Fréttablaðið - 13.09.2006, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. september 2006 3
HVAÐ ER... HJÓLBARÐI?
Flest dekk sem notuð eru á fólksbíla
í dag eru svokölluð radíaldekk, sem
vísar til þess hvernig þau eru upp-
byggð. Kíkjum á einfalda útgáfu.
Þegar dekkið er sett saman er
byrjað á tveimur sterkum vírum sem
sjá um að halda lögun dekksins við
felguna og koma í veg fyrir að það
losni. Svo eru þverofnir belgþræðir
lagðir á milli og lögun dekksins fer
að koma í ljós. Ofan á belgþræðina,
undir bananum eða slitfletinum, eru
lögð stálvírbelti, vanalega tvö.
Í hliðarnar koma svo styrktarlag
og kantsætisgúmmí sem liggja ofan
á vírunum og út eftir belg dekksins.
Utan á belgþræðina kemur kant-
gúmmílag og að innan er hjólbarðinn
klæddur með gúmmílagi líka. Þá er
bara eftir að klæða dekkið að utan
með gúmmílagi, sem í er steypt
munstur.
Á hliðum hjólbarða er oft mikið
magn upplýsinga sem sumum kunna
að virðast óskiljanlegar við fyrstu sýn.
Venjulega er nafn framleiðanda og
dekkjategundar með stærstum stöf-
um, en einhvers staðar á belgnum
má finna talna- og stafarunu á borð
við 195/65R15 og svo aðra styttri, til
dæmis 91T.
Fyrri runan er þannig byggð upp
að „195“ stendur fyrir breidd slitflatar,
eða mynsturs, í millimetrum. „65“ er
hæð dekksins frá felgu sem prósenta
af breidd slitflatar, í þessu tilfelli
65 prósent af 195 mm eða 126,75
mm. „R“ stendur fyrir radial og vísar
til uppröðunar burðarlaga í dekk-
inu. Hinn möguleikinn er diagonal
bygging sem er nánast óþekkt orðin í
fólksbíladekkjum en þá vantar „R“-ið
á hjólbarðann. Loks er svo „15“ sem
stendur fyrir felgustærðin, í þessu
tilfelli 15 tommur.
Seinni runan vísar til burðarþols
og hraðatakmörkunar. Til að finna
burðarþolið er „91“ margfaldað með
5,792, hvernig sem á því nú stendur,
og fæst þá burðarþolið í kílóum; 527
kg fyrir hvert hjól. Hraðatakmörkin
eru lesin út úr bókstanum og er sem
hér segir: L=120, M=130, N=140,
P=150, Q=160, R=170, S=180,
T=190, U=200, H=210, V=240,
W=270 og Y=300. Í þessu tilfelli þolir
dekkið því 190 km hraða.
Á sumum dekkjum má líka finna
stafina M+S eða M&S sem stendur
fyrir mold og snjó og gefur til kynna
að um hentugan heilsárs- eða vetrar-
hjólbarða sé að ræða.
Meginreglan í hjólbarðastærðum
er sú að því lægri sem belgurinn er,
því betur lætur bíllinn að stjórn og
því hraðar er hægt að aka honum.
Helgast þetta meðal annars af því að
sé barðinn hár geta hliðarkraftar haft
mikil áhrif á lögun hjólbarðans. Við
venjulegar aðstæður ætti slitflöturinn
að vera beint undir felgunni en þegar
hliðarkraftar eru sterkir getur dekkið
svignað þannig að spor slitflatarins
lendir út undan felgunni.
Á móti kemur að háir hjólbarðar
fjaðra betur og gera bílinn því mýkri í
akstri, til dæmis á malarvegum.
Margbrotin uppbygging og
torlæsilegar merkingar
Dekk eru mikil völundarsmíð og á hlið-
um þeirra má finna ýtarlegar upplýsingar
um þau, kunni maður að lesa úr þeim.
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS!
