Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 39
Miðvikudagur 21. desember 2005 – 38. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 F R É T T I R V I K U N N A R Novator með tilboð Félagið Novator sem er í eigu Björgólfs Thors hefur gert tilboð í þrettán prósenta hlut í fjarskiptafyrir- tækinu Netia. Novator stefnir á að eignast 25 prósenta hlut í félaginu Dagsbrún íhugar kaup Dagsbrún móðurfélag 365 miðla íhugar nú kaup á fjölmiðlafélag- inu Orkla media sem gefur meðal annars út Berlingske Tidene, Aftenposten og BT. Fjórða stærst Actavis er orðið fjórða stærsta fyrirtækið í sölu samheitalyfja. Actavis náði þessu marki þegar lyfjafyritækið Alpharma var keypt. Yfirlýst stefna fyrirtækisins er að vera á meðal fimm stærstu fyrirtækj- anna sem selja samheitalyf. Sæplast flytur Sæplast hefur flutt trollkúluframleiðslu sína til Danmerkur. Ástæða flutningsins er óhagstæð gengisþróun. OR stækkar Orkuveitan tekur við rekstri fráveitna fjögurra sveitarfélaga um næstu áramót. Alfreð Þorsteinsson segir að hol- ræsagjald muni lækka um tíu prósent í kjölfarið. KB kaupir FIH Erhvervsbank dótturfélag KB banka hefur keypt 25 prósent hlut í félaginu Icopal. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu þakplatna. Afleiðusamningur í athugun Yfirtökunefnd hefur óskað eftir gögnum vegna afleiðusamnings- ins sem gerður var vegna kaupa Landsbankans í Oddaflugi dótt- urfélagi FL Group Kevin Stanford, einn stofnenda Karen Millen og einn eigenda Mosaic Fashion's hefur ásamt Arev, fyrirtæki í eigu Jóns Scheving Thorsteinsson, keypt hlut í bresku tískukeðjunni Ghost. Ghost er keðja sem nýtur mikillar virðingar fyrir hágæða tískuhönnun. Times fjallaði um kaupin í gær og segir Stanford og Arev hafa keypt þrjátíu prósenta hlut á ríflega fimm hundruð milljónir króna. Ghost er óskráð einkahluta- félag og samkvæmt heimildum Markaðarins horfa nýir hluthafar til þess að áhersla stofnendanna hafi verið á hönnun og tísku og ýmsir möguleikar liggi í að þróa viðskiptaþátt starfseminnar. Kevin Stanford hefur tekið þátt í fjárfestingum með Baugi, en einnig náð góðum árangri í skammtímafjárfestingu á bresk- um smásölumarkaði. Þannig hagnaðist hann um á annað hundrað milljónir með kaup og sölu á hlutabréfum í Marks og Spencer. - hh Stanford kaupir í Ghost Magnús Kristinsson, fjárfestir frá Vestmannaeyjum, hefur keypt stærsta bílaumboð á Íslandi, P. Samúelsson sem er umboðsaðili Toyota og Lexus. Það er Smáey, fjárfestingarfélag í eigu Magnúsar og fjölskyldu, sem stendur að kaupunum. Magnús tekur við félaginu fullur eftirvæntingar: "Ég væri ekki að þessu nema ég væri bjartsýnn framtíðina og sæi tækifæri til að hagnast á þessum kaupum." Toyota hefur verið söluhæsta bílategundin á Íslandi síðan 1988 og hvergi er markaðshlutdeild Toyota meiri. "Ætli maður verði ekki bara að Toyota-væða alla þjóðina," segir hann aðspurður um hvort hægt sé að auka markaðshlutdeildina frekar. Á síðasta ári seldi umboðið um 3.500 Toyota-bifreiðar en fjöldi seldra bifreiða verður vel yfir fjögur þúsund á þessu ári. Seljendur eru Páll Samúelsson og fjölskylda sem hafa starfað við fyrirtækið í 35 ár. Starfsmenn félagsins eru um 150 talsins. Kaupverð fæst ekki uppgefið en samkvæmt heimildum voru eignir félagsins metnar á yfir tvo milljarða króna.