Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 75

Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 75
MIÐVIKUDAGUR 13. september 2006 39 FÓTBOLTI Garðar Jóhannsson hefur eins og alkunna er snúið aftur heim eftir stutta dvöl í Noregi og lék með Val gegn Grindavík á mánudagskvöldið. Hann var í ágúst seldur til Fredrikstad í Nor- egi en þar sem hann hafði þegar leikið með tveimur félögum, Val og KR, á almanaksári FIFA, sem hófst þann 1. júlí síðastliðinn er hann ekki löglegur með þriðja liðinu fyrr en í júlí á næsta ári. Tæknilega séð var Garðari heimilt að semja við Fredrikstad en hann fengi ekki leikheimild með liðinu fyrr en á næsta ári. Fredrikstad sótti um undan- þágu vegna Garðars til FIFA en því var synjað. Alþjóðlegi félaga- skiptaglugginn lokaði um síðustu mánaðamót og opnar aftur þann 1. janúar næstkomandi og segir Garðar í samtali við Fréttablaðið að verið sé að vinna í því að fá undanþágu fyrir félagaskipti hans til Noregs þá. „Staðan í þessu máli er þannig að nú er verið að bíða til að sjá hvort FIFA veitir þessu máli und- anþágu þannig að ég geti farið út í janúar,“ sagði Garðar. Hann skrif- aði undir þriggja og hálfs árs samning við Fredrikstad í síðasta mánuði en varð að rifta honum. „Það var eina leiðin til að ég fengi að spila aftur með Val. En þetta er skelfilega svekkjandi og afar leið- inlegt mál. Ég náði að vera atvinnu- maður í ekki nema 26 klukku- stundir. Ég vona að sá tími lengist á nýju ári,“ sagði Garðar. Forráðamenn Fredrikstad vilja fá Garðar en segjast ætla að end- urskoða málið ef núverandi undan- þágubeiðni verði hafnað. „Ef þetta dregst enn meira á langinn ætla þeir að sjá til. Þetta er mikil óvissa og við verðum bara að sjá til.“ Garðar var seldur til Vals frá KR um miðjan júlí síðastliðinn. Áður en hann fór til Noregs hafði hann skorað fjögur mörk í fjórum leikjum fyrir Val en leikirnir verða að óbreyttu sjö talsins þegar keppnistímabilinu lýkur. - esá FIFA veitti máli Garðars Jóhannssonar ekki undanþágu: Náði að vera atvinnumaður í Noregi í 26 klukkustundir GARÐAR JÓHANNSSON Hér í leik með Val gegn Grindavík á mánudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Líklegt þykir að Jimmy Bullard, leikmaður Fulham, verði ekki meira með á þessari leiktíð eftir að læknir Fulham-liðsins skýrði frá því í gær að krossband væri slitið í leikmanninum. Hann verður því líklega frá í allt að níu mánuði.Bullard þótti leika mjög vel með Wigan á síðustu leiktíð en hann gekk í raðir Fulham í sumar og hefur verið að banka á dyrnar hjá enska landsliðinu að undan- förnu. - dsd Meiðsli í ensku deildinni: Tímabilið búið hjá Bullard JIMMY BULLARD Er með slitið kross- band. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Aston Villa fékk í gær kantmanninn Didier Agathe til liðs við sig. Leikmaðurinn var samningslaus og því þarf Aston Villa ekki að borga krónu fyrir hann. Agathe hefur verið að æfa með Aston Villa undanfarið eftir að Celtic leysti leikmanninn undan samningi í síðasta mánuði. „Agathe er ekki hérna til að fylla upp í hópinn. Hann er hér vegna þess að hann er góður leikmaður og hungraður í að spila og standa sig vel fyrir Aston Villa,“ sagði O‘Neill. - dsd Martin O‘Neill verslar: Didier Agathe til Aston Villa FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry mun ekki leika með Arsenal í kvöld þegar liðið mætir þýska liðinu Hamburg í Meistaradeild Evrópu. Henry kom meiddur til baka eftir landsleikina í síðustu viku en lék þó með Arsenal á laugar- daginn í ensku úrvalsdeildinni. Henry fann aftur fyrir þessum meiðslum á æfingu í gær og ákveðið hefur verið að hann leiki ekki með liðinu í kvöld. