Fréttablaðið - 13.09.2006, Qupperneq 38
MARKAÐURINN 13. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T A S K Ý R I N G
Óvissa um horfur í efnahagslífinu og
hræðsla við hvað koma skyldi var það
sem einkenndi andrúmsloftið um heim
allan eftir hryðjuverkaárásirnar á
Bandaríkin þann 11. september 2001. Ótti
einstaklinga við flug og kröfur um aukið
öryggi farþega bentu til þess að fyrirtæki
í rekstri tengdum ferðaþjónustu myndu
fara illa.
Fyrstu viðbrögð fjárfesta voru því hálf-
gert óðagot og strax í kjölfar árásanna
varð snörp lækkun á hlutabréfamörkuð-
um um heim allan. Flestir markaðir voru
þó merkilega fljótir að rétta aftur úr
kútnum og höfðu náð fyrri gildum innan
nokkurra vikna. Því er ekki hægt að segja
að áhrif á hlutabréfamarkaði hafi verið
veruleg, að minnsta kosti ekki þegar til
lengri tíma er litið.
BANDARÍSKAR VÍSITÖLUR ÞOKAST UPP Á
VIÐ
Á þeim fimm árum sem liðin eru frá falli
Tvíburaturnanna hafa flestar bandarískar
hlutabréfavísitölur þokast upp á við. Dow
Jones-vísitalan og Standard & Poor’s vísi-
talan hafa báðar bætt við sig tæpum nítján
prósentum frá því 11. september. Dow
Jones, sem náði sínu lægsta gildi þann 9.
október 2002, eða 7286,27 stigum, hefur
verið á stöðugri uppleið síðan í mars árið
2003. Í maí á þessu ári náði hún 11.642,65,
hæsta gildi sínu á síðastliðnum sex árum,
einungis hundrað punktum frá meti sínu.
Nasdaq-vísitalan hefur á sama tímabili
hækkað um 28 prósent. Þrátt fyrir að þess-
ar hækkanir séu ekki gríðarlegar segja
sérfræðingar þær endurspegla hluta-
bréfamarkaði sem stjórnast ekki lengur
af hræðslunni við hryðjuverkaárásir.
FJÁRFESTAR AÐLAGAST HÆTTUNNI
Eftir hverja hryðjuverkaárás frá því 11.
september, í Tyrklandi í nóvember 2003,
eftir Madríd í mars 2004 og London 2005,
hefur sama mynstrið endurtekið sig.
Hlutabréfavísitölur hafa tekið snarpar
dýfur en náð sér tiltölulega fljótt á strik
aftur. Það tók þær flestar til að mynda
minna en einn dag að jafna sig eftir
hryðjuverkaárásirnar á London.
Síðan 11. september hafa viðbrögð
markaða við hryðjuverkum sífellt orðið
minni og skammvinnari. Þessi örlagaríki
dagur virðist því hafa leitt það af sér að
fjárfestar taka nú hryðjuverkabreytuna
með í reikninginn, markaðirnir eru farnir
að þekkja áhrifin sem ódæðin
hafa og eru fljótari að hrista
þau af sér. Fjárfestar virðast
því hafa lært það af hryðju-
verkunum að vernda sig
betur gegn ógæfu, af hvaða
tagi sem er, og geyma ekki öll
eggin í sömu körfunni.
FLUGIÐ FÉKK ÞYNGSTA
HÖGGIÐ
Ein var sú atvinnugrein sem
varð fyrir meiri áhrifum
af 11. september en flestar
aðrar. Það var ferðaþjónust-
an og þá sér í lagi bandarísku
flugfélögin. Nú, fimm árum
síðar, eru bandarísk flugfé-
lög enn að berjast í bökkum
við að ná aftur fyrri hæðum,
þrátt fyrir að Bandaríkjamenn séu nú
farnir að fljúga meira en þeir gerðu fyrir
árásirnar. Árið 2005 flugu 738 milljón-
ir Bandaríkjamanna um loftin blá sem
var tíu prósentum meira en á metárinu
2000. Sérfræðingar segja að
atburðirnir þennan örlaga-
ríka dag hafi einungis orðið
til þess að flýta óumflýj-
anlegu ferli. Það sem þá
greinir hins vegar á um er
að hve miklu leyti má kenna
hryðjuverkunum um vanda
iðnaðarins og að hve miklu
leyti þau hefðu hvort sem
er átt sér stað af efnahags-
legum og samkeppnislegum
ástæðum, á borð við hækk-
andi olíuverð og hin nýju
lággjaldaflugfélög.
