Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 56

Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 56
H A U S MARKAÐURINN 17MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Vorum að fá í sölu 138,4 fm iðnaðarhúsnæði auk 120 fm millilofts. Snyrtilegt pláss sem getur losnað fljótlega. Verð 17,5 milljónir. Glæsilegt fullbúið 215,9 fm verslunarhúsnæði á þessum eftirsótta stað. Stefnt er að sölu á eigninni, en leiga kemur til greina. Verð 43 milljónir. Heil rishæð í þessu vandaða húsi í miðbænum. Eignin er tveir eignahlutar en selst sem einn. Var innréttað sem tannlæknastofur, en er nú nýtt sem íbúðir. Verð 21,5 milljónir. Glæsilegt nýtt 546 fm atvinnuhúsnæði til sölu/leigu. Laus strax. Verð: Tilboð. Runólfur Gunnlaugsson lögg. Fasteignasali Skrifstofur okkar eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Sími: 565 8000 Netfang: hofdi@hofdi.is Vegna miki l lar sölu undanfar ið vantar okkur e igni r á skrá strax - skoðum og metum atvinnuhúsnæði samdægurs. Trönuhraun 3 Fjarðargata 13-15 Barónsstígur 5 Flatahraun 3 Orkuveita Reykjavíkur tekur við rekstri fjög- urra fráveitna sveitarfélaga á athafnasvæði fyr- irtækisins frá og með áramótum. Um er að ræða Fráveitu Reykjavíkur, Fráveitu Akraness, Fráveitu Borgarbyggðar og Fráveitu Borgarfjarðarsveitar, en þessi sveitarfélög eru eigendur Orkuveitu Reykjavíkur. Forsvarsmenn OR og sveitarfélaganna undirrit- uðu samning þessa efnis í höfuðstöðvum orkuveit- unnar á fimmtudaginn í síðustu viku. OR tekur yfir fráveitur KEÐJAN MYNDUÐ MILLI SVEITARFÉLAGANNA Alfreð þorsteinsson og Guðmundur þóroddsson, frá OR, mynda hér handabandskeðju með fulltrúum sveitarfélaganna. Er slíkt handaband orðin að mjög skemmtilegri hefð við undirritun stórra samninga. SORPA hefur undanfarin þrjú ár lagt góðum málum lið í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Í ár rennur jólakortastyrkur SORPU til þriggja athvarfa fyrir geðfatlaða á höfuðborg- arsvæðinu. Athvörfin þrjú, Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Lækur í Hafnarfirði eru öll rekin af Rauða krossi Íslands. Markmið athvarfanna eru meðal annarra að auka lífsgildi geðsjúkra, að rjúfa einangr- un þeirra við umhverfi sitt, að draga úr fordómum og að efla þekkingu sem flestra á mál- efnum geðsjúkra. Gestir koma þangað að eigin frumkvæði og er um breiðan hóp að ræða, karla og konur á aldrinum 20-70 ára. Athvörfin safna pening- um í sérstaka ferðasjóði sem nýttir eru til ferðalaga gesta athvarfanna innanlands sem utan. Styrkur SORPU rennur í ferðasjóði athvarfanna. Í ferðasjóð geðfatlaðra FRÁ AFHENDINGU. Frá vinstri talið Sigríður B. Einarsdóttir, SORPU, Rebekka Bjarnadóttir og Björg Haraldsdóttir frá Vin, Jóhanna Bragadóttir og Þórdís Guðjónsdóttir frá Læk, Björg Fríða, Björk Guðmundsdóttir og Hafdís Matthíasdóttir frá Dvöl og Ögmundur Einarsson, framkvæmdastjóri SORPU.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.