Fréttablaðið - 13.09.2006, Síða 40
MARKAÐURINN 13. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR10
Ú T T E K T
Viðskiptahalli þjóðarinnar við útlönd hefur
aldrei verið meiri en í ár og þó var metár
í fyrra. Sérfræðingar hafa þó ekki teljandi
áhyggjur af hallanum, enda hagvöxtur mikill
og þjóðin standi því vel undir þessu.
Helst er að hallinn hafi áhrif á gengi krón-
unnar þannig að hún veikist og gengissveiflur
kalla jú á ákveðinn óstöðugleika. Þá er öllum
þeim sem láta sig efnahagsmál varða í fersku
minni sú umræða um íslenska hagkerfið sem
fór í gang í útlöndum í byrjun ársins. Þar
stöldruðu greiningardeildir banka og fjölmiðl-
ar sumir við viðskiptahallann og töldu ljóst
að hér væri allt á hraðri niðurleið. Sú var þó
ekki raunin og hefur með nokkru átaki, bæði
stofnana og fyrirtækja hér heima, tekist að
leiða umræðuna inn á aðra braut, að hér njóti
hagkerfið nokkurrar sérstöðu í smæð sinni og
því eðlilegt að þar sjáist sveiflur.
STÓRIÐJAN VEGUR ÞUNGT
En hvað er viðskiptahalli? Jú, hann myndast
þegar tekjur þjóðarinnar af útflutningi nægja
ekki til að greiða fyrir kostnað af innflutningi
hennar. Þann halla þarf að fjármagna, annað
hvort með því að ganga á eignir landsmanna
eða með því að taka erlend lán.
Mikil og langvinn skuldasöfnun getur vissu-
lega verið ávísun á fjárhagslega erfiðleika
síðar meir, en þó skiptir eðli viðskiptahallans
máli. Ef til dæmis er verið að flytja inn mikið
af fjárfestingavöru sem leggur grunn að meiri
útflutningi síðar er það jákvætt, enda lagt
í kostnað sem síðar skilar sér í tekjum. Vel
heppnuð fjárfesting borgar niður skuldsetn-
inguna sem henni fylgir. Síður eftirsóknarvert
er talið ef flutt er inn mikið af neysluvöru. Slík
þróun er talin geta verið ávísun á langvinna
skuldasöfnun erlendis og endað með greiðslu-
erfiðleikum, gengislækkun og skertri getu til
að flytja inn vörur þegar fram í sækir. Hér
hefur vegið þungt fjárfesting vegna stóriðju,
en einnig mikil neysla almennings. Hún er
þó ekki talin jafnslæm og virst hefði getað
í fyrstu, enda hafi gengi krónunnar verið
hagstætt margvíslegum innkaupum. Neyslan
dragist hratt saman þegar gengið verði óhag-
stæðara, það sýni sagan okkur. Núna velta
hagfræðingar þó fyrir sér hvort krónan bragg-
ist of hratt.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar-
deildar Kaupþings banka, segir að með upp-
töku evrunnar myndi viðskiptahallinn hætta
að skipta máli. „Viðskiptahallinn er fyrst og
fremst bagalegur af því að hann getur skapað
ýmis seljanleikavandamál á gjaldeyrismark-
aði vegna þess að það þarf að fjármagna hann
með einhverjum hætti. Þar fyrir utan þarf
Vera kann að krónan braggist fullhratt
Viðskiptahallinn er meiri en nokkru sinni. Hagfræðingar hafa þó ekki af honum stórfelldar áhyggjur, enda er hér hagvöxtur
mikill, en benda á að helst hafi hann áhrif á gengi krónunnar. Óli Kristján Ármannsson ræddi við sérfræðinga um halla á
viðskiptum við útlönd, áhrif hans og framtíðarhorfur.
FLOTI NÝRRA
BÍLA BÍÐUR TOLL-
AFGREIÐSLU Ungur
maður lætur sig
dreyma um nýja
jeppa í Sundahöfn í
Reykjavík, innan um
fjölda bíla sem verið er
að flytja inn til landsins.
Einkaneysla á borð við
bílakaup hefur vegið
þungt í viðskiptahalla
þessa árs og síðasta og
spurning hvort lát verði
á. MARKAÐURINN/GVA
ÞORSTEINN ÞORGEIRSSON „Skynsemi og fyrirhyggja í
ákvarðanatöku einstaklinga varðandi eigin hag leiðir oftast
af sér bestu niðurstöðu fyrir efnahagslífið í heild. Þannig
hefur íslenskt efnahagslíf sýnt sig að vera afar sveigjanlegt
þegar kemur að því að fyrirtæki og einstaklingar bregðist
við gengisbreytingum.“
ÁSGEIR JÓNSSON „Það er hægt að hafa viðskiptahalla
töluverðan ef vöxtur erlendra skulda er ekki meiri en vöxtur
landsframleiðslu. Núna er hagkerfið búið að vaxa um 50-
60 prósent á síðustu tíu árum og í þeim samanburði má
segja að það sem þótti mikið í erlendum skuldum þá þykir
kannski ekki mikið núna.“
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR „Krónan hefur styrkst frá því
hún var hvað veikust á árinu og alveg ljóst að ef hún verður
sterk áfram gætum við þurft aðra gengislækkun 2008 eða
2009 til að fá utanríkisviðskiptin nær jafnvægi.“