Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2006, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 13.09.2006, Qupperneq 64
 13. september 2006 MIÐVIKUDAGUR28 menning@frettabladid.is ! NÝJAR Á NÁTTBORÐIÐ Kl. 11.00 Halla Gunnarsdóttir sýnir málverk og skúlptúra í galleríi Turpentine við Ingólfsstræti. Opið frá þriðudögum til föstu- daga frá 12-18 og laugardaga kl. 11-16. > Dustaðu rykið af... rithöfundinum Patrick Süskind. Met- sölubókin Ilmurinn: saga af morðingja kom þýska höfundinum á kortið en kvikmynd byggð á bókinni verður frum- sýnd í Þýskalandi í vikunni. Færri þekkja hins vegar hinna stórskemmtilegu sögu Dúfuna, sem kom út í þýðingu Hafliða Arngrímssonar árið 1992. Jazzhátíð Reykjavíkur hefst hinn 27. september og á morgun hefst miðasala á 19 hljómleika hátíðarinnar. Um næstu helgi verða sérlegir upphitunartón- leikar þar sem hljómsveitin TYFT leikur á Nasa. Sveitina skipa Hilmar Jensson gítarleik- ari, Jim Black á trommum og Andrew D‘Angelo sem leikur á bassaklarinett og saxófón. Fyrr í vikunni kom út diskur frá þeim félögum sem ber heitið „Meg Nem Sa“ og kemur hann út hjá Skirl Records í New York. Eins og á fyrri diskum þeirra félaga þá ægir öllu saman, rokki, djassi, rafhljóðum og frjálsum spuna en það er mál manna að TYFT sé hljómsveit sem berja þarf augum á tónleikum. Meðal erlenda gesta á Jazz- hátíðinní í ár eru söngvarinn og tónskáldið Kurt Elling en hvar á dögunum kosinn djasssöngvari ársins af tímaritinu Downbeat. Elling mun heldur tónleika 30. september en Kvintett Eyjólfs Þorleifs og Andrésar Þórs hitar upp. Hægt er að kaupa miða á midi.is, og í BT- og Skífuverslun- um. Miðar verða jafnframt seld- ir á tónleikastað svo lengi sem ekki er uppselt á tónleikana og á midi.is. Hægt er að kaupa miða á staka viðburði ásamt því að hægt er að kaupa tvær tegundir af pössum, en þar er annars vegar um að ræða passa á alla viðburði hátíðarinnar eða passa á fimm viðburði að eigin vali. Nánari upplýsingar má finna á www.jazz.is. Upprennandi djassveisla JAZZSÖNGVARINN KURT ELLING Var nýlega kosinn jazzsöngvari ársins af tímaritinu Downbeat. Skáldsagan Stutt ágrip af sögu traktorsins á úrkraínsku sló í gegn í Bret- landi þegar hún kom þar í fyrra og fer nú mikinn á metsölulistum víðar í Evrópu. Sagan var tilnefnd til Booker- og Orange-bókmennta- verðlaunanna í Bretlandi. Í bókinni segir af tveim- ur systrum sem þurfa að standa saman þegar faðir þeirra, sem er komin af léttasta skeiði, tekur saman við úkraínska fegurðardis sem þeytist inn í líf þeirra „eins og bleik og dúnmjúk handsprengja“. Ást gamla mannsins á nautnasjúku og brjóstgóðu ljóskunni er líka til trafala vegna þess að sá gamli er að skrifa sögu traktorsins á úkraínsku. Höfundur hennar, Marina Lewycka, er af úkraínsk- um ættum en fæddist í flóttamannabúðum í Þýska- landi. Hún er nú búsett á Englandi. Edda gefur bók- ina út en þýðandi er Guðmundur Andri Thorsson. Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina Leitina að landinu góða, úrval bréfa Vesturheimsfar- ans Jóns Jónssonar frá Mýri í Bárðardal, í samvinnu við Mýrarmannafélagið. Landneminn Jón Jónsson frá Mýri fluttist til Vesturheims árið 1903 með tíu börn sín, kona hans var þá látin og elsta dóttirin tók við búi hans á Mýrum. Jón gerðist fyrst landnemi í suðvestur-Manitoba en tók sig enn upp vorið 1906 og fluttist vestur til Vatnabyggða í Saskathchewan og bjó þar til dauðadags árið 1935. Öll ár sín vestanhafs skrifaði Jón reglulega heim til Íslands, mest til dóttur sinnar og tengda- sonar á Mýri, og er bréfasafn hans óhemjumikið að vöxtum. Þar segir