Fréttablaðið - 03.05.2006, Side 88
SMS LEIKUR
9. HVER VINNUR!
Vinningar verða afhendir hjá BT Sm
áralind. Kóp
avogi. M
eð þ
ví að taka þ
átt ertu kom
inn í SM
S klúb
b. 99 kr/skeytið.
FRUMSÝND 28. APRÍL
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SENDU SMS SKEYTIÐ JA HOF Á
NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO
• DVD
MYNDIR • TÖLVULEIKIR • VARNINGUR
TENGDUR
MYNDINNI OG MARGT FLEIRA
Sjónhverfingamaðurinn David
Blaine ætlar að dvelja í eina viku
inni í kúlu fullri af vatni í New
York-borg. Þvermál kúlunnar er
2,5 metrar.
Gríma og loftpípa mun halda
lífinu í Blaine. Mun hann jafn-
framt fá mat í gegnum slöngu.
„Minn eini ótti er óvissan,“ sagði
hinn 33 ára Blaine áður en hann
fór ofan í kúluna á mánudags-
morgun. Hundruð manna fylgdust
með Blaine, sem eyddi 44 dögum í
boxi yfir ánni Thames árið 2003,
fara á kaf í gær.
Eftir að hann hefur lokið viku-
langri dvöl sinni í kúlunni mun
hann reyna að bæta heimsmetið í
að halda niðri í sér andanum í kafi.
Núverandi met er átta mínútur og
58 sekúndur. Meðan á tilrauninni
stendur verður Blaine handjárnað-
ur og festur við þykkar keðjur.
„Fyrir utan það að reyna að
halda í mér andanum í níu mínút-
ur þarf ég að losna úr þessum
keðjum og ef ég mun ekki drukkna
á fólk eftir að sjá svolítið rosalegt
eiga sér stað,“ sagði Blaine.
Læknar hafa ítrekað varað
Blaine við því að reyna að halda í
sér andanum svo lengi og telja að
hann geti aldei orðið samur eftir
það.
Dvelur viku ofan í vatnskúlu
OFAN Í KÚLUNNI David Blaine mun dvelja í viku ofan í kúlunni og reyna síðan að halda
niðri í sér andanum í rúmar níu mínútur. MYND/AP
Uppistandskvöld verður haldið á
Gauki á Stöng í kvöld. Fram koma
Þórhallur Þórhallsson, Oddur
Eysteinn Friðriksson og Björk
Jakobsdóttir.
Heimasíðan uppistand.is er nú að
halda uppistandskvöld til styrktar
góðu málefni í sjöunda skiptið í sam-
starfi við Sláturfélag Suðurlands. Í
þetta sinn mun allur ágóði renna til
dagdeildar hjúkrunarheimilisins Eir.
Þórhallur, sem er sonur Ladda,
hefur verið að gera það gott á opin-
berum vettvangi undanfarið og er
gjarnan líkt við Jim Carrey í hreyf-
ingum og látbragði. Oddur er þekkt-
ur fyrir svartan húmor og fyrir að
gera grín að alls kyns fólki, þar á
meðal sjálfum sér. Björk er ein af
fáum kvenkyns uppistöndurum í dag
og er að koma fram á vegum uppi-
stand.is í fyrsta sinn.
Kvöldið hefst klukkan 21.30 og er
aðgangseyrir 500 krónur.
Uppistand í kvöld
BJÖRK JAKOBSDÓTTIR Leikkonan vinsæla
verður með uppistand í kvöld ásamt
Þórhalli Þórhallssyni og Oddi Eysteini
Friðrikssyni.
Um helgina var umdeild heimild-
armynd sýnd á kvikmyndahátíð-
inni Tribeca í New York. Myndin
ber heitir The Bridge og sýnir hún
sjálfsmorð tuttugu einstaklinga
sem allir eiga það sameiginlegt að
hafa endað líf sitt með því að
fleygja sér fram af Golden Gate
brúnni í San Francisco. Brúin
hefur verið afar vinsæl meðal fólks
í sjálfsmorðshugleiðingum því allt
frá því að hún var opnuð í maí 1973
hafa milli 1200-1300 manneskjur
náð að hoppa fram af brúnni og í
dauðann. Framleiðandi The Brigde,
Eric Steel, lét kvikmyndatökulið
vakta brúna í 24 tíma á sólarhring í
heilt ár og afraksturinn er 20 stökk
af brúnni sem eru sýnd á 93 mínút-
um auk viðtala við aðstandendur.
