Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. september 2006 13
ALÞINGI Örorkubyrði er farin að
íþyngja lífeyrissjóðunum. Reikn-
að var með að lífeyrir til öryrkja
yrði undir tíu prósentum af
heildarskuldbindingum lífeyris-
sjóðanna en reynslan sýnir að
hann er tæplega tuttugu prósent.
Sjóðirnir hafa því minna fé til að
standa við aðrar skuldbindingar
sínar.
Skerðing og niðurfelling lífeyris-
sjóðanna á lífeyri til öryrkja var
rædd á fundi efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis.
Pétur Blöndal, formaður
nefndarinnar, segir að lífeyrissjóð-
irnir hafi alltaf haft heimild til að
skerða lífeyri til öryrkja sem hafa
hærri tekjur en þeir höfðu fyrir
örorkumat. Lífeyrissjóðirnir séu
nú farnir að beita þessum reglum.
„Örorkubyrðin er farin að
þyngjast langt umfram það sem
lífeyrissjóðirnir höfðu reiknað
með. Það er því minna eftir til að
greiða annan lífeyri,“ segir Pétur.
Á fundinum var meðal annars
rætt um möguleikana á því að
fresta skerðingunum eða breyta
reglunum. Einnig var rætt um að
tengja launaútreikninga fyrir
örorku við launavísitöluna.
Fulltrúar ÖBÍ, vinnumarkað-
arins og lífeyrissjóðanna verða
boðaðir á fund nefndarinnar í
næstu viku. - ghs
PÉTUR BLÖNDAL Formaður efnahagsnefndar segir lífeyrissjóði hafa heimild til að
skerða lífeyri til öryrkja sem hafa hærri tekjur en þeir höfðu fyrir örorkumat.
Pétur Blöndal um skerðingu lífeyrissjóðanna á greiðslum til öryrkja:
Örorkubyrðin er lífeyrissjóðum of þung
KÓLUMBÍA Liðsforingjar í kólumb-
íska hernum hafa orðið uppvísir
að því að koma fyrir bílasprengj-
um víðs vegar um höfuðborg
landsins, Bogotá. Þetta gerðu þeir
í von um að innheimta fundarlaun
í gegnum uppljóstrara.
Þetta er annað hneykslið á
skömmum tíma sem herinn lendir
í. Forseti landsins reynir nú allt
hvað hann getur til að bæta
ímynd hersins, sem er að miklu
leyti rekinn með framlögum frá
Bandaríkjunum.
Ein sprengnanna sprakk í loft
upp og féll þá tylft hermanna,
ásamt einum borgara. - kóþ
Kólumbíski herinn:
Bílasprengjur
víða um borg
SÚDAN Kofi Annan, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, sagði á fundi
öryggisráðs SÞ á mánudag frá
skelfilegu ástandi í Darfúr-héraði.
Annan sagði að aukin þátttaka
súdanska hersins í átökunum
gerði illt verra og hvatti þjóðar-
leiðtoga til að reyna að koma í
veg fyrir manngerðar hamfarir á
svæðinu.
Annan líkti ástandinu í Darfúr
við ástandið í Rúanda á síðasta
áratug og spurði hvort þjóðir
heims ætluðu sér að horfa upp á
nýjan harmleik í Darfúr, eftir að
hafa brugðist fólkinu í Rúanda.
Tvær milljónir manna hafa
yfirgefið heimili sín í Darfúr-
héraði síðan átök brutust út árið
2003. - kóþ
Annan eggjar þjóðir heims:
Harmleikur í
Darfúr-héraði
Skólasetning á Akureyri
Menntaskólinn á Akureyri verður
settur klukkan 15 í dag. Nemend-
ur skólans eru nú fleiri en nokkru
sinni, um 750 talsins. Tíu bekkjar-
deildir eru í 1. bekk og nemendur
þar um 250 alls. Þar af eru sextán
nemendur sem eru að koma beint
úr níunda bekk grunnskóla.
SKÓLASTARF
Sviptur á staðnum
Lögreglan í Reykjavík tók ökumann
á mánudag á áttatíu kílómetra hraða
þar sem hámarkshraði er þrjátíu
kílómetrar. Hann var sviptur ökurétt-
indum á staðnum enda á vel rúmlega
tvöföldum hámarkshraða.
LÖGREGLUFRÉTT
KOFI ANNAN Aðalritari SÞ líkir ástandinu
í Darfúr við ástandið í Rúanda.
DANMÖRK Dæmi eru um að au pair-
stúlkur í Danmörku séu látnar
vinna um hundrað tíma á viku og
fái aðeins áttatíu íslenskar krónur
greiddar fyrir vinnuvikuna.
Sagt er frá þessu í dagblaðinu
24 tímar. Að sögn blaðsins berast
árlega hátt í hundrað kvartanir
frá stúlkum til ráðningarstofa vítt
og breitt í landinu.
Stúlkurnar kvarta undan miklu
vinnuálagi, litlum launum og
slæmum aðbúnaði. Þekkt eru
dæmi um að au pair-stúlkur hafi
verið látnar deila herbergi með
gæludýrum fjölskyldunnar.
Algengast er að stúlkurnar séu
frá Asíu og Austur-Evrópu. - ks
Kvartanir í Danmörku:
Au pair-stúlkum
oft þrælað út