Fréttablaðið - 21.12.2005, Side 34

Fréttablaðið - 21.12.2005, Side 34
[ ] GJAFAKORT Í JÓLAPAKKANN HENNAR Kringlunni • Sími 533-2290 Make it better. 100% vatnshelt á alla fjölskylduna Frábær jólagjöf Pétur Þór sýnir verk sín í mublu Nýbýlavegi 18 Meðal þeirra sem ekki halda hefðbundin jól í ár eru Axel Jónsson útgerðarmaður á Höfn og fjölskylda hans sem er á leið í fjórtán daga ferð til Andorra. „Við ætlum að renna okkur á skíðum um jólin,“ segir Axel kampakátur og hlakkar augljóslega til. Kveðst hafa fengið þessa flugu í höfuðið fyrir þremur vikum og farið að „veltast eitthvað“ á netinu. „Við slógum upp skíðaferðum í Google og þá kom Andorra upp. Kort yfir svæðið og allar upplýsingar svo við pöntuðum flug til London og þaðan til Barcelóna. Þaðan er þriggja tíma ferð upp til Andorra. Það hefði verið miklu styttri akst- ur ef við hefðum flogið til Parísar frá London og þaðan til Tolouse. En við vorum búin að panta áður en við föttuðum það. Látum bara aka okkur um Spán í rútu!“ segir Axel og hlær dillandi hlátri. Axel og kona hans Fanney Þór- hallsdóttir eiga þrjú stálpuð börn, Þórhall, Sigríði og Jón, sem öll fara með. En þar sem Hornafjörður er með snjóléttustu svæðum lands- ins er Axel inntur eftir skíðaiðkun fjölskyldunnar til þessa. „Ég steig á skíði í fyrsta skipti í fyrra, konan er viðvaningur líka enda úr Eyjum og krakkarnir hafa lítið kynnst þessari íþrótt. En við fórum í skíða- ferð til Austurríkis í fyrravetur og það er albesta frí sem við höfum farið í. Það var svo gaman. Alltaf nóg að gera. Maður vaknaði klukk- an átta, fór í morgunmat og var svo límdur á lyftuhurðina klukkan níu. Svo var komið heim klukkan fimm til sex og maður var sofnað- ur klukkan níu, alveg búinn. Þegar maður kann svona lítið þá fer svo ofboðsleg orka í þetta. Allt sem tiltækt er,“ segir Axel og bætir við skellihæjandi. „Ég var kallaður Fúsi skíðafantur fyrri vikuna og Axel Tomba þá seinni!“ Hann segir fjölskylduna ætla að leigja skíði þegar komið sé á áfangastað en hvað um jólamatinn. Verður hann með í farteskinu til Andorra? „Bara hangikjöt. Það er of mikil áhætta taka rjúpurnar með. Þær gætu verið hirtar af okkur og eru alltof dýrmætar til þess. Samt er ég ósáttur við að skilja þær eftir því mér finnst engin jól nema hafa rjúpur. Það verður bara að éta þær á þrettándanum!“ gun@frettabladid.is Fúsi skíðafantur fyrri vikuna og Axel Tomba þá seinni Axel og dóttirin Sigríður hlakka til að verja jólunum í Andorra ásamt hinum í fjölskyldunni. Jólin eru alveg að koma. Þeir sem eiga ennþá eftir að kaupa einhverjar jólagjafir ættu að fara að huga að því. Það er ekki gott að gera það alveg á síðustu stundu því þá er meiri hætta á því að einhver gleymist. Feðginin taka örugglega miklum framförum á skíðum um jólin. Viltu veita þér og þínum forskot í námi eða starfi? Minnum á hin vinsælu gjafabréf Hraðlestrarskólans “Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Á skipulegan og skjótvirkan hátt er hægt að margfalda lestrarhraða án þess að það bitni á skilning. Samfara lestri er náms- tækni sem nýtir aukin afköst lesturs og tryggir að það sem lesið er gleymist ekki.” Þorvaldur H., 24 ára lögfræðinemi. Gjafabréfið gildir á eitthvert þeirra námskeiða sem haldið verður 2006 og hverju gjafabréfi fylgir 3.000 kr. inneign inn á bók frá JPV-útgáfu. Hægt er að panta gjafabréfið í síma 586-9400 og á www.h.is ...næsta námskeið 5. janúar 2006 » FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ ALLA DAGA FÖ ST UD AG UR LA UG AR DA GU R SU NN UD AG UR M ÁN UD AG UR ÞR IÐ JU DA GU R M IÐ VI KU DA GU R FI M M TU DA GU R 5 DÁLKAR MÁ BIRTAST HVAÐA DAG SEM ER KUBBAR TIL UPPFYLLINGAR Í SMÁAR SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR » » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR » FA STU R » PUNKTUR BIRTUkubbar-AUGL TIL UPPF 6.10.2005 20:43 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.