Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 79

Fréttablaðið - 21.12.2005, Page 79
 21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR42 Stóra svið SALKA VALKA Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 WOYZECK Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 21 KALLI Á ÞAKINU Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Su 15/1 kl. 14 CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Nýja svið/Litla svið ÞRJÁR SYSTUR e. TSJEKHOV Nemendaleikhúsið, aðeins í desember Þr 27/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 MANNTAFL Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20 Síðustu sýningar ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 29/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING BELGÍSKA KONGÓ SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í JANÚAR Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 MIÐAV. 2.500-GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST ������������������������������� ���������������������������������������� �������������������� �������������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������ ������������������������������� ��������������������������������������������������������������������������������������������� ������������ �������������������������������������������������� ��������� ���������������� ������������������������ ����� ���������������� ������� ��������������������������������������������� ������� �������������������������� ������������ �������������� �� ����������� Fim. 29. des. örfá sæti laus Fös. 20. jan. Lau. 21. jan. Gleðileg jól! [ BÆKUR ] UMFJÖLLUN Skáldsagan Djöflatertan segir frá hefndaraðgerðum hóps ungra kvenna sem taka sig saman um að klekkja á svikulum karlmönnum. Sagan er samvinnuverkefni tveggja ungra höfunda, Mörtu Maríu Jónasdóttur og Þóru Sigurðardóttur, og verður að flokkast sem hreinræktaður „skutl- uskáldskapur“ ( á ensku chick lit). Sú bókmenntagrein hefur ef til vill ekki náð neinum hæðum hérlendis; þekktustu dæmin eru máski sögurn- ar Klisjukenndir (2004) og Dís (2000) sem var einmitt líka samvinnuverk- efni ungra kvenna. Einkenni þessara bóka eru að þær fjalla oft um ástir og örlög ungra framakvenna þar sem koma við sögu tískufatnaður, kok- teilar og sjálfskomplexar í bland við hugleiðingar um samskipti, einkum milli kynjanna. Aðalsögupersónan Sara verður fyrir þeirri ólukku að kærastinn hennar segir henni upp og tekur saman við eina af vinkonum hennar. Í kjölfar þess fara æsilegir atburðir að gerast því Sara stofnar Hefni- bandalagið ásamt þjáningarsystrum sínum og í sameiningu skera þær upp herör gegn þeim mönnum sem hafa sært þær og svikið. Þemað er nokkuð vel þekkt, fyrsta bókin sem kemur upp í hugann er Ævi og ástir kvendjöfuls eftir Fay Weldon sem kom út á íslensku um miðjan níunda áratuginn. Staðfæring þessa við- fangsefnis kvenlegs hefndarþorsta og stúlknaævintýra til nútíma Reykjavíkurborgar er nokkuð vel heppnuð en það verður seint sagt að atburðarrásin sé sennileg enda er það kannski ekki ætlunin. Plottið býður upp á margar fyndnar senur þar sem þær vinkon- ur leggja á ráðin og hrekkja síðan fórnarlömb sín með frumlegum aðferðum. Saman við hefndarlýs- ingarnar fléttast litlar fjölskyldu-, ástar- og upprifjunarsögur sem eiga að varpa ljósi á persónur bókarinn- ar. Það er hins vegar erfitt að trúa á þetta kvenfólk eða hafa samúð með persónunum vegna þess að þeim er lýst á mjög kaldhæðinn hátt og þær virðast ekki stíga í vitið nema þegar kemur að hugmyndaauðgi og fatasmekk. Ef ég tek mér tungutak bókarinnar í munn myndi ég segja að persónurnar væru hreinlega of „pathetik“ og „súperfisíal“. Málfarið fór reyndar merkilega mikið í mínar fínustu og hnyttn- in hitti ekki í mark. Orðaleikir og slangur í ætt við einkahúmor skreyta textann frá fyrstu síðu og hætta of fljótt að vera fyndnir. Þetta er ekkert hreðjatak á íslenskunni og þegar maður er ekki viss um hvort stafsetningin sé innsláttarvilla eða ásetningur tekur steininn úr. Þetta er ekki frumleg bók, samtölin eru skondin og aðstæðurnar á köflum nokkuð skemmtilegar en fyrir mig er þetta hvorki fugl né fiskur, þótt grínið fari fram í 101 og Grafar- holtinu gerist ekkert nýtt í þessari sögu. Kristrún Heiða Hauksdóttir Hveitijafningur eða kaloríubomba? DJÖFLATERTAN HÖF. MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR OG ÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR ÚTG. VAKA HELGAFELL Niðurstaða: Þetta er fljótlesin bók, fáar hraðahindranir eða stílæfingar, einföld og aðgengileg afþreying fyrir þá sem „fíla“ slíkt og þurfa á djöflatertum að halda. Inga Sólveig Friðjónsdóttir ljósmyndari hefur gaman af því að rölta um kirkjugarða. Hvar sem hún kemur á ferðum sínum um heiminn leitar hún uppi kirkjugarða, og hefur að sjálf- sögðu myndavélina með sér. „Það er svo friðsælt og huggu- legt að labba um svona garða. Og alltaf nóg af myndefni,“ segir Inga Sólveg, sem hefur opnað sýningu á nokkrum ljósmyndum úr kirkjugörðum í ljósmynda- galleríi sínu, sem er til húsa að Hverfisgötu 35. Sýninguna nefn- ir hún Angelus, sem er latneskt orð og þýðir engill. „Þetta eru allt saman engla- myndir. Þetta er jólasýning má segja, og þess vegna ákvað ég að hafa eingöngu englamyndir, allt saman voðalega fallegt og huggulegt.“ Ljósmyndir hennar úr kirkjugörðum eru þó engan veginn allar mjög huggulegar ásýndum, enda þótt aðrar mynd- ir hafi ekki fengið inni á þessari sýningu. „Sumar stytturnar geta orðið hálf óhuggulegar þegar þær eru orðnar mjög gamlar, hauslausar og handalausar og komin skrít- in áferð á þær. Þær eru ekkert óskaplega fallegar.“ Inga Sólveig opnaði ljósmynda- gallerí sitt við Hverfisgötuna fyrir hálfu öðru ári, og hefur sýnt þar að mestu eigin ljósmyndir. Þetta er eina galleríið á landinu sem sérstaklega er ætlað undir ljósmyndasýningar, og Inga Sól- veig hefur mikinn áhuga á að fá aðra ljósmyndara til þess að sýna hjá sér. „Ég vona að ég geti haldið þessu bara sem ljósmyndagalleríi og lýsi hér með eftir ljósmynd- urum sem eru að gera eitthvað skemmtilegt og hafa áhuga á að sýna.“ Ljósmyndir úr kirkjugörðum ENGILL Á LEIÐI Ein af ljósmyndum Ingu Sólveigar Friðjónsdóttur á sýningu hennar á Hverfisgötu 35.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.