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, býst samt við því að Henry verði klár um næstu helgi þegar Arsenal mætir Manchester United á útivelli. - dsd Meiðsli hrjá Arsenal: Henry ekki með í kvöld THIERRY HENRY Verður ekki með Arsenal í kvöld en meiðslin eru þó ekki alvarleg. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES – Mest lesið Sirkus kemur á föstudögum! Nú færðu nýtt og litríkara Sirkus tímarit með Fréttablaðinu á föstudögum. Sirkus er blaðið sem flytur þér skemmtilegar fréttir af áhugaverðu fólki og sér til þess að þú vitir allt sem er að gerast um helgina. Auk þess fjallar blaðið á ferskan hátt um tísku, kvikmyndir, tónlist, lífsstíl og alls kyns fleira skemmtilegt. Föstudagar eru sirkusdagar Helgin í hnotskurn – ferskustu fréttirnar Hollywoodslúðrið og persónuleg viðtöl F í t o n / S Í A FÓTBOLTI Breiðablik vann í gær frækinn sigur á HJK Helsinki í Evrópukeppni félagsliða en keppni í riðli Íslands fer fram í Finnlandi. Fyrirliðinn Ólína G. Viðarsdóttir kom Blikum yfir í síðari hálfleik en heimamenn jöfnuðu metin skömmu síðar. Það var svo Greta Mjöll Samúelsdóttir sem tryggði Breiðabliki sigur í leiknum með einni af síðustu snertingum leiks- ins. Guðmundur Magnússon, þjálf- ari Blika, var vitaskuld kampakát- ur og stoltur af sínu liði þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. „Þetta var afskaplega ljúft. Leikurinn var erfiður enda finnska liðið hörkugott. En við agaðan og góðan leik og áttum þetta skilið.“ Hann segir leikinn hafa verið mjög jafnan. „Liðin skiptust á að sækja þó að við höfum ef til vill aðeins haldið okkur til baka í fyrri hálfleik. Í þeim síðari færðum við okkur svo framar á völlinn og vorum mikið með boltann,“ sagði Guðmundur. Ólína skoraði fyrsta mark leiksins með góðu skoti á 60. mínútu og lið Helsinki jafnaði metin þrettán mínútum síðar. „Við fengum svo góða og hraða skyndisókn á 93. mínútu þar sem kom fyrirgjöf frá hægri inn á teig þar sem Greta Mjöll kom og afgreiddi knöttinn í netið. Svo var tekin miðja og leikurinn strax flautaður af. Finnnar voru mjög ósáttir og það sló algera þögn á áhorfendur. Ég held að fáir hér hefðu trúað þessu en við höfðum allan tímann trú á sjálfum okkur.“ Næsti leikur verður á morgun gegn Evrópumeisturum Frankfurt sem vann 6-0 sigur á Universitetet Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi. Tvö lið komast upp úr hverjum riðli og má því segja að sigur Blika í dag hafi verið afar mikilvægur. Frank- furt verði að teljast líklegur sigur- vegari og baráttan um 2. sætið standi á milli hinna liðanna. Þar stendur Breiðablik vel. „Ég sá Hvít-Rússana spila við Frankfurt í dag og er kannski ekki mikið að marka þann leik. En ég tel að finnska liðið sé ef til vill aðeins sterkara,“ sagði Guðmundur. - esá Breiðablik vann frækinn sigur á HJK Helsinki í gær: Greta Mjöll þagg- aði í Finnunum MARKASKORARAR BLIKA Hér fyrir miðri mynd eru þær Greta Mjöll Samúelsdóttir og Ólína Viðarsdóttir sem skoruðu mörk Breiðabliks í gær. Hér fagna þær sigri á Val í Meistarakeppni KSÍ fyrr í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Ben Thatcher var í gær dæmdur í átta leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir fólskulega árás á Pedro Mendes, leikmann Portsmouth. Hann fékk einnig fimmtán leikja bann sem er skilorðsbundið í tvö ár. Manchester City hafði þegar sjálft sett Thatcher í sex leikja bann og dregið af honum laun í sex vikur. - esá Ben Thatcher hjá Man. City: Átta leikja bann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.