- eþa Magnús festir kaup á Toyota Selja yfir fjögur þúsund bíla á ári. 35 ára starfi Páls Samúelssonar lokið. MAGNÚS KRISTINSSON KAUPIR TOYOTA Útgerðarmaður og stór hluthafi í Straumi sem kemur nú einnig að bílasölu. Björgvin Guðmundsson skrifar "Á undanförnum mánuðum hefur fleiri málum verið vísað til Fjármálaeftirlitsins en við höfum viljað sjá," segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Tengjast flest málanna viðskiptum inn- herja með bréf í skráðum félögum. Undanfarna þrjá mánuði hefur starfsfólk Kauphallarinnar bent Fjármálaeftirlitinu á sex tilvik sem eru nú til frek- ari skoðunar hjá eftirlitinu. Aðilar málsins eru ekki alltaf látnir vita til að spilla ekki fyrir rannsókn- arhagsmunum. Niðurstöðu er að vænta snemma á næsta ári, segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. "Málin tengjast flest innhverjaviðskiptum. Þá er það venjulega í kjölfar einhverra óvenjulegra verð- hreyfinga sem hafa orðið með hluti í félögum, til dæmis fyrir birtingu uppgjöra eða tilkynninga um mikilvæga samninga. Þess vegna hafa vaknað spurn- ingar hvort gætt hafi verið að meðferð upplýsinga í aðdraganda þessara tilkynninga. Það er gríðarlega mikilvægt að tryggja með réttum hætti að upplýsing- ar séu í þröngum hópi," segir Þórður. Tilvikum sem þessum hafi fjölgað núna í ár. "Þetta tengist því að hluta að það hefur verið mikið að gerast á markaðnum ¿ miklar verðbreyt- ingar. Engu að síður leggjum við mjög mikla áherslu á að menn vandi til verka svo ekki sé hætta á að við- skiptahættir séu með þeim hætti að þeir grafi undan markaðnum," segir forstjóri Kauphallarinnar. Rannsókn á innherjaviðskiptum er á verksviði Fjármálaeftirlitsins. Kauphöllin sendir til eftirlitsins mál sem vekja upp spurningar og byggjast á gögnum úr viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Fjármálaeftirlitið rannsakar málin frekar og beitir stjórnvaldssektum ef ástæða þykir til. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að samkvæmt nýrri gagnsæisstefnu eftirlitsins séu upplýsingar um ástæður stjórnvaldssekta birtar á heimasíðu. Fari svo verði niðurstöður í málum, sem komu til með- ferðar eftir aðalfund í nóvember, birtar eftir áramót. Kærufrestur þurfi að líða, sem er þrír mánuðir. "Ef menn hafa ekki verið að vanda sig nógu mikið í tengslum við viðskipti er mikilvægt að það komi upp á yfirborðið núna. Það þarf að gefa aðilum á mark- aðnum skýr skilaboð um að innhverjaviðskipti eru ekki í nægilega föstum skorðum," segir Þórður. "Fjármálaeftirlitið hefur heimild til að beita stjórn- valdssektum vegna brota á ákvæðum um rannsóknar- og tilkynningarskyldu innherja og skil á innherjalist- um," sagði forstjóri Fjármálaeftirlitsins á aðalfundi í síðasta mánuði. Tólf mál hafi endað með stjórnvalds- sektum í fyrra. Þau voru hins vegar ekki gerð opinber þar sem Fjármálaeftirlitið hafði ekki tekið upp gagn- sæisstefnuna, sem nú er unnið eftir. Á hún að veita markaðsaðilum aukið aðhald. Fleiri innherjamál send til Fjármálaeftirlitsins Mikil viðskipti og örar verðbreytingar félaga í Kauphöll Íslands hafa sett viðvörunarbjöllur oft af stað. Júlíus Jón Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja (HS), ætlar að lækka raforku til viðskiptavina um áramótin. Hann segir að búið hafi verið að ákveða það þegar Orkuveita Reykjavíkur dreifði miða í hús í Hafnarfirði þar sem auglýst var lægri gjaldskrá hjá þeim en HS, en samkeppni í raforkusölu á að hefjast um áramót. Júlíus segir reyndar að ekki sé allt tilbúið og fresta eigi samkeppni milli raforkuframleiðenda um allt að þrjá mánuði. Prufukeyra eigi nýja kerfið fyrst. Aðspurður hvort hann ætli að svara í sömu mynt og auglýsa ódýra raforku í Reykjavík segir hann enga ákvörðun hafa verið tekna um það. Það sé ekki mikið upp úr slíku að hafa og ekki verði farið í mikla auglýsingaherferð. Allir sem vilja séu samt velkomnir í viðskipti við HS. - bg Keppa um kaupendur Ítalía Seðlabankastjóri Ítalíu hættir 4 Samkeppnishæfur sjávarútvegur Meira frelsi betra en minna 10-11 Einkaneyslan Neyslufyllerí í rénun 4 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Gott til síðasta dropa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.