WWW.GRAS.IS
Ný regnhlífarsamtök áhuga-
fólks um örugga umferð.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri í
Keflavík og stjórnarmaður í FÍB,
var á sínum tíma hvatamaður að
stofnun áhugahóps um örugga
Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut var á þeim
tíma mikill slysavegur og slæm
umferðarslys þar allt of algeng.
Eftir að sá hluti leiðarinnar sem
nú hefur verið tvöfaldaður var
opnaður umferð fyrir tveimur
árum hefur ekki orðið banaslys á
Reykjanesbraut. Áður urðu allt að
sex banaslys árlega á brautinni.
Steinþór ritaði grein í Morgun-
blaðið nýlega. Í henni hvetur hann
til þess að stofnuð verði eins konar
regnhlífarsamtök sams konar
áhugahópa um úrbætur á íslensku
vegakerfi alls staðar á landinu og
leggur til að opnað verði sérstakt
vefsvæði sem verði vettvangur og
fundarstaður áhugafólks um
örugga umferð og vegabætur sem
stuðla að öruggari umferð.
Þetta vefsvæði er nú í vinnslu
og er slóðin þangað www.fib.is/
samstada. Á þessu nýja vefsvæði
er hægt að lesa ofannefnda grein
Steinþórs. Spjallrásir eru í vinnslu
og munu verða virkar á næstunni
ein af annarri. (www.fib.is)
Samstaða stofnuð
Ekki hefur orðið banaslys á Reykjanesbrautinni eftir að hún var tvöfölduð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nú er mögulegt í fyrsta sinn að
götuskrá ný fjórhjól og reyndar
gömul líka, uppfylli þau ströng
skilyrði.
Í sumar var reglugerð um gerð og
búnað ökutækja breytt á þann hátt
að fjórhjól geta fengið götuskrán-
ingu sem bifhjól. Sú breyting sem
orðið hefur snýst þannig fyrst og
fremst um það að nú mega þung
bifhjól hafa fjögur hjól. Þessi
breyting er samevrópsk og gerir
framleiðendum fjórhjóla kleift
að selja götuskráð hjól, að því
gefnu að þau uppfylli þær kröfur
sem gerðar eru til bifhjóla.
Þeir aðilar sem hafa hug á að
flytja inn fjórhjól til götuskrán-
ingar þurfa að skila inn þeim gögn-
um sem krafist er almennt um bif-
hjól.
Hvað varðar skráningu notaðra
hjóla þurfa götuskráð fjórhjól að
uppfylla sömu kröfur og þung bif-
hjól. Kröfunum er lýst í reglugerð
um gerð og búnað ökutækja og
hægt er að ganga úr skugga um
sumar af þeim með skoðun á skoð-
unarstofu. Það verður hins vegar
alltaf að framvísa vottorðum frá
framleiðanda ökutækjanna fyrir
útblástursmengun og hljóðmeng-
un. Kröfurnar sem hjólin þurfa að
uppfylla eru þær kröfur sem gilda
þegar sótt er um götuskráningu,
ekki þegar hjólið var fyrst skráð.
Núgildandi kröfur um útblást-
ursmengun bifhjóla eru frá árinu
2002 sem þýðir að hjól sem eru
framleidd fyrir þann tíma geta
ekki uppfyllt kröfurnar. En jafn-
vel þótt fjórhjól hafi verið fram-
leitt eftir 2002 er alls ekki víst að
það uppfylli umræddar kröfur
enda virðist stærsti hluti fram-
leiddra fjórhjóla ennþá ætlaður
einungis til notkunar utan vega.
Ökuskírteini fyrir flokk B
(fólksbifreið/sendibifreið) veitir
rétt til að stjórna bifhjóli á þrem-
ur, fjórum eða fleiri hjólum utan-
vega, en fyrir götuskráningu þarf
ökuskírteini í flokki A (bifhjól).
(Af vef Umferðarstofu)
Fjórhjól á götur landsins
Hægt er að skrá fjórhjól sem bifhjól með fjórum hjólum.
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði