Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 51

Fréttablaðið - 21.12.2005, Qupperneq 51
MARKAÐURINN A U R A S Á L I N 21. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR12 FISKVÉLAR EHF. „Verkefnastaða okkar er þannig í dag að framleiðslan þyrfti að vera fjórfalt meiri en það sem hún er til að anna eftirspurn,“ segir Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri. Fyrirtækið Fiskvélar var stofnað árið 1994 af Elliða Hreinssyni. Í byrjun starfaði Elliði einn í 30 fermetra húsnæði við viðgerðir og endurbætur á fiskvinnsluvélum. Eftir tveggja ára starfsemi voru starfsmenn orðnir tveir í 150 fermetra húsnæði. En síðan þá hefur fyrirtækið stækkað hröðum skrefum. Núverandi húsnæði Fiskvéla er 500 fermetrar og starfsmenn eru í dag 14 talsins HRAÐUR VÖXTUR Árið 1999 urðu ákveðin straumhvörf í rekstrinum. Viðskiptavinir voru jafnan með ýmsar séróskir sem ekki var hægt að sinna með tækjabúnaði sem Fiskvélar réðu yfir á þessum tíma. Þetta varð til þess að fyrirtækið fór út í að smíða fiskvinnsluvélar frá grunni til að geta mætt kröfum viðskiptavinanna sem best. Til að þessar fyrirætlanir gengju upp þurfti að fá töluvert fé inn í reksturinn Erfiðlega gekk að fá lán, bankar voru óviljugir til að lána til iðnreksturs. Það var svo fyrir tilviljun að Jón Helgi Guðmundsson, einn af eigendum Byko, kom til sögunnar og bauðst til að fjárfesta í félaginu. Á svipuðum tíma kom Þorsteinn Vilhelmsson, einn af stofnendum Samherja, inn í fyrirtækið með fjármagn. VERKEFNASTAÐA GÓÐ Síðan þá hafa þessir tveir aðilar komið með meira fjármagn inn í fyrirtækið sem er enn í hröðum vexti og stór hluti rekstrartekna hefur verið notaður til fjárfestinga. „Verkefnastaða okkar er þannig í dag að framleiðslan þyrfti að vera fjórfalt meiri en það sem hún er til að anna eftirspurn,“ segir Elliði Hreinsson, framkvæmdastjóri Fiskvéla. Elliði ber hitann og þungann af þróun vélanna og aðspurður segist hann vera með fullt af hugmyndum sem eigi eftir að útfæra og þróa. Byltingin í fiskvinnsluvélum hefur verið hröð á síðustu árum. Hver fiskur sem rennur í gegn um vélarnar er metinn af mörgum skynjurum og sér tölva svo um að vinna úr upplýsingunum. Stærð og lögun fisksins er metinn og hann skorinn með tilliti til hæstu mögulegrar nýtingar. Fiskuvinnsluvélar þurfa að vera fljótvirkar, þægilegar að vinna við og bilanatíðni verður að vera lág. Sérstaklega skiptir það máli fyrir vinnsluskip sem þurfa kannski að sigla margar dagleiðir ef eitthvað bilar og varahluta er þörf. Síðast en ekki síst verða vélarnar að ná góðri nýtingu úr hráefninu. ÁHERSLA Á FORVINNSLU Fyrirtækið hefur lagt áherslu á forvinnslu sjárvarafurða fyrir snyrtingu og pökkun. „Framleiðsla okkar skarast lítið við framleiðslu Marel þar sem við einbeitum okkur að forvinnslu en þeir eru meira í að bjóða lausnir sem fullvinna afurðir,“ segir Elliði. Þær vélar sem fyrirtækið framleiðir eru hausninga-, flökunar- og brýningavélar. A ð a l s a m k e p p n i s a ð i l i Fiskvéla er þýska stórfyrirtækið Baader en þar vann einmitt Elliði í sjö ár áður en hann fór út í eigin rekstur en ætla má að þar hafi margar hugmyndir fæðst. „Hausningarvélar frá okkur eru nú í 40 prósent frystitogara landans,“ segir framkvæmdastjórinn. Í samanburði sem norska fiskistofan gerði á hausurum Fiskvéla og Baader reyndist hausari Fiskvéla ná tveggja prósenta betri nýtingu. „Vélarnar eru fljótar að borga sig upp sem er ein af meginástæðum fyrir vinsældum þeirra.“ ÚTFLUTNINGUR EYKST Vægi íslenska markaðarins í veltu félagsins fer sífellt minnkandi með ári hverju. „Salan á Íslandi er áttatíu til hundrað milljónir á ári og hefur verið á þessu bili undanfarin ár,“ segir Elliði. Mikil söluaukning hefur orðið erlendis og löndin sem kaupa framleiðslu Fiskvéla fer fjölgandi. Aðspurður segir Elliði að lítið fari fyrir markaðssetningu, á Íslandi starfar aðeins einn sölumaður hjá Fiskvélum og tveir í Noregi auk þess sem tekið er þátt í sjávarútvegssýningunni hér á Íslandi og sýningu sem haldin er í Brussel ár hvert. Sýningin í Brussel er að sögn Elliða líklega sú alþjóðlegasta af þeim sýningum sem haldnar eru í heiminum. „Heimur þeirra sem lifa og hrærast í sjávarútvegnum er í raun lítill, þar eru miklar tengingar á milli aðila. Markaðsstarf okkar byggist að stórum hluta til á gæðum vörunnar, það er fljótt að spyrjast út ef einhver fiskvinnluvél skilar betri vöru og nýtingu en aðrar vélar á markaðinum.