Ólaf
Ragnar. Hún hefur mjög góðan
smekk og hún var flott á Eddunni.
Helga Mér finnst jakkinn frábær
og passaði vel við þetta tilefni.
Þórunn Ég hef séð hana flottari.
Hún hefði verið mun betri í pilsi
við jakkann. Annars finnst mér
Dorrit yfirleitt alltaf smart.
Álfrún Örnólfsdóttir
leikkona og Oddný
Sturludóttir einn af
höfundum Dísar
Þórunn Mér finnst þær algert æði.
Helga Álfrún er mjög dömuleg í
þessum kjól og virðist vera eldri en
hún er. Mér finnst stóra rauða
taskan setja punktinn yfir i-ið hjá
Oddnýju.
Baldur Rauða taskan bjargar al-
veg dressinu hjá Oddnýju. Álfrún
hefði átt að taka hana til fyrir-
myndar og bæta við einum lit.
Hulda Mér finnst Álfrún ekki alveg
nógu spennandi í þessum kjól, en
mér finnst Oddný rosa smart. Task-
an er alveg geðveikt flott. Þær
hefðu samt átt að bítta á skóm.
Elva Ósk Ólafsdóttir
leikkona
Hulda Hún sker sig úr. Kjóllinn er
kannski heldur til of doppóttur en
samt fallegur.
Baldur Hún lítur voðalega vel út,
ungleg og sæt. Mér finnst hún iða
af ferskleika í þessum kjól og
skórnir passa vel við. Það eina sem
mætti breyta er hárið, mætti létta
það aðeins.
Helga Mér finnst kjóllinn aðeins of
sumarlegur fyrir þetta tækifæri.
Hann hefði smellpassað á Grímuna
í sumar.
Þórunn Mér finnst hún flott í þess-
um doppukjól og hún hefur sjald-
an verið sætari.
Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir einn af um-
sjónarmönnum Ópsins
hjá Sjónvarpinu og
Haukur Ingi Guðnason
sambýlismaður hennar
Hulda Mér finnst Ragnhildur
Steinunn glæsileg í þessum kjól þó
ég myndi ekki ganga í honum
sjálf.
Baldur : Hún er elegant týpa sem
veit út á hvað þetta gengur. Það er
gaman að svona stelpum sem
þora.
Helga Rosalega flottur kjóll.
Þórunn Kjóllinn er fínn en ef ég
hefði fengið að ráða þá hefði ég
valið aðeins skærari lit á kjólinn,
mér finnst hann aðeins of fölur
fyrir hana.
Helga Braga
Jónsdóttir leik-
kona og kynnir
hátíðarinnar
Helga
Mér finnst kjóllinn svo-
lítið fegurðardrottning-
arlegur en hún er flott í
honum enda lítur hún
mjög vel út þessa dagana.
Sæt í bleiku.
Baldur
Alger snilld. Hún
er eins og blóm í
vasa í þessum
bleika kjól.
Hulda
Rosaflott.
Þórunn
Ofboðslega
fín og hárið
sérlega
fallegt.
Hún geislaði
alveg þetta
kvöld.
Kjólarnir
mættu
vera
litaglaðari
Edduverðlaunin voru afhent sunnudaginn
14.nóvember. Sjónvarpsstjörnur landsins,
leikarar og aðrir fjölmenntu á hátíðina til
að sýna sig og sjá aðra. Álitsgjafar F2 tóku
út klæðaburð fræga fólksins.
Unnur Ösp Stefáns-
dóttir og Ilmur Krist-
jánsdóttir leikkonur
Þórunn Þær eru æðislegar.
Helga Báðar mjög flottar, sérstak-
lega Ilmur, hún er alger töffari í
þessum smókingfötum. Unnur ber
dressið sem hún klæðist því hún er
svo mikill rokkari.
Baldur Þær eru töffarar sem ögra,
en ég er aldrei hrifinn af konum í
jakkafötum. Mér finnst það ekki
passa. Unnur hefði mátt vera örlít-
ið sparilegri.
Hulda Mér finnst smókingdragtin
alveg geðveik. Unnur hefði mátt
vera örlítið fínni, hún er svolítið að
fara yfir strikið í drusluverkinu.
10-11-F2 17.11.2004 13:59 Page 2