Hvort sem er, þá hristi
11. september verulega
upp í iðnaðinum og þá
sérstaklega í gömlu hefð-
bundnu flugfélögunum á
borð við American Airlines, Delta Air
Lines, United, Continental, Northwest og
US Airways, og varð þeim hvatning til
að hrinda í framkvæmd breytingum sem
enn eru að ganga í gegn. Þessi sex flug-
félög sögðu samtals upp hundrað þúsund
manns, einungis mánuði eftir árásirnar og
kyrrsettu stærri og eldri gerðir flugvéla
sem voru ekki eins sparneytnar á bensín
og aðrar. Það var óumflýjanlegt fyrir þau
að bregðast við samkeppni frá nýjum
fyrirtækjum á markaði og þá sérstaklega
frá lággjaldaflugfélögunum. Hvort sem
flugfélögin hefðu verið nauðbeygð eða
ekki til að fara út í þessar breytingar eru
flestir sammála um að umfang breyting-
anna og hraði var mun meiri en hefði orðið
ef árásirnar hefðu ekki komið til. Þrátt
fyrir að mörg af þessum stóru og voldugu
fyrirtækjum eigi enn í vök að verjast hafa
þau gert ýmislegt til að hagræða í rekstri
og orðið samkeppnishæfari.
ÓVERULEG ÁHRIF Á ÍSLAND
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn lækkaði
í kjölfar árásanna líkt og aðrir markaðir
en áhrifin voru skammvinn, lækkanirn-
ar voru litlar og gengu hratt til baka. Á
þessum tíma var markaðurinn að koma
út úr fimmtán mánaða lækkunarferli.
Hlutabréfaverð var því hagstætt og auk-
innar jákvæðni tók að gæta í efnahagslíf-
inu sem þetta áfall náði ekki að snúa við.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Landsbankans, segir að
hér heima hafi áhrifin í raun verið öfug
á fyrirtæki í þeim rekstri sem sköðuðust
hvað mest í Bandaríkjunum, eins og til
að mynda flugfélögin. Langtímaáhrifin á
þau voru í raun og veru jákvæð. Hafi það
meðal annars komið til af því að litlu flug-
félögin þóttu ekki eins hættuleg eða eins
líkleg skotmörk og þau stóru og þekktu.
„Kalt á litið í þessu hefur Ísland stundum
notið góðs af hræðslunni í þessu hryðju-
verkasamhengi. Ferðamenn hafa síður
viljað fara á átakasvæði, til að mynda til
Mið-Austurlanda, og þar sem Ísland er
exótískt land í þeirra augum hafa örugg-
lega margir komið hingað í staðinn.“
Byggt á blaðagreinum á vefsíðum CNN,
Business Week og Vefvísi Landsbankans.
REYK LEGGUR FRÁ RÚSTUM TVÍBURATURNANNA MORGUNINN EFTIR HRYÐJUVERKAÁRÁSIRNAR ÞANN 11. SEPTEMBER Síðan 11. september hafa viðbrögð
markaða við hryðjuverkum sífellt orðið minni og skammvinnari. Fjárfestar virðast því hafa lært það af hryðjuverkunum að vernda sig betur gegn ógæfu, af hvaða tagi sem er,
og geyma ekki öll eggin í sömu körfunni.
Hlutabréfamarkaðir venjast hryðjuverkaárásum
Enginn hefði getað látið framhjá sér fara á mánudaginn að fimm ár voru liðin frá hryðjuverkaárás á
Bandaríkin. Allir miðlar kepptust við að rifja upp atburði dagsins sem breytti heimsmyndinni á auga-
bragði. Markaðurinn lætur ekki sitt eftir liggja í umræðunni og skoðar hvaða áhrif árásirnar höfðu á
hlutabréfamarkaði um heim allan og hvaða lærdóm fjárfestar hafa dregið af þeim.
Íslenski hluta-
bréfamarkað-
arinn lækkaði
í kjölfar árás-
anna líkt og
aðrir markaðir
en áhrifin voru
skammvinn,
lækkanirnar voru
litlar og gengu
hratt til baka.