Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 4
4 21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR GRENSÁSVEGI 14 / 108 REYKJAVÍK / 566 6820 Í fyrsta skipti á Íslandi tískufatnaður frá FOX og THOR. Komdu við og sjáðu glæsilega fatalínu frá þessum vinsælu merkjum. Allt fyrir stelpur og stráka. Opið í kvöld & á morgun til kl. 21. > á Þorláksmessu til kl. 23. Þú færð jólagjöfina hjá okkur! TSJAD, AP Tsjadneskir embættis- menn hafa greint frá því að yfir 300 manns, sem taldir eru uppreisnarmenn á mála hjá súdönskum stjórnvöldum, hafi fallið í átökum við stjórnarherinn skammt frá súdönsku landamærunum. Talið er að uppreisnarmennirn- ir hafi verið liðhlaupar úr stjórnar- her Tsjad. Súdanar þvertaka fyrir að styðja uppreisnarhópa hinum megin landamæranna. Yfirmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Tsjad óttast að átökin geti haft slæm áhrif á hag 230.000 flóttamanna frá Darfur sem hafast við í Austur-Tsjad. ■ Róstur í Afríkuríkinu Tsjad: Þrjú hundruð manns felldir SÆKIR Í SIG VEÐRIÐ Fylgið við Bush var í sögulegu lágmarki í síðasta mánuði en nú nýtur hann stuðnings fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN George W. Bush Bandaríkjaforseti er að sækja í sig veðrið meðal almennings í Bandaríkjunum. Samkvæmt nýrri könnun dag- blaðsins Washington Post og sjón- varpsstöðvarinnar ABC eru 47 prósent Bandaríkjamanna ánægð með störf forsetans, sem er átta prósentustigum hærra en í sam- bærilegri könnun sömu miðla í nóv- ember. Þá voru færri ánægðir með forsetann en nokkru sinni fyrr. Nýafstaðnar kosningar í Írak og jákvæðar horfur í efnahagsmál- um heima fyrir virðast skila Bush auknum vinsældum nú. ■ Forseti Bandaríkjanna: Vinsældirnar fara vaxandi DÓMSMÁL 44 ára gamall maður var dæmdur í tveggja mánaða fang- elsi, skilorðsbundið í þrjú ár, í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn stóð á samt fleirum í slagsmálum á skemmtistaðnum Áttunni í Hafnarfirði aðfaranótt sunnudagsins 23. janúar og var á leið út af staðnum þegar hann skallaði sér 20 árum yngri mann þannig að sá nefbrotnaði. Dómurinn segir engu skipta hver átti upptökin að átökunum umrætt kvöld heldur áverkinn sem hlaust af árás mannsins, sem dómurinn segir hafa verið illskeyttari en það sem á undan var gengið. - óká Tveggja mánaða dómur: Nefbraut sér yngri mann STJÓRNMÁL Þorsteinn Pálsson kveðst hafa sagt sig frá ritun sögu þingræðisins á Íslandi á vegum forsætisnefndar Alþingis. „Þegar Halldór Blöndal, fyrrverandi þingforseti, færði þetta í tal við mig fannst mér þetta áhugavert. Ég setti það skilyrði fyrir mitt leyti að um það yrði að vera samstaða. Samstaða var í forsætisnefndinni en þegar umræður fóru fram í þinginu kom síðar í ljós að þessi ákvörðun nefndarinnar naut ekki óskoraðs stuðnings í þinginu. Þar með voru brostnar forsendur fyrir minni þátttöku í þessu,“ segir Þorsteinn Pálsson sendiherra. Málið var einnig harðlega gagnrýnt af hálfu Sagnfræðinga- félags Íslands og af ýmsum fræði- mönnum utan þess. Halldór Blöndal, þáverandi for- seti Alþingis, kynnti upphaflega hugmyndina að sögurituninni í forsætisnefnd Alþingis árið 2000 og hlaut hún góðan hljómgrunn, en árið 2004 voru liðin 100 ár frá upphafi þingræðis hér á landi. Að tillögu Halldórs var óskað eftir því að Þorsteinn Pálsson tæki að sér að vera ritstjóri verksins og hefði jafnframt á hendi ritun þess að meginhluta, eins og fram kom í svörum Sólveigar Pétursdóttur forseta Alþingis við fyrirspurn Marðar Árnasonar þingmanns í október síðastliðnum. Mörður kallaði Þorstein byrj- anda í fræðiskrifum í umræðum á þingi og spurði hvort Alþingi ætl- aði sér að vera eins konar endur- menntunarstöð