hann fréttir af fólkinu í Vesturheimi og hefur uppi hugleiðingar um hvað kæmi Íslandi best, einkum íslenskum bændum. Hann var áfram um að kenna mönnum nýja tækni, en samtímis hafði hann þungar áhyggjur af pólitísku ástandi í heiminum. Bréf hans eru magnaður vitnisburður um íslenska alþýðumenningu og íslenska alþjóðahyggju. Ritstjóri bókarinnar er Heimir Pálssonar lektors í íslensku við Uppsala- háskóla í Svíðjóð, en með honum í ritnefnd voru Jón Aðalsteinn Hermanns- son og Jón Erlendsson. Sjöunda bóki Hennings Mankell um rannsóknar- lögreglumanninn Kurt Wallander er komin út á íslensku. Spennusagan Skrefi á eftir segir af ráðgátu tengdri morði á samstarfsmanni Wall- anders þar sem fáar vísbendingar liggja á lausu. Wallander er illa fyrir kallaður vegna heilsuleysis en samur við sig og kemst fljótt á spor kaldrifjaðs byssumanns. Henning Mankell er einn vinsæl- asti spennusagnahöfundur heims og hafa bækur hans notið mikillar hylli hérlendis. Útgefandi er bókaforlagið Edda en þýðandi bókarinnar er Vig- fús Geirdal. Norska metsölubókin Berlínaraspirnar eftir Anne B. Ragde kemur einnig út hjá Eddu í þýðingu Péturs Ást- valdssonar en bókin skaut meðal annars Da Vinci lykl- inum aftur fyrir sig á vinsældalistum þar í landi. Sagan segir af sálarstríði fjölskyldu einnar í Þrándheimi þar sem ættmóðirin liggur fyrir dauðanum en eiginmaður henn- ar, þrír synir og sonardóttir þurfa að takast á við fortíðina til þess að geta hafið nýtt líf. Fólkið á fátt sameiginlegt en reynir að finna sameiginlegan takt í tilverunni. Svavar Þór Guðmundsson sagnfræðingur hefur tekið saman bókina Þættir úr sögu Bessa- staðaskóla 1805-1846. Skólinn hefur löngum verið sveipaður dulúð og leyndardómi en í rit- inu er leitast við að varpa ljósi á hið daglega líf skólasveina og lærimeistara þeirra og efnið þannig nálgast á persónulegri hátt en áður hefur verið gert þannig að lesandinn fái innsýn í veruleika fræðimanna og piltanna er þar stund- uðu nám, t.d. Sveinbjarnar Egilssonar, Jónasar Hallgrímssonar og Benedikts Gröndal. Auk þess gefur bókin lýsingu á húsakosti, kennurum og öðrum aðstæðum skólapilta á Bessastöðum. Bókaútgáfan Hólar gefur ritið út. - khh DÚNMJÚK HANDSPRENGJA Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku. LEITIN AÐ LANDINU FAGRA Úrval bréfa Vesturfarans Jóns Jónssonar frá Mýri. SKREFI Á EFTIR Sjöunda bókin um Kurt Wallander. Markmið Vinafélags Sin- fóníuhljómsveitar Íslands er að efla áhuga á starfi sveitarinnar og samstarf og tengsl þeirra sem bera hag hennar fyrir brjósti. Félag- ið stendur fyrir kynningar- fundum um valda tónleika og á morgun verður fyrsti fundur vetrarins þar sem Rumon Gamba, aðalstjórn- andi sveitarinnar, kynnir efnisskrá kvöldins fyrir forvitnum hlustendum. Rumon Gamba tók við stöðu aðal- hljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands í september árið 2002 og er þetta ekki í fyrsta sinn sem hann ræðir við gesti kynningar- kvöldanna. „Ég mun tala frá hjartanu eins og ég geri venju- lega,“ segir Rumon góðlátlega en sjaldheyrð viðfangsefni fimmtu- dagstónleikanna eru honum hugstæð - 12. sinfónía Dímítrí Sjostakovitsj og 5. sinfónía breska tónskáldsins Sir Malcolm Arnold. „Sjostakovitsj er eitt af mínum uppáhaldstónskáldum og það hefur verið mjög áhugavert að beina sjónum sínum að verk- um hans eins og við höfum gert undanfarið,“ segir Rumon og bætir því við að brátt fari að sjá fyrir endann á Sjostakovitsj- maraþoninu sem hófst fyrir fjór- um árum þegar fyrstu þrjár sin- fóníur hans voru fluttar. Rumon segir að sinfónían sé mjög áheyrileg og ekki flókin við fyrstu hlustun. „Við munum kafa dýpra og reyna að skilja það sem hann var að skrifa í samhengi við söguna. Þegar Sjostakovitsj samdi þetta verk var hann nýlega genginn til liðs við Kommúnista- flokkinn og var skikkaður til að semja verk til dýrðar Lenín. Nú mörgum árum síðar vitum við að þetta verk hans er næstum kald- hæðnislegt og það bælir niður mikilfengleika harðstjórans, í verkinu eru mikið af vísbendin- um um persónulega sýn tón- skáldsins á heiminn.