Myndin hefur nú þegar vakið hörð
viðbrögð fólks, sérstaklega sam-
taka sem vinna að því að koma í
veg fyrir sjálfsmorð. Aðstandend-
ur sem teknir eru tali í myndinni
eru ekki heldur ánægðir því þeir
vissu ekki að Steel hefði upptökur
af sjálfsmorðunum þegar þeir
veittu viðtal. Sjálfur segir Steel að
heimildarmyndin sé gerð til að
vekja athygli á öllum þeim sjálfs-
morðum sem framin eru í heimin-
um, en hann segir að Golden Gate
brýr finnist víða. Hægt er að sjá
brot úr myndinni á www.tribe-
cafilmfestival.org.
Allt brjálað á Tribeca
SJÁLFSMORÐSSTAÐUR Golden
Gate-brúin í San Francisco er
vinsæl til sjálfsmorða og nú
hefur verið gerð heimildarmynd
sem sýnir 20 manns stökkva í
dauðann af brúnni.
Uppselt er á sýningu James Sewell
Ballet í Austurbæ á föstudaginn.
Miðarnir seldust skyndilega upp
og því var gripið á það ráð að slá
upp aukasýningu á laugardaginn
með litlum fyrirvara.
„Það kom rosalegur lokakippur
í miðasöluna hjá okkur þannig að
það er uppselt á sýninguna á föstu-
daginn,“ segir Ísleifur B. Þórhalls-
son hjá Event.is.
„Það var því ljóst að færri
myndu komast að en vildu en
okkur tókst að fá hópinn til þess að
halda aðra sýningu þó fyrirvarinn
væri eiginlega enginn.“
Aukasýningin verður laugar-
daginn 6. maí klukkan 20 í Austur-
bæ en húsið opnar 19.30.
Miðar eru seldir í verslunum
Skífunnar í Reykjavík, verslun-
um BT á Akureyri og Selfossi og á
www.event.is.
Aukasýning
á Sewell
JAMES SEWELL Sala á miða á sýningu
hans tók svo hressilegan lokakipp að engir
miðar eru eftir og því var brugðið á það
ráð, vegna fjölda áskorana, að bæta við
sýningu á laugardaginn.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
400 kr. í bíó!
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
INSIDE MAN kl. 8 og 10.25 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ÍSL. TALI kl. 6
ÍSÖLD 2 M/ÍSL. TALI kl. 6
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 8
THE HILLS HAVE EYES kl. 10 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 6
PRIME kl. 5.30, 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 6 og 10
WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 B.I. 16 ÁRA
RAUÐHETTA M/ENSKU TALI kl. 4, 6, 8 og 10
RAUÐHETTA M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
PRIME kl. 8 og 10.30
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
WHEN A STRANGER CALLS kl. 10 B.I. 16 ÁRA
ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 4, 6 og 8
ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 4 og 6
ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS!
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
HVAÐ SEM ÞÚ GERIR,
EKKI SVARA Í SÍMANN!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÆRSTA MYND ÁRSINS
- VJV, Topp5.is
- HJ MBL
- JÞP Blaðið
STRANGLEGA BÖNN
UÐ
INNAN 16 ÁRA
DYRAVERÐIR VIÐ
SALINN!
- Ó.Ö.H. - DV
- SV - MBL
- LIB. - TOPP5.IS
EIN FYNDNASTA MYND ÁRSINS
SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Birgitta Haukdal fer á kostum sem Rauðhetta
í íslensku talsetningunni
„Ég var ónýtur eftir myndina.
Hún var svo fyndin“
- Svali á FM957
„Rauðhetta á sterum“
H.Þ.H. - Bio.is
Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk
gamanmynd með Uma Thurman og
Meryl Streep í fantaformi!
THE HILLS HAVE EYES
Mögnuð endurgerð
af Wes Craven
klassíkinni frá 1977
STÆRSTA MYND Á
RSINS
47.000 MANNS!