fyrir fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins. „Þorsteinn tekur þarna rétta ákvörðun og hefði átt að taka hana fyrr,“ segir Mörður Árnason nú. Sólveig Pétursdóttir segir að málið hafi verið rætt á fundi forsætisnefndar á mánudag og verkinu verði haldið áfram. „Ég hef ákveðið að skipa dr. Þorstein Magnússon, stjórnmálafræðing og forstöðumann á skrifstofu Alþingis, í ritnefndina, en áður höfðu verið valin í hana Ragn- hildur Helgadóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Helgi Skúli Kjartansson, prófessor við Kennaraháskóla Íslands.“ Sólveig segir að áfram sé lagt upp með að verkið verði heild- stætt. Ritnefndin komi saman á næstunni og skipti með sér verkum. johannh@frettabladid.is Þorsteinn Pálsson hættir við söguritun Sundurþykkja og deilur um þá ákvörðun forseta Alþingis að fá Þorstein Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, til að rita sögu þingræðis á Íslandi urðu til þess að hann sagði sig frá verkinu. Rétt ákvörðun, segir Mörður Árnason. ALÞINGISMENN AÐ STÖRFUM Gagnrýni á Alþingi varð til þess að Þorsteinn Pálsson hætti við að taka að sér ritstjórastörfin. MÖRÐUR ÁRNASON ÞORSTEINN PÁLSSON SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 20.12.2005 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 62,96 63,26 Sterlingspund 111,24 111,78 Evra 75,38 75,8 Dönsk króna 10,11 10,17 Norsk króna 9,382 9,438 Sænsk króna 8,026 8,074 Japanskt jen 0,5404 0,5436 SDR 90,7 91,24 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 105,9612 NEW YORK, AP Engar jarðlestir eða strætisvagnar gengu í New York í gær vegna verkfalls starfsmanna a l men n i ngssa mgöng uker f is borgarinnar. Milljónir íbúa og gesta borgarinnar á háannatíma jólaverslunarinnar urðu því að finna aðrar leiðir til að komast leiðar sinnar. Michael Bloomberg borgar- stjóri gekk sjálfur, ásamt þúsund- um annarra, yfir Brooklyn-brúna til vinnu sinnar í ráðhúsinu á Manhattan. Hann sagði að verk- fallið kostaði borgina sennilega um 400 milljónir dollara á dag. Þetta er fyrsta verkfall almenn- ingssamgöngustarfsmanna í New York síðan árið 1980. Líklegt þykir að bráðabirgðalög verði sett á verkfallið nú. ■ Verkfall í New York: Samgöngur lamaðar GENGIÐ TIL VINNU Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, gengur í fylkingar- brjósti fyrir þúsundum manna yfir Brooklyn-brúna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AUSTURRÍKI, AP Borgarstjóri Graz í Austurríki, heimabæjar Arnolds Schwarzenegger, skammaði í gær borgarstjórnarmenn sem höfðu reitt Schwarzenegger til reiði með því að gagnrýna að hann skyldi ekki hafa beitt rík- isstjóravaldi sínu til að náða dauðadæmdan fanga sem tekinn var af lífi í Kaliforníu í fyrri viku. Schwarzenegger brást í fyrra- dag við þessari gagnrýni með því að endursenda heiðursviður- kenningu sem honum var veitt af borgarstjórninni árið 1999 og banna borgaryfirvöldum að nota nafn sitt í kynningarskyni. Nafn hans skyldi líka fjarlægja af íþróttaleikvangi í borginni sem kenndur er við hann. Borgarstjórinn, Siegfried Nagl, sakaði borgarfulltrúa jafnaðarmanna, græningja og aðra, sem beitt hefðu spjótum sínum að Schwarzenegger, um að standa fyrir „neyðarlegum farsa“. Hann fullyrti að borg- arbúar væru stoltir af hinum heimsfræga syni bæjarins. Nagl sagðist í gær myndu senda Schwarzenegger bréf þar sem hhann segði honum að vin- sældir hans í borginni stæðu óhaggaðar. - aa Arnold Schwarzenegger gramur heimaborg sinni í Austurríki: Skilar heiðursviðurkenningu SCHWARZENEGGER-LEIKVANGURINN Í GRAZ Kaliforníuríkisstjórinn vill sjá nafn sitt fjarlægt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.