Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 36
MARKAÐURINN 13. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR6 Ú T L Ö N D Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Stjórn bandaríska bílaframleiðandans Ford greindi frá forstjóraskiptum hjá fyrirtækinu í síðustu viku. Bill Ford, langafabarn stofnandans, mun láta af störfum sem forstjóri en Alan Mulally, fyrrum for- stjóri flugvélaverksmiðjunnar Boeing, tekur sæti hans. Ford mun engu að síður halda sæti sínu sem stjórnarformaður fyrirtækisins. Ford launar Mulally ríkulega fyrir forstjóra- skiptin. Hann fær 2 milljónir bandaríkjadala eða rúmlega 142 milljónir íslenskra króna í árslaun auk bónusa og kaupréttarákvæði upp á 4 milljónir hluta í bréfum Ford. Þar að auki fær hann 18,5 milljónir dala eða ríflega 1,3 milljarða íslenskar krónur fyrir það eitt að taka starfið að sér. Til samanburðar námu árslaun Mulallys hjá Boeing 825.000 dölum eða 59,2 milljónum króna og er hækkunin við tilfærsluna því rúmlega tvöföld. Ofan á launin bættist svo við bónusgreiðslur og kaupréttarákvæði. Fjárhagsvandi Ford er ærinn og horfir fyrirtækið til þess að Mulally nái að snúa afkomu fyrirtækisins til betra horfs. Ford tapaði 1,3 milljörðum banda- ríkjadölum eða rúmum 90 milljörðum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins og lét Bill Ford, fráfarandi forstjóri fyrirtækisins, hafa eftir sér að hagræða þyrfti verulega í rekstrinum. Dró hann í efa að hann væri rétti maðurinn til að stýra fyrir- tækinu inn í framtíðina og var því afráðið að leita eftirmanns hans. TVEIR FORSTJÓRAR FORD Alan Mulally, verðandi forstjóri Ford, ásamt Bill Ford, fráfarandi forstjóra fyrirtækisins, á blaðamannafundi í síðustu viku. MARKAÐURINN/AP Góð launahækkun hjá forstjóra Ford Vonast er til að nýr forstjóri Ford snúi viðvarandi taprekstri bílaframleiðandans í hagnað. Bandaríski tölvuframleiðand- inn Dell hefur frestað útgáfu á afkomutölum fyrirtæksins fyrir annan fjórðung ársins. Ástæðan er athugasemdir sem banda- ríska fjármálaeftirlitið (SEC) gerði við bókhald fyrirtækisins síðastliðin fjögur ár. Að sögn Michaels Dell, stjórnarformanns og stofn- anda Dell, vinnur fyrirtækið með fjármálaeftirlitinu og eru stjórnendur tilbúnir að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að svara öllum athugasemdum eft- irlitsins fljótt og örugglega. Michael Dell sagðist ekki geta sagt fyrir um hvað rann- sókn fjármálaeftirlitsins þýddi fyrir fyrirtækið en stefnt væri að því að kynna uppgjörið eins fljótt og auðið væri. Athugasemdir fjármálaeftir- litsins auka enn á vandræðasúpu tölvuframleiðandans en í síð- asta mánuði þurfti fyrirtækið í varúðarskyni að innkalla fjórar milljónir rafhlaða frá Sony sem voru í fartölvum fyrirtækisins. Var það einhver mesta innköll- un á tölvubúnaði fram til þessa. Gengi bréfa í Dell hefur ekki farið varhluta af vandræð- unum en það féll um 3,7 pró- sent á markaði vestra í kjölfar fréttanna á mánudag og stendur nú í 20,85 dölum á hlut. - jab MICHAEL DELL, STOFNANDI DELL Bandaríska fjármálaeftirlitið hefur gert athugasemdir við bókhald tölvuframleiðandans Dell síðastliðin fjögur ár. MARKAÐURINN/AP Fleiri vandræði hjá Dell Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) greindi frá því í úttekt sinni á horfum í málmiðnaði í síðustu viku að verð á málm- um hefði náð hámarki og líkur væru á að það lækkaði um allt að 60 prósent á næstu fimm árum. Í úttektinni kemur fram að verð á málmum á borð við ál, kopar og stál hafi hækkað um heil 180 prósent á síðastliðn- um