Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 20
[ ] Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf. gömlu tryggingafélögin eru með heilsárs binditíma. elísabetu finnst það vera rosalega 2005. Daewoo lyftarar Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557 Gæði á góðu verði Sólgleraugu koma sér vel þegar keyrt er í mikilli sól. Það er ágætt að geyma sólgleraugun alltaf í bílnum svo þau séu örugglega til staðar þegar þeirra er þörf. Yfirmaður vélaþróunardeildar Volkswagen hlaut verðlaun sér- fræðitímaritsins Auto Motor und Sport á dögunum. Dr. Rudolf Krebs hlaut þessi eft- irsóttu Paul Pietsc-verðlaun fyrir TSI-vélina sem þykir framsækin þróun í bílaiðnaðinum. Vélin veitir hámarksorku þótt hún noti eldsneyti í lágmarki. Þetta var fengið með svokallaðri smættun þar sem annars vegar er dregið úr strokkstærð, sem dregur þannig úr orkutapi sökum núningsmótstöðu, og hins vegar dregið úr vélarþyngd sem leiðir til minni eyðslu og eykur þannig afköst vélarinnar. Vélin er þegar fáanleg í Golf GT sem er 170 hestafla þrátt fyrir að eyða aðeins 7,2 lítrum af bensíni á hverja 100 kílómetra. Ennfremur verður hægt að fá TSI-vélina í Volkswagen Touran næstkomandi vor. (Upplýsingar fengnar af bill- inn.is) TSI-vélin er fáanleg í Volkswagen Golf GT sem kemur hingað til lands næsta vor. Nýr Mercedes Benz er kominn á markað sem sameinar það að vera rúmur fjölskyldubíll og kraftmikill sportbíll. „Þetta er alveg nýr bíll frá Mercedes Benz sem heitir R-Class og er gríðarlega vel búinn,“ segir Jón Trausti Ólafsson, markaðs- stjóri hjá Bílaumboðinu Öskju, sem er umboðsaðili Mercedes-Benz og hefur kynnt til sögunnar þennan nýja meðlim í Benz-fjölskyldunni. Jón Trausti lýsir gripnum nánar. „R-Class bíllinn er fjórhjóladrif- inn, mjög rúmgóður og hentugur fyrir þá sem vilja snaggaraleg- an og kraftmikinn sex sæta bíl með sportlega aksturseiginleika. Hann er með sama undirvagni og M-jeppinn sem hefur verið rómað- ur fyrir mikið pláss og öryggi. R- Class fæst með kraftmikilli bens- ín- og dísilvél og er meðal annars búinn loftknúnum fjöðrunarbún- aði, sídrifi, sjálfstæðum sætum og öflugu loftræstikerfi. Svo er hann fallegur á götu og sameinar spennandi hönnun, gott rými og þægindi,“ segir Jón Trausti. Hann telur bílinn ótvírætt hæfa vel fólki sem vill aka um á eigulegum bíl og spurður um verð segir hann það vera rúmar sex milljónir. Ný vídd frá Benz Mecedes Benz R-Class sameinar spennandi hönn- un, gott rými og þægindi. Í byrjun næsta mánaðar verður frumsýndur Mégane II í nýrri útfærslu. Breytingarnar eru fyrst og fremst á búnaði en útlitsbreytingar eru minnihátt- ar. Blaðamenn tóku forskot á sæluna og kynntu sér bílinn í nágrenni Nice í janúarlok. Renault Mégane II hefur verið mest seldi bíllinn í Evrópu í nokkur ár og ekki að ástæðu- lausu. Hann er ekki bara ólíkur öllum öðrum bílum í útliti heldur er bíllinn að innan með margar „sniðugar lausnir“ svo gripið sé til þekkts orðfæris. Nýi Renault Mégane bíllinn er lítið breyttur að utan. Breytingarnar felast aðal- lega í ljósunum bæði að framan og aftan, auk þess sem loftinntakið að framan er stærra en áður sem gefur bílnum enn sportlegra yfir- bragð en áður var. Þegar inn í bílinn er komið sjást frekari breytingar. Hönnuð- ir Mégane hafa alltaf lagt mikið upp úr því að hafa aðstöðu bíl- stjóra til fyrirmyndar og þeirri stefnu er áfram haldið á lofti. Öll innréttingin hefur yfir sér milt og um leið afar vandað yfirbragð og leðurklætt stýri og MP3 spil- ari eru til dæmis staðalbúnaður í nýja bílnum. Sem fyrr er bíllinn í boði bæði í þriggja og fimm dyra gerðum og fjögurra dyra coupé og fimm dyra langbakur eru einnig í boði. Þegar kemur að öryggisþáttun- um er Méganinn sem fyrr traust- ur, en Mégane II var fyrsti bíllinn í sínum flokki sem hlaut fimm stjörnur, sem er fullt hús stiga, í hinni virtu NCAP-öryggisprófun. Meginbreytingin á nýja Mégan- inum felst þó í breyttu framboði á vélum. Þar er aðalnýjungin ný tveggja lítra 150 hestafla dísel- vél. Sú vél verður þó ekki fáan- leg hér fyrsta kastið og verður því nánar um hana fjallað síðar. 1,9 lítra díselvélin verður áfram í boði og hefur verið uppfærð. Hún er nú 130 hestafla og í boði bæði með sex gíra handskiptingu og fjögurra gíra sjálfskiptingu með handskiptivali. Þrátt fyrir ágætt afl er þessi vél eyðslugrönn, upp- gefin eyðsla er 5,6 l á hundraðið. Í ferðinni var reynsluekið bílum með 1600 lítra bensínvél og 1,9 og 2 lítra díselvélum, auk coupé bíls með 2 lítra bensínvél. Díselbílarnir voru að vissu leyti áhugaverðari kostur að því leyti til að vélarnar unnu einstaklega vel, ekki síst nýja 2 lítra vélin að þeirri 1,9 lítra ólastaðri. Búast má við að hér á landi verði eftirspurn- in eftir bensínbílunum og er eng- inn svikinn af þeim bílum enda á ferðinni lúxus upp að vissu marki þótt það skili sér alls ekki í verði bílsins sem hlýtur að teljast gott miðað við það sem fyrir pening- ana fæst. steinunn@frettabladid.is Enn flottari Mégane Reanult Mégane á engan sinn líka í útliti og breytingarnar eru ekki stórvægilegar. Baksvipurinn á Renault Mégane er öðruvísi en á öllum öðrum bílum. Innréttingin er stílhrein, falleg og nútímaleg. Mælaborðið hefur sterkan svip með hring úr burstuðu stáli utan um mælana og bak- ljósi sem gerir þá þægilega til aflestrar. Renault Mégane Vél Hestöfl Dyr Verð - Beinskiptur - Sjálfskipur Coupe Authentic 1400 16v 95 3 1680000 Coupe Authentic Comfort 1600 16v 115 3 1780000 1930000 Coupe Authentic Comfort 2000 16v 135 3 2130000 Authentic 1400 16v 95 5 1730000 Authentic Comfort 1600 16v 115 5 1830000 1980000 Authentic Comfort 1500 dCi 105 5 1980000 Authentic Comfort 1900 dCi 130 5 2280000 2430000 Volksvagen fær verðlaun fyrir framsækna vél Eftirsóknarverð verðlaun voru veitt fyrir TSI-vélina frá Volkswagen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.