Fréttablaðið - 03.05.2006, Síða 51

Fréttablaðið - 03.05.2006, Síða 51
11 Oddur Pétursson stundar nám í húsasmíði við Iðnskólann í Reykja- vík. Faðir Odds er húsasmiður og segir hann áhugann fyrir náminu hafa kviknað þegar hann vann hjá föður sínum á sumrin. Hann hafi prófað nám í öðru en fljótlega upp- götvað að áhuginn var fremur fyrir húsasmíði. Reynslan kemur Oddi til góða því hann sleppur þar af leið- andi við eins árs grunnnám og nær að klára námið á þremur önnum með þéttsetinni töflu. Í vetur hefur Oddur lært að smíða verkfæraskáp, skúffu og stól svo dæmi séu nefnd, en það er gert svo nemendur fái tilfinningu fyrir verkfærunum, segir Oddur. Svo spilar kunnátta á vélar og í teikn- ingu stórt hlutverk, bætir hann við. Næsta verkefni verður að byggja bústað, með klæðningum, glugg- um og öðru sem fellur undir svið húsasmíði, þannig að af nógu er að taka. Þetta sýnir einfaldlega hversu fjölbreytilegt og skemmtilegt námið er að mati Odds. Að skólanámi loknu tekur við tæp- lega fimmtán mánaða reynslutími sem Oddur þarf að vinna, en yfir- leitt er það um 18 mánaða langt. „Svo er það sveinsprófið“, segir hann. „Eftir það taka við tvö ár í vinnu áður en meistaranám hefst.“ Samkvæmt Oddi þurfa menn að hafa meistaranámið að baki til að vera með einkarekið fyrirtæki, en í því eru meðal annars kenndir kúrsar þar sem áhersla er lögð á bókfærslu og rekstur. Oddur segir að nemendur verði sjálfir að finna sér meistara, en hann er svo heppinn að geta leit- að til föðurhúsa í því tilviki. Hvað framtíðinni viðvíkur segist Oddur ekki hafa áhuga á að starfa við uppslátt með hamar og nagla og telur að hann muni líklega snúa sér að sérsmíði á gluggum og hurð- um. Það eigi hug hans allan eins og staðan sé nú og hann telur að fátt muni breyta því. Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni Oddur Pétursson nemi í húsasmíði fetar í fótspor föður síns. Oddur Pétursson hafði öðlast góða reynslu í smíði hjá föður sínum áður en hann hóf nám í húsasmíði við Iðnskólann í Reykjavík. Af þeirri ástæðu lýkur hann náminu á styttri tíma en venja gerir ráð fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { iðnaðarblaðið } ■■■■ Iðnskólinn í Reykjavík: KLÆÐSKURÐUR OG KJÓLASAUM- UR. Klæðskerar og kjólameistarar eru víða að störfum. Þeir vinna á hönnunardeildum við sniðagerð og tæknilega hönnun, við bún- ingasaum í leikhúsum og fyrir kvikmyndir. Einnig starfa þeir sem sjálfstæðir atvinnurekendur. Nem- endur af fataiðnabraut Iðnskólans í Reykjavík hafa hlotið viðurkenn- ingar fyrir hönnun og sauma bæði hér heima og erlendis. ALMENNT NÁM. Almennar bóklegar greinar eru hluti af námi á öllum brautum Iðnskólans í Reykja- vík. Allt almenna námið er mats- hæft á milli áfangaskóla. Einnig er hægt að stunda nám í almennum greinum einvörðungu í eina til fjór- ar annir. Það getur hentað nemend- um sem ekki hafa gert upp við sig hvað þeir vilja læra. Á almenna sviðinu er í boði viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsnámsbrautum í samræmi við auglýsingu nr. 371/2001 frá mennta- málaráðuneytinu. Nemendum er ráðlagt að skipuleggja viðbótarnám sitt til stúdentsprófs eftir kröfum þess háskóla eða háskóladeildar sem þeir hyggjast stunda nám við. Tæknibraut er fyrst og fremst undirbúningur náms í Tæknihá- skóla Íslands en veitir einnig inn- göngu í verkfræðideild og fleiri deildir á háskólastigi. Á tæknibraut verða aðeins innritaðir nemendur sem hófu nám í IR haustið 2003 eða fyrr. Við hlutverki tæknibrautar taka stúdentspróf af starfsnámsbrautum. GULL- OG SILFURSMÍÐI. Starfið er einkum að hanna og smíða gripi úr þessum tveimur málmtegundum en þó vinna gullsmiðir einnig úr öðrum efnum. Vinnan gerir miklar kröfur um skapandi og frjóa hugsun og margir gullsmiðir hafa náð langt á erlendum mörkuðum. Gull- og silfursmíði er bæði verk- legt og bóklegt nám. Mikil áhersla er á hönnun, efnisfræði og teikningar. Til að læra gull- og silfursmíði þarf að fá fjögurra ára námssamning hjá meistara og lýkur náminu með sveinsprófi. Spennandi iðnnám Borgartúni 35 - 105 Reykjavík - Sími 591 0100 - Fax 591 0101 - mottaka@si.is - www.si.is Engin takmörk Framtíð iðnaðar veltur á menntun og mannauði. Aukin þekking gefur iðnaðinum takmarkalaus tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og útrásar. Iðnfyrirtæki treysta á öflugt rannsókna- og menntakerfi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.