Fréttablaðið - 18.11.2004, Side 55
Vín með jólamatnum
2004
Vínsýning á Nordica Hotel
20.-21. nóvember
Vínsýning verður haldin á Nordica Hotel 20.-21. nóvember,
kl. 14-18 báða dagana, á vegum Vínþjónasamtaka Íslands og
Vínbúða. Aðgangseyrir er 1000 kr. og Riedel-glas fylgir með
á meðan birgðir endast. Aldurstakmark er 20 ár.
Beaujolais
Nouveau
kemur í dag!
Fyrsti söludagur á Beaujolais Nouveau
í Frakklandi, er í dag. Þá hefst kapp-
hlaup um allan heim hjá söluaðilum til
að koma víninu sem allra fyrst til vín-
unnenda. Hér á Íslandi hefur myndast
mikil Nouveau hefð undanfarin áratug
og verður vínið á boðstólum strax á
fyrsta leyfilega degi hér á landi. Vin-
sældir Nouve-
au hafa aukist
stöðugt og
má ætla að
allt að 20.000
flöskur af
Nouveau víni
frá héraðinu
seljist hér á
landi á næstu
mánuðum.
Beaujolais
Nouveau er
fyrsta vínið af
uppskeru
haustsins sem
drukkið er.
Nouveau
þýðir nýtt og
Beaujolais er
nafnið á hér-
aðinu sem er í
Búrgúndí.
10 atriði um Nouveau
1. Beaujolais Nouveau er ævinlega
sett á markað þriðja fimmtudag í
nóvember óháð því hvenær upp-
skerutíðin hefst.
2. Um 4000 vínbændur í Beaujolais-
héraðinu norðan Lyon lifa á því að
rækta þrúgur sem fara í Nouveau.
3. Allar þrúgurnar í Beaujolais
verða að vera handtýndar. Þetta er
eina héraðið utan Champagne þar
sem þetta er skylda.
4. Einungis er leyfilegt að nota
þrúguna gamay.
5. Ekki má búa til Beaujolais Nouve-
au úr þrúgum sem koma frá „10
crus“ ekrunum í Beaujolais.
6. Vínið er auðdrekkanlegt vegna
þess að það er gerjað með berja-
gerjun, sérstakri aðferð sem varð-
veitir hið ferska berjabragð vínsins
án þess að fá tannín úr hýðinu.
7. Vínið á að drekka ungt og á að
vera búið að klára það fyrir maí
næsta ár, nema í alveg sérstökum
árgöngum.
8. Vínið er best að bera fram létt
kælt svo þess megi njóta til fulls.
9. Um þriðjungur af heildarupp-
skeru Beaujolais-héraðsins fer til
framleiðslu á Nouveau.
10. Beaujolais-héraðið er þekkt
fyrir framúrskarandi matargerð.
Hið kunna veitingahús Paul Bocuse
er í hjarta héraðsins.
Turning Leaf vínin frá Gallo hafaverið vinsæl hérlendis, enda fjöl-breytt og á hagstæðu verði.
Turning Leaf Zinfandel verður eitt af
jólavínunum sem kynnt verða sérstak-
lega í Vínbúðum á næstunni. Vín-
áhugamenn geta smakkað á Turning
Leaf vínunum á vínsýningunni Vín
2004 um helgina. Vínin eru unnin úr
einni þrúgu af ýmsum svæðum Kali-
forníu, þó meginuppistaðan sé frá
Sonoma héraðinu. Markmiðið er að
endurspegla þá þrúgu á stílhreinan
hátt í víni á mjög hófsömu verði.
Gallo er öflugasta vínfyrirtæki í
veröldinni og hefur unnið til fjölda
verðlauna á liðnum árum. Til dæmis
hefur Gallo unnið titilinn besti vín-
framleiðandinn 3 ár í röð á VinItaly
vínsýningunni í Verona á Ítalíu.
Gallo var stofnað í Kaliforníu af
bræðrum af ítölskum uppruna,
Ernest og Julio að nafni, og varð
á nokkrum áratugum að öflug-
asta vínfyrirtæki veraldar. Enn í
dag er Gallo rekið sem fjöl-
skyldufyrirtæki. Gallo hefur verið
í stöðugri þróun og á síðustu
árum hefur verið lögð gífurleg
vinna og fjármagn í að gera fyrir-
tækið að tákni gæðaframleiðslu.
Ekki síst hefur sú fjárfesting átt
sér stað í Sonoma dalnum, þar sem
ekkert hefur verið sparað til að vín
Gallo skipi sér í fremstu röð.
Turning Leaf
Chardonnay
Suðrænir ávextir í bland
við nýja mjúka eikartóna.
Fellur vel að flestum fiski
þá sér í lagi feitara fisk-
meti til dæmis reyktum og
gröfnum laxi. Einnig með
ljósum kjötréttum á borð
við kalkún, kjúkling sem
og svínakjöt.
Verð í Vínbúðum 1190 kr.
Turning Leaf Zinfandel
Mildir kryddaðir tónar, mjúk eik.
Zinfandel er án efa þekktasta afurð-
in í Turning Leaf-línunni hér-
lendis, þéttur ávöxtur og
mikil kryddflóra, svartur pip-
ar, súkkulaði og kaffi ein-
kenna oft stærstu Zinfandel
vínin. Er afbragð með lambi
og er eitt af fáum vínum sem
ræður við reykt kjöt.
Verð í Vínbúðum 1190 kr.
Turning Leaf Cabernet
Sauvignon
Ávaxtaríkt og þægilegt vín, dökk
rauð ber. Vín unnin úr cabernet
sauvignon eru þegar best lætur
kraftmikil og öflug, sólber og
skógarber í bland við nýja mjúka
eik og það einkennir þetta ein-
falda en vel samstillta vín. Fellur
vel að flestu kjötmeti, s.s.lambi,
grís, kalkún og nauti.
Verð í Vínbúðum 1190 kr.
F221FIMMTUDAGUR 18. nóvember 2004
Turning Leaf frá Gallo kynnt á Vín 2004
20-21-F2 17.11.2004 13:35 Page 3