Fréttablaðið - 13.09.2006, Page 70

Fréttablaðið - 13.09.2006, Page 70
KVIKMYNDIR [ UMFJÖLLUN ] Jörðin sem við byggjum er einstakt fyrirbæri. Lífríkið byggir allt sitt á svo hárfínni formúlu að lítið má út af bregða svo allt fari fjandans til en ekki er víst að formúlan gangi leng- ur upp ef ekkert verður að gert. Þetta er að einhverju leyti sú heimspeki sem birtist í kvikmynd- inni An Inconvenient Truth þar sem fyrrum forsetaframbjóðandinn Al Gore fer yfir sviðið og bregður upp svartri mynd af ástandi jarðarinnar. Að mati Gore er stærsta vandamál- ið hækkandi hitastig jarðarinnar vegna gróðurhúsaáhrifa en valda- miklir „efasemdarhópar“ telja þetta bara „kenningu“ sem enn á eftir að sanna. Þessir hópar hafi greiðan aðgang að fjölmiðlum sem dreifa þessum áróðri út á meðal fólksins sem gerir Gore og öðrum náttúru- verndarsinnum mjög erfitt fyrir. Hann reynir að sýna fram á að þessi efasemdarhópur hafi rangt fyrir sér, áhrif gróðurhúsalofttegunda séu staðreynd og að við sjáum þess þegar merki, meðal annars í breyttu veðufari. An Inconvenient Truth er að mestu leyti fyrirlestur Gore í áhorf- endasal en svo er brugðið upp mynd- brotum og ljósmyndum af ferðalög- um hans í baráttu sinni fyrir vitundarvakningu í umhverfis- vernd. Stundum missir leikstjórinn David Guggenheim sig í dýrkun á sögumanni með þeim afleiðingum að þetta gætu verið bútar úr kosn- ingamyndbandi fyrir Gore. Guggen- heim notast enn fremur við atvik úr persónulega lífi Gore til útskýring- ar á baráttu hans með misjöfnum árangri. Sonur Gore lenti til að mynda í alvarlegu bílslysi og var vart hugað líf en þannig reynir hann að útskýra að það sé aðeins til ein jörð, sem verði að bjarga. An Inconvenient Truth er nauð- synleg vekjaraklukka fyrir okkur þótt hún sé á köflum full „banda- rísk“ með öllu sem því fylgir. Margt sem þarna er sagt og sýnt ætti hins vegar að vekja sérhvern mann til umhugsunar um hvort jörðin og nátttúran fái brátt ekki nóg af átroðningi mannfólksins. Freyr Gígja Gunnarsson Fær jörðin brátt ekki nóg? AN INCONVENIENT TRUTH SÝND Á IFF- HÁTÍÐINNI LEIKSTJÓRI: DAVIS GUGGENHEIM Niðurstaða: An Invconvenient Truth er nauð- synleg kvikmynd sem ætti að vekja sérhvern mann til umhugsunar um umhverfi sitt. Breska hljómsveitin Snow Patrol er aftur komin á topp breska vin- sældalistans með plötu sína Eyes Open. Þetta er í þriðja skiptið sem platan fer á toppinn þar frá því hún kom út 1. maí síðastliðinn. Hefur hún selst í 800.000 eintökum í Bret- landi frá útgáfudegi, sem er nálægt þrefaldri platínusölu. Þessar auknu vinsældir eru ekki síst laginu Chasing Cars að þakka, en lagið er í mikilli spilun hvarvetna og er í 6. sæti í Bret- landi. Snow Patrol er á tónleika- ferðalagi um Bandaríkin um þessar mundir og er Chasing Cars komið í 7. sæti Billboard- listans. Aftur á toppinn SNOW PATROL Hljómsveitin Snow Patrol er komin á toppinn í Bretlandi í þriðja sinn. Rokksveitin Brain Police sendir frá sér sína fjórðu plötu, Beyond the Waste- land, í dag. Freyr Bjarna- son ræddi við trommarann Jón Björn Ríkharðsson, eða Jónba, um nýja gripinn. Síðasta plata Brain Police, Electric Fungus, kom út fyrir tæpum tveimur árum og fékk hún mjög góðar viðtökur. Þótti hún uppfull af þéttu eyðimerkurrokki og sýndi og sannaði að Brain Police var orðin alvöru rokksveit. Betri í alla staði Jónbi er hæstánægður með nýju plötuna og segir hana besta verk Brain Police til þessa. „Þetta er rökrétt framhald af síðustu plötu en er í rauninni betri í alla staði,“ segir hann. „Hún er aðeins öðru- vísi gítarlega séð vegna þess að við erum með nýjan gítarleikara [Búa Bendtsen] en hún er virki- lega vel unnin og hljómar rosa- lega vel. Hún er eiginlega bara næsta skref upp á við. Við eydd- um tveimur dögum í æfingahús- næði áður en við fórum í stúdíó, þannig að við fórum þangað 100% vissir um hvað við vorum að fara að gera.