“ Sterkt gengi Forsvarsmenn Fiskvéla hafa ekki farið varhluta af sterku gengi krónunnar frekar en aðrir útflytjendur. Dollarinn hefur farið hæst í 110 krónur síðan 2001 og lægst í 60 krónur. „Rekstrarumhverfið hefur ekki verið gott undanfarið hjá þeim sem eru í útflutningi, við verðum einnig varir við að viðskiptavinir okkar innanlands hafa haldið að sér höndum og eru lítið að endurnýja tæki sín í þessu árferði. Viðskiptavinir Fiskvéla senda meirihlutann af sínum afurðum í útflutning og hafa því þurft að leita leiða til að lækka kostnað til dæmis með að fresta endurnýjun vinnsluvéla. Hátt gengi hittir Fiskvélar þessvegna fyrir á tveimur vígstöðvum,“ segir Elliði. Fyrirtækið býr til stóran hluta af þeim pörtum sem fara í fiskvinnsluvélarnar, einnig hefur verið notast við aðila innanlands. Mótorar, iðntölvur og aðrir rafmagnshlutir koma hins vegar erlendis frá. BJART FRAMUNDAN Fiskvélar keyptu nýlega fyrirtækið Tækniskurð ehf. og fylgdu tveir starfsmenn með því. Tækniskurður verður rekið áfram sem sér eining. „Kaupin komu þannig til að Tækniskurður framleiddi fyrir okkur mikið af stórum hlutum fyrir vélar fyrirtækisins,“ segir Elliði. Rekstur tækniskurðar snýst fyrst og fremst í kringum vél sem sker nánast hvaða efni sem er með mikilli nákvæmni. Vélin sker efnið með örmjórri vatnsbunu undir miklum þrýstingi með mikilli nákvæmni. „Það styttist í að farið verður í að vinna í vöktum á vatnskurðarvélina til að anna því að framleiða fyrir Fiskvélar og aðra viðskiptavini og dugir varla sólarhringurinn til.“ Framtíðarhorfur eru bjartar, velta fyrirtækisins hefur vaxið hratt á síðustu árum og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Fyrirtæki í hröðum vexti Elliði Hreinsson stofnandi og einn af eigendum Fiskvéla ehf. settist niður með Ágústi Agnarssyni og fræddi hann um innviði fyrirtækisins. Fiskvélar Stofnað 1994 af Elliða Hreinssyni Starfsmenn 14 Áætluð velta á árinu 170 milljónir Framleiðir fiskvinnsluvélar, sérhæfir sig forvinnslu, þ.e. hausun og flökun F Y R I R T Æ K I Aurasálin man þá tíð þegar jólin voru hátíð ljóss og friðar. Þetta, eins og svo margt annað í íslensku samfélagi, hefur breyst síðan við gengum í EES og bankarnir voru einkavæddir. Nú eru jólin fyrst og fremst hátið góss og ófriðar. Vinir Aurasálarinnar sem flest- ir vinna í bönkum eða eru fag- fjárfestar hafa haft orð á því undanfarið að erfitt sé að velja jólagjafir fyrir maka sína, börn og vini. Í fyrra var vinsælt að gefa sett af Plasma sjónvörpum; eitt 50 tommu í stofuna, tvö 30 tommu í svefnherbergi hjónanna, eitt 30 tommu per barnaherbergi, tvö 21 tommu í eldhúsið, eitt í sturtuklefann, eitt í loftið fyrir ofan baðið, eitt við heitapottinn, eitt fyrir framan klósettið og eitt fyrir aftan (svo karlmenn geti horft á meðan þeir pissa). En nú eru komnir nýir tímar og kröfurnar aukast. Jólasveinninn á í stökustu vandræðum með að gefa börnum hástéttarinnar í skóinn, vinælt að gefa fartölvur og annað smálegt. Eitt barnið, sem hafði hegðað sér einstaklega vel, fékk skjalatösku með millj- ón Bandaríkjadölum í skóinn um helgina - og prísaði Jólasveinninn sig sælan hversu gengi krónunn- ar er sterkt um þessar mundir. En á aðfangadag er mikilvægt að enginn verði fyrir vonbrigð- um og ekkert klikki. Einn vinur Aurasálarinnar í fjármálageiran- um ætlaði að gefa konunni sinni pels en hætti við þegar hann fann engan sem kostaði meira en tvær milljónir. Hann ákvað þá að gefa henni tvo pelsa en til þess að virðast ekki of nískur ætlar hann að láta afhenda hann á nýrri snekkju sem verður lagt fyrir utan sumarhöll þeirra hjóna á grísku eyjunni sem þau eiga í sameiningu með tveimur vinum sínum úr viðskiptalífinu. Ein vinkona Aurasálarinnar ætlar að gefa manninum sínum flug- braut og litla flugvél þannig að hann geti flogið beint úr sumar- bústaðnum sínum í Borgarfirði á fundi í London. Þetta er vel heppn- uð gjöf að mati Aurasálarinnar enda er hún bæði praktísk og falleg. Og það er varla hægt að setja út á hina nýríku Íslendinga ef þeir leggja áherslu á að gefa hverjum öðrum gagnlega hluti sem hugsanlega koma til með að spara tíma og þar með auka verðmætasköpun í samfélaginu. Það mun svo skila sér í bættum hag annarra stétta - einkum leik- skólakennara. Jólin eru fallegur árstími og þá er mikilvægt að fólk haldi aftur af sínum lægstu hvötum, eins og öfund. Meistarar hins alþjóð- lega viðskiptalífs þurfa ekki að skammast sín fyrir að gefa sínum nánustu gjafir í hlutfalli við eigin efnahag og kaupgetu. Höfum í huga orð gamla heimspekingsins að allir eigi að vinna eftir getu og uppskera eftir kaupgetu. Jólagjafir í uppsveiflu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.