Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 58

Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 58
MARKAÐURINN Viðbrögð Argentínumanna við breyttum tímum voru að setja á innflutningshöft og niður- greiða útflutning landbúnað- arvara, nokkuð sem þeir hefðu betur látið ógert. Argentínskt athafnalíf hefur síðan einkennst af uppdráttarsýki sem rekja má til verndarstefnunnar og landsframleiðsla hefur staðnað. Efnahagsleg velmegun er nú óralangt frá því að líkjast því sem tíðkaðist í löndunum sem Argentínu var líkt við í upphafi síðustu aldar. Það er óþarfi að tíunda að margar þjóðir rómönsku Ameríku nutu takmarkaðs lánstraust á alþjóða- mörkuðum við upphaf tíunda ára- tugarins en vantaði hins vegar sárlega framkvæmdafé, sem er óheppileg blanda. Argentína var þar engin undantekning. Skattstofnar landsins eru ákvaf- lega kvikir - auk þess sem skatt- svik og undanskot eru regla þar á bæ frekar en undantekning. Í byrjun tíunda áratugarins freist- uðu stjórnvöld landsins þess að fjármagna útgjöld ríkisins með peningaprentun og verðbólgu- skatti, sem leiddi til Ísland og alþjóðaviðskipti óðaverðbólgu og lífskjörum hrakaði ár frá ári. .Vín- og kjötútflutningur Argentínumanna á í samkeppni við útflutning Brasilíu og Chile á alþjóðamarkaði og ráðstafanir sem gerðar voru á gengisfyrirkomulagi þessara landa í kjölfar gjaldmiðlakrepp- unnar árið 1999 juku enn á vanda Argentínu. Meðal annars má rekja skipbrot Mercosurviðskip tabandalagsins til óánægju ráðamanna í Argentínu með þá ráðstöfun Brasilí að láta gengi realsins fljóta á gjaldeyrismarkaði, en það hjó enn í knérunn argent- ínsks útflutnings á erlendum mörkuðum. Og enn syrti í álinn: árið 2001 tóku erlendir lánardrottnar að heimta stöðugt hærri vexti af lánum Argentínumanna af ótta við að illa færi og að lokum drógu þeir að sér hendur í útlán- um til landsins af ótta við algert hrun efnahagslífssins. Eðli máls samkvæmt leiddu þessi sinna- skipti til fjárþurrðar hjá hinu opinbera auk þess sem fyrirtæki landsins gátu ekki fleytt sér yfir erfitt tímabil með erlendri lán- töku. Ári síðar var Argentína að þrotum komin - landið rambaði á barmi gjaldþrots, sem stjórnvöld lýstu opinberlega yfir í desem- bermánuði 2002. Síðasta erlenda lán til Argentínumanna (sem var frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum) var veitt í september 2002 eftir að fjármálaráðherra landsins hafði beitt fyrir sig hrakspám um að lýðræði í álfunni væri á undanhaldi, til að villa um fyrir Paul O'Neill í bandaríska fjár- málaráðuneytinu. Í lok árs 2002 komst argentíska ríkið að lokum í þrot og kynntur var til sögunn- ar fjöldi efnahagsaðgerða sem einkenndust af úrræðaleysi og lýðskrumi. 19MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 -mest lesna viðskiptablaðið ÁRIÐ GERT UPP! AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ MARKAÐURINN 28. desember verður sérstaklega spennandi blað. Helstu forkólfar viðskiptalífsins fara yfir árið 2005 og horfa til þess næsta. Maður ársins og bestu viðskiptin valin, samkvæmt leynilegri kosningu meðal sérfróðra manna úr viðskiptalífinu. Þetta er frábært tækifæri fyrir auglýsendur til að ná til lesenda Markaðsins, en samkvæmt nýjustu fjömiðlakönnun Gallup er Markaðurinn mest lesna viðskiptablaðið á Íslandi. Áhugasamir hafið samband við Jónínu Pálsdóttir í síma 550 5817 netfang jonina.palsdottir@365.is eða Ingibjörgu Gísladóttir í síma 550 5827 netfang ingibjorg.gisladottir@365.is Markaðurinn kemur út með Fréttablaðinu alla miðvikudaga í 107.000 eintökum um allt land. Lestur 25-54 ára stjórnenda, atvinnurekenda, sérfræðinga, skrifstofufólks og fagfólks hjá hinu opinbera. Skv. fjölmiðlakönnun Gallup, okt. 2005. M Á L I Ð E R Ófarir Argentínumanna vegna verndar Ein dæmisagan úr skýrslu um G 10 fjallar um þær ófarir sem Argentína lenti í kjölfar aukinna niðurgreiðslna og innflutningshafta Á síðustu árum hefur umræða um sanngjörn viðskipti (e. fair trade) farið vaxandi á kostnað umræðunnar um frjáls viðskipti (e. free trade). Fæstir gera nokkurn greinarmun á hugtök- unum tveimur og slá þeim jafn- vel saman! Þannig eru neytendur hvattir til að kaupa kaffibaunir frá litlum framleiðendum til að styðja við bakið á sanngjörn- um viðskiptum í stað þess að fá nýmalaðar baunir úr kvörnum alþjóðafyrirtækja, jafnvel þótt fyrrnefnda kaffið sé dýrara fyrir neytendur og jafnvel af lakari gæðum. Hugsanavillan í þessari rök- semd er síður en svo augljós: stórir framleiðendur eru skil- virkir og greiða hæfu vinnuafli hærri laun en óskilvirkir fram- leiðendur. Ef smáir framleiðend- ur væru skilvirkir í framleiðslu sinni fengju þeir greitt sam- kvæmt framleiðni sinni. Sökum þessa er skynsam- legast fyrir þá Vesturlandabúa sem vilja auka hag þeirra verst settu að beina viðskiptum sínum í þá átt þar sem framleiðnivöxtur er líklegastur enda munu laun verkamanna hækka samfara aukinni framleiðni þeirra. Úr skýrslu hagfræðinganna um G10 sem unnin var fyrir RSE Sanngjörn viðskipti - eða frjáls viðskipti? SJÁLFSHJÁLP Frjáls viðskipti kynnu að hafa mun betri áhrif á efnahag fátækra ríkja en þróunaraðstoð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.