fjórum árum og séu málm- arnir á yfirverði. Líkur sé á að verð á kopar lækki um allt að 57 prósent á tímabilinu en álverð um 35 prósent. Spá IMF er þvert á væntingar fyrirtækja í málmframleiðslu, sem búast við stöðugu verði á málmum og hækkun frekar en lækkun. - jab ÁL Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að verð á áli muni lækka um 35 prósent á næstu fimm árum. MARKAÐURINN/VILHELM Spá lækkun á verði málma Bandaríska fjölmiðlasam- steypan News Corporation, sem er í eigu ástralska fjölmiðla- kóngsins Ruperts Murdochs, er sögð greiða leigu fyrir íbúð hans í námunda við Central Park í New York í Bandaríkjunum. Murdoch, sem flutti í íbúðina í maí, er langt frá því að vera á flæðiskeri staddur. Fyrirtæki hans á meðal annars dagblöðin The Times og New York Post auk vefsvæðisins MySpace og Fox-fréttastöðvarinnar, svo fátt eitt sé nefnt. Fékk hann 25 milljónir Bandaríkjadala, tæpa 1,8 milljarða íslenskra króna, í laun og aðrar greiðslur á síð- asta ári. Breska dagblaðið Telegraph segir íbúðina ekki af verri end- anum en um er að ræða þakhýsi í Trump-byggingunni við Park Avenue í New York og nemur leigan jafnvirði tæpra 3,6 millj- óna íslenskra króna á mánuði. Murdoch seldi íbúð sína á Manhattan fyrr á árinu og mun vera að endurnýja aðra íbúð í New York sem hann keypti af Laurence Rockefeller, syni bandaríska auðkýfingsins John D. Rockefeller, fyrir tveimur árum fyrir jafnvirði tæpra 3,2 milljarða íslenskra króna. Dagblaðið hefur eftir tals- manni fyrirtækisins að það greiði leiguna einungis þar til endurbótum á hinni nýju íbúð Murdochs lýkur. Hafi fjölskylda hans þurft að flytja í hús þeirra í Los Angeles vegna þess og dvelji hann fjarri henni lang- dvöldum starfsins vegna. - jab RUPERT MURDOCH Fjölmiðlasamstæða fjölmiðlamógúlsins Ruperts Murdochs greiðir leigu fyrir íbúð hans í New York. Greitt undir fjölmiðlamógúl Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur sett íranska ríkisbankann Saderat á svartan lista vestan- hafs. Að sögn Stuarts Levey, yfir- manns deildar innan bandaríska fjármálaráðuneytisins sem sér um mál er tengjast hryðjuverka- starfsemi og fjármálanjósnum, er bankinn grunaður um að hafa millifært fjármuni til hryðju- verkasamtaka. Saderat-bankinn hefur ekki haft formlega starfsemi í Bandaríkjunum en honum hefur verið kleift að flytja peninga til og frá Bandaríkjunum. Levey sagði í síðustu viku að fjármálastofnanir í Bandaríkjunum hefðu skor- ið á öll samskipti við bankann, sem er einn sá stærsti í Íran, vegna færslna á tugmilljónum Bandaríkjadala til ýmissa hryðju- verkasamtaka, meðal annars Hezbollah-samtakanna í Líbanon, í gegnum árin. Kvartanir vegna þessa hafa hvorki borist frá ráðamönnum í Íran né forsvarsmönnum bank- ans vegna þessa, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC. Viðmælendur útvarpsins segja hins vegar að bankinn hafi þjónað mikilvægu hlutverki sem milliliður fyrir viðskipti Írana við markaði víða um heim. - jab Íranskur banki á svörtum lista STUART LEVEY Levey segir íranska bank- ann Saderat hafa séð um millifærslur á fjármunum til hryðjuverkasamtaka. MARKAÐURINN/AFP Suðurlandsbraut 22 Glerárgötu 24-26 Sími 540 1500 Fax 540 1505 www.lysing.is Er húsnæði á teikniborðinu? Ert flú a› huglei›a kaup á atvinnuhúsnæ›i? "Me› sérsni›inni rá›gjöf í bland vi› persónulega fljónustu, höfum vi› hjá L‡singu hjálpa› fyrirtækjum af öllum stær›um og ger›um a› koma flaki yfir sína starfsemi." Sigurbjörg Leifsdóttir Rá›gjafi, fyrirtækjasvi›
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.