Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 31
Hannes kaupir | Hannes
Smárason, forstjóri FL Group,
hefur aukið hlut sinn í félaginu
um 1,5 prósent í gegnum Oddaflug
ehf.
Nær yfirtöku | Mosaic Fashions
hefur lokið áreiðanleikakönnun á
Rubicon Retail og skrifað undir
bindandi samning þess efnis að
kaupa öll hlutabréf keðjunnar.
Í tvennt | Samkvæmt heimildum
er áætlað að skipta Dagsbrún í
tvö félög, Og Vodafone og 365, og
verða félögin tvö skráð í Kauphöll
Íslands en Dagsbrún afskráð.
Auka umfangið | Dótturfélag
Baugs, Woodward Foodservice,
sem sérhæft er í veitingaþjón-
ustu, hefur keypt samkeppnisaðil-
ann DBC Foodservice.
Ruku út | Mikil spurn var eftir
bréfum í Existu þegar fagfjárfest-
um var gefinn kostur á að kaupa
bréf í félaginu í fyrsta áfanga
hlutafjárútboðs félagsins.
Til Íslands | Föroya Banki og
Föroya Sparikassi hafa uppi
áform um að skrá sig í Kauphöll
Íslands samhliða skráningu í
færeysku kauphöllina.
Hækka mest | Hlutabréf í
Landsbankanum og FL Group hafa
hækkað mest frá byrjun ágúst
þegar innlendur markaður náði
lægsta gildi sínu.
Bauð betur | Bandaríska lyfja-
fyrirtækið Barr setti fram nýtt
yfirtökutilboð í Pliva og hækkaði
boð sitt í 820 kúnur á hlut. Actavis
býður 795 kúnur.
Nýtt útboð | Hlutafjárútboð fer
fram í Marel á miðvikudag og
fimmtudag þar sem 75 milljón
hlutir verða boðnir til sölu á geng-
inu 74 krónur á hlut.
Eignaleigan Lýsing
Nei er stundum
besta svarið
14
Eftir 11. september
Markaðir venjast
hryðjuverkum
8
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 13. september 2006 – 35. tölublað – 2. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Verðbólgan náði hámarki í síðasta
mánuði að mati Þóru Helgadóttur,
sérfræðings KB banka. Verðbólga
mældist 8,6 prósent á ársgrund-
velli í ágúst. Vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,61 prósent í sept-
ember og nemur tólf mánaða
verðbólga 7,6 prósentum.
KB banki spáði 0,8 prósenta
verðbólgu í september og er
lækkun tólf mánaða verðbólgu
því talsvert meiri en greining-
ardeild bankans gerði ráð fyrir
„Verðbólgan fer líklega aðeins
upp aftur og verður milli átta og
8,5 prósent á næsta ársfjórðungi.
Á næsta ári lækkar hún síðan
nokkuð skarpt,“ segir Þóra.
Björn Rúnar Guðmundsson,
sérfræðingur Landsbankans,
segir niðurstöðuna hagstæða
enda hafi krónan styrkst kröft-
uglega í kjölfarið. Það sé merki
um að markaðurinn telji tíðindin
jákvæð.
Almennt hefur verið búist
við því að Seðlabankinn hækki
stýrivexti um fimmtíu punkta
nú á fimmtudag. Björn Rúnar
telur ólíklegt að verðbólgutöl-
urnar hafi áhrif á þá ákvörðun.
„Þessi verðbólguhjöðnun hlýtur
að styrkja Seðlabankann í þeirri
trú að hann sé að gera rétt. Ég á
ekki von á því að bankinn hætti
við að hækka vexti, þótt kannski
séu örlítið meiri líkur en áður
á að hækkunin verði aðeins um
tuttugu og fimm punktar.“ - jsk
Verðbólga hefur náð hámarki
Tólf mánaða verðbólga mælist 7,6 prósent og er undir spám bankanna.
Styrkir vaxtastefnu Seðlabankans að mati sérfræðings.
Jón Skaftason
skrifar
Stjórn Dagsbrúnar mun leggja þá tillögu fyrir
hluthafafund að félaginu verði skipt í tvö aðskilin
rekstrarfélög, Teymi og 365, sem bæði verða skráð
í Kauphöll Íslands. Teymi verður stofnað utan um
fjarskiptahluta rekstursins og hlutafélagið 365 utan
um fjölmiðla- og afþreyingarhlutann. Félögin verða
skráð í Kauphöll Íslands í nóvember næstkomandi.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður
Dagsbrúnar, segir félagið hafa stækkað mikið und-
anfarin misseri og mánuði. Félögin tvö, Teymi og
365, séu nú hvort um sig stærri en Dagsbrún var í
upphafi árs „Við teljum möguleika þessara tveggja
félaga meiri sitt í hvoru lagi en saman.“
Þriðja félagið, K2, verður stofnað utan um þau
fyrirtæki sem ekki falla að kjarnastarfsemi hinna
tveggja. Teymi og 365 munu þó hvort um sig eiga
þrjátíu og fimm prósenta hlut í K2 en aðrir fjár-
festar afganginn. Loks hyggst Dagsbrún selja fast-
eignir í eigu félagsins. Áætlað er að þessar aðgerðir
skili sér í lægri skuldastöðu sem nemur samtals
þrettán til fjórtán milljörðum króna.
