Fréttablaðið - 03.05.2006, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 3. maí 2006
Laugardaginn 6. maí verður sér-
stakur fornbíladagur hjá Frum-
herja hf. í Reykjavík og á Akur-
eyri. Þetta er þriðja árið í röð sem
slíkur dagur er haldinn í Reykja-
vík en í fyrsta skipti á Akureyri.
Þá verða skoðaðir allir glæsileg-
ustu fornbílar landsins í eigu
félagsmanna í Fornbílaklúbbi
Íslands og Fornbílaklúbbi Akur-
eyrar.
Á Hesthálsi í Reykjavík hefst
skoðunin klukkan níu um morgun-
inn og er búist við að allt að eitt
hundrað bílar verði skoðaðir. Á
Akureyri hefst skoðunin klukkan
eitt og er reiknað með milli tuttugu
og þrjátíu bílum til skoðunar. Að
venju verður boðið upp á drykki
og meðlæti, auk sýningar á ýmsum
skemmtilegum munum sem tengj-
ast þessum gömlu bílum.
Rétt er að vekja athygli á því að
félagar í Fornbílaklúbbunum ann-
ars staðar á landinu munu njóta
sömu kjara á skoðun bíla sinna á
mánudeginum þar á eftir, eða
fyrsta opnunardag stöðvar ef ekki
er opið á mánudeginum.
Fornbíla-
dagur 2006
Frumherji opnar tvær
skoðunarstöðvar sérstaklega
fyrir fornbíla.
Fornbílaeigendur fjölmenna í skoðun
laugardaginn 6. maí
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mazda5 hlaut nýverið sex stjörnur af
sex mögulegum í öryggisprófunum á
vegum japanskra umferðaröryggisyfir-
valda, J-Ncap. Hann er þar með fyrsti
fjölnotabíllinn sem fær hæstu einkunn
í öryggisprófunum bæði í Evrópu og
Japan.
Bíllinn hafði áður, síðasta haust, hlotið
fimm stjörnur af fimm mögulegum í
sambærilegum prófunum evrópsku
umferðareftirlitsstofnunarinnar, Euro
NCAP.
Öryggiskerfi Mazda5 er hannað með
það fyrir augum að taka á sig þau högg
sem á bílinn geta komið og beina þeim
fram hjá farþegum bílsins. Þannig er til
dæmis sérstaklega styrktur undirvagninn
hannaður til að dreifa höggi frá hlið eftir
endilöngum bílnum og draga þar með
úr áhrifum höggsins þar sem það kom á
bílinn. Svipað gildir með högg framan á
bílinn, en þar vinna loftpúðar, öryggis-
belti og sérstök hönnun saman að því
að auka öryggi bílstjóra og farþega.
Þá er hemlunarvegalengd bílsins með
þeim stystu sem mælst hafa hjá fjöl-
notabílum. Mazda5 þurfti einungis 41,8
metra til að hemla úr 100 km hraða.
Mazda5 öruggur
FÆR HÆSTU EINKUNN Í ÖRYGGISPRÓF-
UNUM Í JAPAN OG EVRÓPU.
Mazda5 er ekki bara notadrjúgur heldur
líka öruggur.
Bandarískir kaupendur tvinnbíla og dísilbíla
geta nýtt sér kaupin til að fá endurgreitt frá
skattinum.
George Bush Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn
undanfarnar vikur til að tryggja löndum sínum hag-
kvæmar eldsneytislausnir og minnka þannig áhyggjur
þeirra af stríðrekstri hans í Mið-Austurlöndum.
Síðasta útspil hans er skattaafsláttur fyrir þá sem
kaupa tvinnbíla og nýjustu kynslóð dísilbíla. Þegar
hver ákveðin tegund hefur selst í 60.000 eintökum
fjarar skattaafslátturinn af henni út.
Bush hefur fengið bágt fyrir þetta útspil, eins og
önnur, á þeim forsendum að tillagan sé hliðhollari
erlendum bílaframleiðendum vegna þess að litið sé á
þá sem háþróaðri og vænlegri kosti en bandaríska
keppinauta.
Eldsneytisverð í Bandaríkjunum hefur sjaldan eða
aldrei verið hærra. Bíleigendur í Kaliforníu eru sumir
farnir að grípa til þess ráðs að verða viljandi bensín-
lausir á leið til eða úr vinnu. Á þjóðvegunum eru sér-
stakir aðstoðarmenn á ferðinni sem gefa nauðstöddum
eitt gallon af bensíni, um 3,8 lítra, sem er fjármagnað
með opinberum sjóði.
Margir hinna bensínlausu viðurkenna fúslega að
þeir hafi viljandi látið klárast úr tankinum því bensínið
sé einfaldlega of dýrt, enda kostar lítrinn um 47 krónur
í Bandaríkjunum um þessar mundir. Þar af fara um 20
prósent í skatta og opinber gjöld.
Bush býður afslátt af skatti
Bush reynir hvað hann getur að auðvelda Bandaríkjamönnum að
velja aðrar leiðir en ofurdýrt bensín, en uppsker lítið annað en
skömm í hattinn. MYND/AP
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði