Fréttablaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 94
50 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Söngvarinn heimsfrægi Harry
Belafonte er væntanlegur til
landsins og mun koma fram í
spjallþætti Gísla Marteins Bald-
urssonar í Sjónvarpinu á laugar-
daginn. Belafonte er sennilega
þekktastur fyrir lagið sitt Day-O
eða Banana Boat Song.
Hljómsveitin Jagúar mun
mæta með Belafonte í þáttinn til
að kynna nýju plötuna sína og
það er aldrei að vita nema hann
taki lagið með sveitinni. „Hann
segist nú vera hættur að koma
fram en virðist alls ekki taka illa
í það að taka óvænt lagið. Strák-
arnir í Jagúar eru búnir að æfa
nokkur lög með honum og við
erum að sjálfsögðu að vona að
hann fáist til að taka Day-O,“
segir Gísli Marteinn.
Harry Belafonte á að baki
langan og farsælan feril sem
söngvari, leikari og framleið-
andi. Hann hefur einnig verið
ötull við starf sitt í þágu mann-
úðarmála. Hann er velgjörðar-
sendiherra UNICEF og er hér á
landi í tilefni af 15 ára afmæli
Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna og heimsforeldraátaki
UNICEF Ísland. Hann hefur
starfað mikið að réttindum
barna á heimsvísu og tekið þátt í
verkefnum sem snúa að alnæmi,
skrásetningu barna, aukinni
menntun og fleira.
Belafonte varð einnig fyrsti
blökkumaðurinn til að vinna til
Emmy-verðlauna. Þau hlaut
hann fyrir sjónvarpsþátt sinn,
Tonight with Harry Belafonte,
sem var sá fyrsti af mörgum
sjónvarpsþáttum sem hann
framleiddi.
Fleiri góðir gestir kíkja til
Gísla Marteins og mun til dæm-
is Birgitta Haukdal koma og
frumsýna nýju Birgittudúkkuna
sem hefur hvergi sést áður.
„Birgitta er einnig að kynna
nýju barnaplötuna sína og auk
hennar munu fleiri góðir gestir
kíkja í sjónvarpssal.“ ■
Strákarnir í sjónvarpsþættinum
70 mínútur á Popptíví hafa tekið
áskorun um að taka bita af
stærstu pylsu í heimi sem sýna á í
Kringlunni á laugardaginn.
Til stendur að slá heimsmetið í
pylsu- og pylsubrauðsstærð í til-
efni af 50 ára afmælisútgáfu
Heimsmetabókar Guinnes. Eru
það SS og Myllan sem búa ferlíkið
til, en það verður 12 metra langt.
Svo gæti farið að strákarnir í 70
mínútum reyni að setja sitt eigið
met á sama tíma en það á eftir að
koma í ljós.
Vottar að heimsmetspylsunni
verða Guðrún Kristmundsdóttir í
Pylsuvagninum, sem m.a. rekur
Bæjarins bestu, og Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra. Mun
hann jafnframt taka fyrsta bitann
af pylsunni. Einnig fá allir þeir
sem vilja gæða sér á pylsunni í
Kringlunni sérstakt vottorð fyrir
þátttöku sína í atburðinum. ■
70 mínútur borða risapylsu
70 MÍNÚTUR Strákarnir í 70 mínútum ætla að gæða sér á stærstu pylsu í heimi á
laugardaginn.
HARRY BELAFONTE Er velgjörðarsendiherra UNICEF og kemur til Íslands í tilefni af 15 ára afmæli Barnasáttmála SÞ.
Gísli Marteinn: Fær heimsfrægan söngvara í heimsókn:
Belafonte mætir í sjónvarpssal
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
...fær tónlistarmaðurinn Mugison
fyrir að rukka aðeins 350 krónur
inn á útgáfutónleika sína á Nasa
í kvöld.
HRÓSIÐ
Tímaritið
Magasín
fylgir DV
í dag
eftir Alessandro Baricco
Frumsýning á Smíðaverkstæðinu í kvöld!
