Fréttablaðið - 13.09.2006, Blaðsíða 67
MIÐVIKUDAGUR 13. september 2006 31
Nýsjálenski leikstjórinn Peter
Jackson er með nýja ævintýra-
mynd á prjónunum. Eftir að hafa
heillað bíógesti heimsins með
aðlögun sinni á Hringadróttins-
sögu og hrætt líftóruna úr öðrum
með King Kong ætlar Jackson að
horfa til himins og gera bardaga-
mynd með drekum í aukahlut-
verki. Fréttavefur The Guardian
í Bretlandi greinir frá því að
Jackson hafi heillast af sögum
Naomi Novik, sem kenndar eru
við Téméraire, en persóna í þeim
bókum er samnefnt skrímsli.
Jackson segir bækurnar blanda
saman þeim bókmenntagreinum
sem hann heillast hvað mest af,
sögulegri skáldsögu og fantasíu,
en hann segist ekki geta beðið
eftir því að sjá dreka gera loft-
árásir í Napóleonsstríðunum.
Sögurnar gerast á þeim tíma og
segja af breska sjóliðsforingjan-
um Will Laurence, sem verður
fyrir því óláni að finna drekaegg,
en sá fundur vindur allverulega
upp á sig.
Upplýst er einnig að Jackson
hafi í hyggju að kvikmynda met-
sölubókina Svo fögur bein eftir
Alice Sebold og er tökur á henni
fyrirhugaðar á síðari hluta næsta
árs. - khh
Drekar í Napóleonsstríðunum
Páll Skúlason, prófessor og fyrr-
um rektor Háskóla Íslands, flytur
fyrirlestur í boði Stofnunar Sig-
urðar Nordals á morgun í tilefni af
120 ára afmælis dr. Sigurðar Nor-
dals. Fyrirlesturinn nefnist
„Menning og markaðshyggja: Er
menningarboðskapur Sigurðar
Nordals samrýmanlegur nútíma-
markaðshyggju?“
Páll Skúlason varði doktorsrit-
gerð sína um túlkunarfræði
franska heimspekingsins Paul
Ricours við Kaþólska háskólann í
Louvain í Belgíu 1973. Hann var
ráðinn lektor í heimspeki við
Háskóla Íslands 1971 og síðan
prófessor 1975. Páll var kjörinn
háskólarektor 1997 og gegndi því
starfi til ársins 2005.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Norræna húsinu og hefst kl. 17 á
morgun. - khh
Menning og markaður
Sönghópurinn Veirurnar gefur út
geisladiskinn Stemmningu sem
geymir átján íslensk og erlend
sönglög. Diskurinn er gefinn út í
minningu Jóhanns Péturs Sveins-
sonar.
Hópurinn hefur starfað stopult
í átján ár en upphaflega var um að
ræða lítinn hóp frændfólks og vina
sem söng með Skagfirsku söng-
sveitinni í Reykjavík. Fyrir sjö
árum gekk stjórnandinn Þóra
Fríða Sæmundsdóttir til liðs við
hópinn og síðan hefur hann haft
reglubundnar æfingar en þetta er
fyrsti diskurinn sem hópurinn
gefur út.
Á diskinum heyrast til dæmis
lög á borð við „Hættu að gráta
hringaná“ og „Fagurt er um sumar-
kvöld við sæinn“. Upptökustjóri
var Sigurður Rúnar Jónsson en
meðleikarar Kristinn Örn Krist-
insson og Katrín Pálmadóttir.
- khh
Stemning
HEILRÆÐAVÍSUR OG HUGLJÚF SÖNGLÖG
Sönghópurinn Veirurnar kominn á
stafrænt form.
LEIKSTJÓRINN PETER JACKSON
Hrífst af ævintýrum og epík og
ætlar að gera drekamynd.
PÁLL SKÚLASON PRÓFESSOR Ræðir um
menningarboðskap Sigurðar Nordals í
erindi sínu á morgun.
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í Landnámssetri
í september og október
Miðvikudagur 13. september kl. 20 Uppselt
Föstudagur 15. september kl. 20 Uppselt
Laugardagur 16. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 17. september kl. 20 Uppselt
Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 24. september kl. 16 Uppselt
Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 28. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
„EKKI HUGSA.
DANSAÐU!“
Miðasala 568 8000 www.id.is
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN