Fréttablaðið - 03.05.2006, Side 42

Fréttablaðið - 03.05.2006, Side 42
2 „Ég gæti étið þig“, er yfirskrift loka- verkefnis Oddnýjar Magneu Arn- björnsdóttur, nema í þrívíðri hönnun úr Listaháskóla Íslands. Með heitinu er verið að vísa í gamalt orðatiltæki sem hefur táknræna merkingu og er viðhaft þegar einhver þykir nógu góður til að vera ætilegur. Oddný hefur hins vegar kosið að gera orðatiltækinu bókstafleg skil með verkefni sínu sem samanstendur af súkkulaðimolum sem líta út eins og líkamshlutar á borð við tennur, varir og ungbarnatær. Oddný segir áhuga hennar á mannslíkamanum, einkum húðinni, hafa verið kveikjuna að hugmynd- inni. „Ég fór að skoða bækur sem sýndu skreytilist frá því í gamla daga, þá einkum ígreypta hluti, og fannst vera ákveðin samsvörun á milli þeirra og mannslíkamans með öllum sínum mynstrum. Auk þess fannst mér áhugavert að nota í verkefnið eitthvert form í algjörlega óbreyttri mynd. Með það að leiðar- ljósi fór ég að taka afsteypur af lík- amshlutum og þegar upp var staðið fannst mér tilvalið að nota þær sem súkkulaðimót.“ Segja mætti að niðurstaðan sé ögr- andi eftirréttur, því þarna á sér stað hugmyndafræðilegur samsláttur vinsællrar markaðsvöru tengdri nautunum og einnar helstu bann- helgi Vesturlanda, nefnilega mann- áts. Enda er ekki reynt að fela lík- indin og súkkulaðimolarnir hafðir eins líkir fyrirmyndinni og unnt er. Neysla molanna ætti því að vekja blendnar tilfinningar hjá neytend- um. Ekki er nóg með að Oddný hafi gert mótin sjálf heldur bjó hún einnig til súkkulaðið úr þar til gerðum hrá- efnum og hannaði umbúðirnar utan um það. „Ég vildi vinna verkefnið þannig að ég gæti gert þetta sjálf frá a til ö svo ég hefði í lokin vöru til- búna í dreifingu til endursöluaðila. Þannig vildi ég geta komið fullbú- inni vöru frá mér, þótt ég útiloki alls ekki samstarf við sælgætisframleið- endur sé gagnkvæmur áhugi fyrir hendi. En það er eitthvað sem á bara eftir að koma í ljós og væri gaman að skoða,“ segir hún að lokum. Ég gæti étið þig Oddný Magnea Arnbjörnsdóttir tekur afsteypur af líkamshlutum og notar sem súkkulaðimót Hérna sést Oddný Magnea með súkkulaðimolana sem hún bjó til sjálf með sérhönnuðum mótum og hannaði umbúðir utan um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Afsteypur eru teknar af raunverulegum líkamshlutum og þær notaðar sem súkkulaðimót. Hér má t.d. sjá ungbarnatær sem eru aðeins ein þeirra neysluvara sem Oddný hefur búið til. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á þessari mynd sjást varir í nokkrum litbrigðum. Iðan fræðslusetur verður opnað í dag að Hallveigarstíg 1. Þetta er samstarfsverkefni fræðslumiðstöðva fjögurra iðngreina, þ.e. málm- iðnaðarins, byggingariðnaðarins, hótel- og veitingaiðnaðarins og prenttæknistofnunar. Hildur Elín Vignir, nýskipaður framkvæmda- stjóri Iðunnar, segir að með þess- ari sameiningu sé vonast til að ná ákveðinni hagræðingu í rekstri og auknum slagkrafti varðandi fram- þróun í iðnmenntun í heild sinni. Hildur hefur um árabil verið viðriðin starfsþróunar- og endurmenntunar- markaðinn hérlendis. Hún hefur nýlokið starfi sem forstöðumaður þjálfunarlausna hjá IMG, en hefur einnig starfað sem fræðslustjóri, fyrst hjá Eimskipafélaginu og síðan Íslandsbanka. Hildur er bæði mennt- aður kennari og starfs- og náms- ráðgjafi og starfaði í grunnskólum Reykjavíkur áður en hún fór til starfa hjá Eimskipafélaginu. „Í gegnum starf mitt hjá IMG vann ég töluvert með fræðslumiðstöðvum iðnaðarins og vissi af þessari sam- einingu sem til stóð og þeim mark- miðum sem henni er ætlað að ná. Ég hef mikla trú á því að sameiningin muni skila iðnaðinum miklu þegar til lengri tíma er litið og fannst því einstakt tækifæri fólgið í því að fá að taka þátt í þessu nýja starfi, auk þess sem þetta er ákveðin áskorun fyrir mig.“ Fyrsta verkefni nýráðins fram- kvæmdastjóra verður að kortleggja þá starfsemi sem farið hefur fram í mismunandi fræðslustofnunum síð- ustu ár og skoða hvar sameiginleg tækifæri liggja. Starfsemin verður skipulögð með þetta fyrir augum og reynt að nýta það sem gefið hefur góða raun. „Það besta hjá einum verður innleitt hjá öðrum, en allt miðar þetta að því að byggja upp góða stofnun,“ segir Hildur. Eins og fyrr sagði eru fræðslumið- stöðvar fjögurra iðngreina að sam- einast í Iðunni, en Hildur segist vonast til að fleiri iðngreinar sjái hag sinn í því að starfa undir þess- ari regnhlíf í framtíðinni. „Hlutverk fræðslusetursins er m.a. fólgið í því að vinna að endur- og símenntun iðnaðarmanna, vera ráðgefandi fyrir fyrirtæki og starfsmenn í iðnaðin- um varðandi uppbyggingu mennta- stefna og á víðari grundvelli. Síðast en ekki síst að vera ráðgefandi fag- aðili gagnvart iðnaðilum og leiðandi afl í stefnumótun á námi meistara- nema,“ segir Hildur. Að mati hennar bendir þetta allt saman til að aðrar iðngreinar eigi fullt erindi í samstarf með Iðunni. Framþróun í iðn- menntun í heild sinni Fjögur fræðslusetur hafa sameinað starfsemi sína í fræðslu- setrinu Iðunni, að Hallveigarstíg 1, sem verður opnað í dag. Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri fyrir framan Iðuna, nýtt fræðslusetur fjögurra iðngreina, sem verður opnað á Hallveigarstíg 1 í dag. FRETTABLAÐIÐ/GVA ■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.