“ Tveir bjórar á sautján dögum Beyond the Wasteland var tekin upp og hljóðblönduð á aðeins sautján dögum, sem telst ekki mikill tími í dag. Svíarnir Stefan Boman og Chips K., sem hafa m.a. unnið með Kent, Sahara Hotnights og The Hellacopters, stjórnuðu upptökum og ber Jónbi þeim vel söguna. „Þeir unnu vinnuna sína gríðarlega vel og það var mjög gaman að vinna með þeim. Þeir unnu þetta virkilega fagmannlega og komu hingað bara til að vinna. Þeir fengu sér einn bjór áður en upptökur hófust og síðan einn bjór þegar þeir voru búnir. Þeir voru alveg meiriháttar,“ segir Jónbi, greinilega óvanur slíkum vinnu- brögðum. Býst hann fastlega við að Sví- arnir taki einnig upp næstu plötu Brain Police og hugsanlega muni upptökur fara fram í Svíþjóð í algjörri ró og næði. Tónleikaferð um Þýskaland Útgáfutónleikar vegna plötunnar voru haldnir í Skífunni í gær- kvöldi. Sveitin ætlar að rúnta um landið í framhaldinu og spilar næst í Bíóhöllinni á Akranesi 21. september. Kvöldið eftir verður hún á Kaffi Amsterdam, hinn 29. á Sjallanum og á Kaffi Króki síðasta kvöld mánaðarins. Hinn 5. október er síðan ferð- inni heitið til Þýskalands í tón- leikaferð en síðast fór sveitin þangað í nóvember. Meðal annars munu þeir félagar spila í Berlín, Köln og á tónlistarhátíð í Alden- burg. Í byrjun næsta árs er stefn- an síðan sett á Bandaríkin, enda ætti „stoner-rokk“ Brain Police að falla vel í kramið þar í landi. Fagmennskan í fyrirrúmi BRAIN POLICE Frá vinstri: Jens Ólafsson, Búi Bendtsen, Hörður Ingi Stefánsson og Jón Björn Ríkharðsson. V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . FRUMSÝND 15·09·06 SENDU SMS SKEYTIÐ JA NLF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA FYRIR TVO. VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR FYRIR TVO, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA! !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl. 8 og 10 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 LITTLE MAN B.I. 12 ÁRA kl. 6 YOU, ME & DUPREE kl. 10 GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 6 TAKK FYRIR AÐ REYKJA THANK YOU FOR SMOKING ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45, 8 og 10.15 SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 5.50, 8 og 10.10 LITTLE MAN kl. 4, 6, 8 og 10 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 B.I. 7 ÁRA GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 4 og 6 MIAMI VICE kl. 10.10 B.I. 16 ÁRA ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 8 og 10.15 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 5.50 B.I. 7 ÁRA KVIKMYNDAHÁTÍÐ ANGEL A kl. 6 WINTER PASSING kl. 6 THE BOOK OF REVELATION kl. 6 DAVE CHAPELLE´S BLOCK PARTY kl. 8 TSOTSI kl. 8 VOLVER kl. 8 FACTOTUM kl. 10 ENRON: THE SMARTEST GUY IN THE ROOM kl. 10 THREE BURIALS OF MELQUIADES ESTRADA kl. 10.10 Heiðarleg, fróðleg og bráðskemmtileg mynd

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.