“ Rumon Gamba segir síðara verk tónleikanna vera visst mót- vægi við duldar meiningar Sjostakovitsj en 5. sinfónía Mal- colm Arnold fjallar einnig um missi. Rumon hefur flutt mörg verka hans og starfað með tónskáldinu sem nú fagnar brátt 85 ára afmæli sínu en Rumon bendir þó á að íslenskir hlustend- ur þekki fremur til smærri og léttari verka hans. „Hann samdi þessa sinfóníu eftir að hafa misst vini sína, tónlistarfólk sem dó ungt, en þetta verk dregur upp mynd af þeim missi,“ segir Rumon og bætir við að verkið sé mjög tært og hafi skýran boð- skap eða sögu fram að færa. Stjórnandinn vonast til þess að fólk nýti tækifærið og mæti á kynningarfundinn enda eru þeir hugsaðir til þess að opna eyru gestanna enn betur, þar gæti einnig verið von á líflegum umræðum því verkin hafa bæði sögulegar og pólitískar vísanir. Allir geta orðið meðlimir í Vinafélaginu og hægt er að skrá sig með því að senda póst á vina- felag@sinfonia.is og á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar. Kynningarfundir félagsins fara fram í Sunnusal Hótels Sögu og hefjast jafnan kl. 18. Rumon mun síðan leggja land undir fót ásamt sveitinni á föstu- dag en Sinfónían heldur tónleika í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöð- um kl 19.30. Á tónleikunum verð- ur lögð áhersla á stutt og fjöl- breytt verk. „Við leikum brot af því sem við höfum verið að fást við síðustu tvær vikur,“ útskýrir Rumon en verkin spanna langan tíma í sögu tónbókmenntanna og eru eftir jafn ólíka höfunda og franska rómantíkerinn Hector Berlioz, fyrrgreindan Arnold og Jón Múla Árnason. Í vetur er einnig stefnt á heimsókn til Akur- eyrar. Sinfóníuhljómsveitin bryddar upp á nýjungum þetta starfsárið og stendur í fyrsta sinn fyrir kammertónleikaröð í Listasafni Íslands sem fengið hefur yfir- skriftina Kristall. „Þetta er frá- bært framtak því það er mikil- vægt fyrir þróun sveitarinnar að halda slíka tónleika,“ segir Rumon Gamba sem hvatt hefur félaga sveitarinnar til þess að leika kammermúsík. „Við erum með frábæra listamenn í Sinfón- íunni og nú gefst þeim tækifæri á að spila saman í nýju sam- hengi,“ segir hann en þegar leik- ið er án stjórnanda reynir meira á samvinnu fólks. „Fólk þarf að hlusta og horfa hvert á annað og deilir því músíkinni á annan hátt.“ Fyrstu kammertónleikarn- ir verða á laugardaginn og verða þá flutt verk eftir Händel og Beethoven og meðal flytjenda í listasafninu verður Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarinettuleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellól- eikari. Nánari upplýsingar um vetr- arstarf sveitarinnar og Vinafé- lagsins er að finna á heimasíð- unni www.sinfonia.is. kristrun@frettabladid.is Nýjungar og náin kynni RUMON GAMBA, AÐALSTJÓRNANDI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Ræðir um verk Sjostakovitsj og Malcolm Arnold á fyrsta kynningarfundi Vinafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands. MYND/GRÍMUR BJARNASON BERLÍNARASPIRNAR Norsk metsölubók um leitina að sameiginleg- um takti. LÍF SKÓLASVEINA Fræðslurit um sögu Bessastðaskóla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.