Nítjánhundruð
Skvísurnar á skjánum
2. TÖLUBLAÐ – FIMMTUDAGURINN 18. NÓVEMBER
hugmynd
að öðruvísi
stefnumóti
21
Brynja Þorgeirs og Margrét Marteins
Sex
AFSAKANIR
til að sleppa ræktinni
MAGASÍN
Helgarferð konu til Reykjavíkur endaði í martröð
DV Magasín birtir reynslusögu konu sem var nauðgað á hryllilegan hátt
ER HERRA ÍSLAND
FLOTTUR Í
LÖGREGLUBÚNINGI?
Íris Björká von á jólabarniÁtti ekki að geta eignast börn
Stórir
skartgripir
eru málið
í vetur
Kynköld
á pillunni
Kynlífsfræðingurinn
svarar spurningum
lesenda
Fríkaðir kokteilar fyrir helgina
– hefur þú séð DV í dag?
Íris Björk
átti ekki að
geta eignast
fleiri börn
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
73,4 milljónir króna.
Margaret Hassan.
13,03 prósent.
Lárétt: 2 klöpp, 6 í röð, 8 spor, 9 ílát, 11
eignast, 12 fljótar, 14 haf, 16 fæddi, 17
dugmikil, 18 forföður, 20 öfug röð, 21
samtal.
Lóðrétt: 1 kjötréttur, 3 vafi, 4 tengt raf-
magni, 5 litlaus, 7 menn í úlfslíki, 10 eins
um á, 13 nóa, 15 reika, 16 hræðist, 19
bókaforlag.
LAUSN.
Lárétt: 2berg, 6uv, 8far, 9fat, 11fá, 12
fráar, 14útsær, 16ól, 17kná, 18afa, 20
ts, 21rabb.
Lóðrétt: 1buff, 3ef, 4rafrænt, 5grá, 7
varúlfa, 10tát, 13ask, 15rása, 16óar, 19
ab.
AÐ MÍNU SKAPI
ARNAR INGI JÓNSSON, KAFFIBARÞJÓNN OG TÓNLISTARMAÐUR
TÓNLISTIN
Vinir mínir í Hæstu hendinni gáfu á dög-
unum út plötu sem ég hef verið að hlusta
mikið á, að ógleymdum snilldartilþrifum
sænsk-íslenska gítardúettsins Arnaldur
og Angström sem þessa dagana eru að
vinna með hljómsveitinni Reykjavík.
BÓKIN
Ég er að lesa mig í gegnum Angeles y
Demonios eftir Dan Brown, höfund Da
Vinci-lykilsins. Bíð verulega spenntur eftir
íslensku útgáfunni vegna takmarkaðrar
spænskukunnáttu.
BÍÓMYNDIN
Eftir að ég sá Opinberun Hannesar á
notalegu kvöldi um síðustu jólahátíð hafa
allar myndir verið unun á að horfa og vil
ég alls ekki gera upp á milli þeirra.
BORGIN
Ég fór síðast til Berlínar og líkaði frábær-
lega. Þar er að finna ljúffengasta kebab í
heimi og ekki var þverfótað fyrir tísku-
meðvituðu fólki með hárgreiðsluna í lagi.
BÚÐIN
Það er Ríkið. Ekki spurning. Á þeim bæn-
um eiga menn einhvern veginn alltaf eitt-
hvað sem mann langar í og þar er líka
gráupplagt að kaupa freistandi tækifæris-
gjafir fyrir öll möguleg tilefni.
VERKEFNIÐ
Núna er ég að semja tónlist fyrir balkan-
reggí hljómsveitina Breggí. Þetta er svona
blanda af þjóðlagatónlist frá Balkanskag-
anum og reggíi, en okkur vantar samt
ennþá mann sem kann á túbu og líkist
Bob Marley. Auglýsi hér með eftir slíkum
hæfileikamanni.
Kebab, ríkið, englar og djöflar
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Bind-
ur vonir við að Belafonte fáist til að taka
lagið í þætti sínum á laugardaginn.
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á FIMMTUDÖGUM
94-95 aftasta (50-51) 17.11.2004 19.44 Page 2