Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 58
13. september 2006 MIÐVIKUDAGUR16
VISSIR ÞÚ...
... að Michael Jackson er fæddur
29. ágúst 1958 og er því nýlega
orðinn 48 ára gamall?
... að hann heitir í raun Michael
Joseph Jackson?
... að hann fæddist í Gary, Indiana?
... að hann byrjaði söngferil sinn
sjö ára gamall sem aðalsöngvari
The Jackson 5?
... að hann tók upp fyrsta sólólagið
sitt árið 1971 en var þó enn í
hljómsveitinni?
... að sólóferillinn hófst fyrir alvöru
1979?
... að formlega sagði hann skilið
við systkini sín í hljómsveitinni árið
1984?
... að á ferli sínum tók Jackson upp
og framleiddi best seldu plötu allra
tíma, Thriller, sem seldist í yfir 51
milljón eintaka?
... að Thriller hlaut þrettán Grammy
verðlaun?
... að þrettán laga Jacksons hafa
komist í fyrsta sæti á vinsældalist-
um í Bandaríkjunum?
... að Jackson hefur fengið fjölda
tilnefninga og verðlauna á fjörutíu
ára söngferli sínum?
... að hann hefur tvisvar verið
tekinn inn í „Rock and Roll Hall of
Fame“, í fyrra skiptið sem söngvari
Jackson 5 árið 1997 og síðar undir
eigin nafni árið 2001.
... að á árunum 1988 til 2005 bjó
Jackson á búgarði sínum Never-
land Ranch?
... að þar byggði hann skemmtigarð
og dýragarð fyrir fátæk og veik
börn?
... að hann hélt oft náttfatapartí á
búgarði sínum fyrir börnin?
... að þessi athöfn vakti mikla
athygli fjölmiðla þegar kom í
ljós að sum börnin sváfu í rúmi
söngvarans?
... að þetta kom fyrst í ljós þegar
Jackson var ákærður fyrir barna-
misnotkun árið 1993?
... að þau urðu á ný að fjölmiðlafári
árið 2003 í frægri heimildarmynd?
... að heimildarmyndin heitir Living
with Michael Jackson?
... að réttað var á ný yfir Jackson
vegna ákæru um barnamisnotkun
árið 2005?
... að söngvarinn var fundinn sak-
laus í því dómsmáli?
... að hægt er að fá að vita meira á
www.michaeljackson.com
Flestir tengja nafn Jims Henson við Prúðuleikarana,
brúðuhóps sem naut fádæma vinsælda í sjónvarpi víða
um heim á áttunda og níunda áratugnum. Þegar þessi
stórmerki listamaður lést hins vegar ótímabærum dauð-
daga árið 1990, skildi hann eftir sig óteljandi kvikmyndir
og þætti og margt af því tengdist Prúðuleikurunum
ekki með neinum hætti. Enn er verið að framleiða efni
undir nafni Hensons þótt sumum þyki það ekki standast
samanburð við verk meistarans sjálfs. Hér eru fimm bestu
myndir fyrirtækisins.
1.The Dark Crystal (1982) Jen fær það erfiða hlutverk
að lagfæra aldagamlan kristal með það fyrir augum að
koma á jafnvægi í veröld sinni og stilla til friðar. Einstakt
listaverk í alla staði sem sýndi og sannaði að Henson gat
meira en að tala í gegnum sokk.
2.The Great Muppet Caper (1981) Önnur bíómyndin
um Prúðuleikarana segir frá því þegar froskurinn Kermit,
björninn Fossi og viðundrið Gunnsi rannsaka dularfullt
skartgriparán í Bretlandi. Stórskemmtileg mynd með
fjölda þekktra (mennskra) leikara í aukahlutverkum.
3.The Witches (1990) Byggir á einni vinsælustu sögu
rithöfundarins Roalds Dahl um lítinn dreng sem kemst
að raun um að nornir eru til í raun og veru og eru jafn
vondar, ef ekki verri en sögurnar segja. Góð saga, leikur
og húmor gera myndina að góðri skemmtun.
4.The Labyrinth (1986) Eigingjarnri stúlku verður að ósk
sinni þegar svartálfakonungur (leikinn af David Bowie)
rænir bróður hennar en sér eftir öllu saman og leggur af
stað í björgunarleiðangur. Flott mynd sem líður lítillega
fyrir tónlist Bowies, sem er ekki upp á sitt besta.
5.The Muppet Christmas Carol (1992) A Christmas
Carol, skáldsaga Charles Dickens um iðrun og yfirbót,
fær skemmtilega með hjá Henson-fyrirtækinu þar sem
Prúðuleikararnir leika á als oddi. Michael Caine er sann-
kallaður senuþjófur sem Skröggur gamli.
TOPP 5: JIM HENSON
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakteríur Bætt líðan með betra lofti
Ný sending komin.
Kröftug ryksöfnun. Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhreinindum í stað hefðbundins fílters.
Öflugt jónastreymi. Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða bakteríum, ryki,
mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi
útfjólublár lampi. Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur. Áhrifamikil lyktareyðing. Tækið
eyðir lykt auðveldlega svo sem reykingalykt, matarlykt og fúkalykt. Ljóshvatasía. Ljóshvati er efni
sem sýnir hvötunarviðbrögð þegar ljós skín á það. Þessi sía eyðir lífrænum efnasamböndum eins og
köfnunarefnisoxíði, úrgangsgasi, ýmsum bakteríum, vondri lykt o.s.frv. Þrjú skref. HI, MED og LOW
stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós. Ljós sýna hvort
þrífa þarf fílterinn (stál blöðin) eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Falleg og hentug hönnun.
Tækið er afar vel hannað bæði með útlit og notagildi í huga. Orkusparandi hönnun. Vegna orkusparandi
hönnunar notar tækið aðeins 28W á klst.550 5000
AUGLÝSINGASÍMI