Árni Pétur Jónsson, núverandi forstjóri Og
Vodafone, verður forstjóri Teymis. Dótturfélög
Teymis verða meðal annars símafélögin Og
Vodafone og Sko, færeyska fjarskiptafélagið Kall,
Securitas, Kögun, Skýrr og EJS.
Undir hlutafélagið 365 heyra meðal annars 365
fjölmiðlar, Sena, D3, Sagafilm og breska prent-
smiðjan Wyndeham. Þá á félagið tuttugu prósenta
hlut í Dagsbrun Media Fund, sem stendur að útgáfu
danska fríblaðsins Nyhedsavisen.
Rekstur fjölmiðla á Íslandi hefur óneitanlega
verið brokkgengur. Ari Edwald, forstjóri 365, telur
þó að félagið eigi fullt erindi á markað. „Það má vel
vera að það taki tvo til þrjá ársfjórðunga að skapa
okkur einhverja sögu. 365 hf. verður gagnsærra
sem sjálfstætt félag á markaði og ég geri ráð fyrir
að enn skýrari kröfur verði gerðar um rekstrarár-
angur en áður.“
Ari segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um
tilteknar breytingar á rekstri 365.
Dagsbrún skipt upp
í tvö rekstrarfélög
Fjarskiptafélagið Teymi og fjölmiðlafélagið 365 verða skráð í
Kauphöll Íslands. Dagsbrún selur fasteignir í sparnaðarskyni.
AF KYNNINGARFUNDI DAGSBRÚNAR Rekstri Dagsbrúnar
hefur verið skipt í tvennt. Teymi og hlutafélagið 365 verða skráð í
Kauphöll Íslands í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Áhrif viðskiptahallans
Vera kann að krónan
braggist fullhratt
10-11
Síðumúli 16-18, 105 Reykjavík ı s: 545 4400 fax: 545 4401 ı www.gutenberg.is
samstarf sem skapar verðmæti
Í fjármálageiranum hefur komið
fram nokkur gagnrýni á að kaup-
um Hannesar Smárasonar, for-
stjóra FL Group, í félaginu fyrir
helgi hafi ekki fylgt tilkynning til
Kauphallar.
KB banki sagði tíma-
setninguna óheppilega
vegna nándar við árs-
fjórðungsuppgjör og
væntanlegrar skráning-
ar Icelandair Group á markað.
Í gær bætti svo Baugur Group
sem líkt og Hannes er fruminn-
herji í félaginu, við hlut sinn í
félaginu og keypti fyrir tæpar
510 milljónir króna.
„Þetta fór ekki fram hjá
okkur,“ segir Þórður Friðjónsson,
forstjóri Kauphallarinnar, og
kveður allt sem þyki óvenjulegt
eða veki athygli tekið til sér-
stakrar skoðunar. Hann segir
sömu reglur gilda og í öðrum
kauphöllum á Norðurlöndum um
stöðvun viðskipta. Þar sé ekki
um sjálfvirkt kerfi að ræða þótt
bréf hækki hlutfallslega umfram
markað, viðskipti séu ekki stöðv-
uð fyrr en eftir fyrstu skoðun.
Skoða allt sem
ekki er venjulegt
Glitnir hefur gefið út víkjandi
skuldabréf í Bandaríkjunum fyrir
250 milljónir dala, en
það samsvarar um 18
milljörðum íslenskra
króna. Kaupendur bréf-
anna voru að megninu til banda-
rískir fagfjárfestar.
Að sögn Glitnis var mikil
umframeftirspurn eftir skulda-
bréfunum, en alls óskuðu fjárfest-
ar eftir að kaupa fyrir 1,3 millj-
arða dala, eða sem samsvarar 93
milljörðum króna.
„Ánægjulegt er að sjá hversu
góðar viðtökur útgáfan hlýtur,“
segir Tómas Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs
Glitnis, og bætir við að með henni
styrkist enn frekar eiginfjárstaða
bankans. Kjörin sem bankanum
buðust eru sögð heldur betri en
verið hafa hjá bankanum að und-
anförnu. - óká
Gáfu út fyrir 18
milljarða króna