Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2006, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 13.09.2006, Qupperneq 74
38 13. september 2006 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Eitt furðulegasta atvik síðari ára í knattspyrnuheimin- um átti sér stað í brasilísku 3. deildinni á sunnudag. Þá áttust við Santacruzense og Atletico Sorocabana í spennandi leik sem stóð 1-0 fyrir síðarnefnda liðið þar til á 89. mínútu. Þá komst framherj Santacruzense að nafni Samuel í ágætt skotfæri en skaut framhjá. Þegar markvörðurinn ætlaði að taka útspark og beið eftir að fá bolta frá boltastrákn- um eins og venja er gerði bolta- guttinn sér lítið fyrir og rakti boltann framhjá markverðinum og rúllaði knettinum yfir línuna. Þetta hefur hann væntanlega gert í gremju sinni. Dómari leiksins sá boltann í markinu og ákvað að dæma mark- ið löglegt. Dómarinn sá ekki boltastrákinn en eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðarmann sinn sem sá ekkert athugavert við atvikið var markið dæmt lög- legt. Leikmenn Atletico mót- mæltu þessu af öllum mætti en dómarinn, kona að nafni Silvia Regina de Oliveira, lét ekki hagg- ast. Þökk sé jafnteflinu hélt Sant- acruzense tveggja stiga forskoti á Atletico á toppi deildarinnar. „Ég skaut bara boltanum,“ sagði Samuel sem var ekki með mikið samviskubit vegna máls- ins. „Ef dómarinn dæmdi markið löglegt er það hennar vandamál, ekki mitt.“ Þrátt fyrir að „mark- ið“ náðist á myndband getur bras- ilíska knattspyrnusambandið að eigin sögn ekki ógilt úrslit leiks- ins. Dómarinn var þegar orðin þekkt í Brasilíu fyrir að vera fyrsta konan sem dæmdi deildar- leik þar í landi. Hvaða áhrif þetta hefur á stöðu kvenna í dómara- stétt Brasilíu er ekki vitað. Hægt er að skoða myndband af þessu merkilega atviki á vef- síðunni espnbrasil.uol.com.br með því að smella á „videos“. - esá Stórfurðulegt atvik átti sér stað í brasilísku deildakeppninni: Mark boltastráks var dæmt löglegt FÓTBOLTI Í kvöld fara fram fyrstu leikir í E-, F-, G- og H-riðlum Meistaradeildar Evrópu. Margir áhugaverðir leikir eru á dagskrá en augu flestra Íslendinga beinast eflaust að leikjum ensku liðanna. Arsenal á erfiðan leik fyrir hönd- um gegn Hamburg en á Old Traff- ord mætast bresku risarnir Manchester United og Celtic í leik sem gengur undir heitinu „Barátt- an um Bretland“. Mikil vinátta hefur ríkt í gegn- um tíðina á milli Manchester Unit- ed og Celtic og hafa liðin ósjaldan mæst í vináttu- og góðgerðarleikj- um. Gordon Strachan, stjóri Celt- ic, lék lengi vel með Manchester United og hann býst við mjög erf- iðum leik fyrir sína menn. „Við erum að fara að mæta mörgum af bestu leikmönnum í heiminum í dag. Að leika gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu er skref upp á við frá því að spila með landsliði sínu, þetta er hærra plan. Við þurfum að hafa heppnina með okkur en ég hef aldrei vitað um lið sem fer á Old Trafford og þarf ekki að hafa heppni með sér til að vinna leikinn,“ sagði Gordon Strachan. Arsenal heimsækir þýska liðið Hamburg í kvöld en hvorugt þess- ara liða hefur staðið undir vænt- ingum það sem af er tímabilsins. Arsenal hefur ekki enn unnið leik í ensku úrvalsdeildinni, hefur leik- ið þrjá leiki, gert tvö jafntefli og tapað einum leik. Hamburg hefur sömuleiðis leikið þrjá leiki og gert jafntefli í þeim öllum. Jens Leh- mann fær í kvöld tækifæri til að bæta við metið sem hann á, en hann hefur haldið markinu hreinu í 763 mínútur í Meistaradeild Evr- ópu. „Hamburg eru mjög líkam- lega sterkir og munu stanslaust reyna að sækja á okkur,“ sagði Arsene Wenger. Meðal annarra áhugaverðra leikja í kvöld má nefna viðureign Lyon og Real Madrid og þá er FC Köbenhavn frá Danmörku að taka þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinni en liðið fær Benfica í heimsókn á Parken í Kaupmanna- höfn. Mikil eftirvænting er í Dan- mörku fyrir leiknum og hefur umræðan töluvert snúist um það að ekki má selja öl á Parken á meðan leiknum stendur, en nýjar reglu Knattspyrnusambands Evr- ópu kveða á um það að ekki má lengur selja áfengi á alþjóðlegum knattspyrnuleikjum. - dsd Gríðarleg eftirvænting er í Bretlandi fyrir viðureign Manchester United og Celtic: Stórleikur á Old Trafford í kvöld JENS LEHMANN Hefur haldið markinu hreinu í 763 mínútur í Meistaradeild Evrópu. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI „Þeir verða ekki mikið lengri samningarnir,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, og átti þar við þann átta ára samning sem Spánverjinn Cesc Fabregas sem mun senn skrifa undir samkvæmt stjóran- um. Fabregas er ekki nema 19 ára gamall og þegar orðinn fastamað- ur í spænska landsliðinu og var í sumar orðaður við Real Madrid. En hann segist vera ánægður í London. „Þetta eru mikil verðlaun fyrir okkur því við fengum hann aðeins 16 ára gamlan,“ sagði Wenger en Fabregas var fenginn til Arsenal frá Barcelona. - esá Cesc Fabregas: Semur við Ars- enal til átta ára CESC FABREGAS Hefur náð langt þrátt fyrir ungan aldur. Hér hefur hann stung- ið Ousmane Dabo, leikmann Manchest- er City, af. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Fyrirliði landsliðs Ísraels og leikmaður West Ham, Yossi Benayoun, segir að hann muni senn skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið. Hann hefur í ensku pressunni verið orðaður við Liverpool og Arsenal. „Ég hef aldrei sagt að ég vilji fara en það er eðlilegt að vangaveltur um slíkt birtist í fjölmiðlum. En ég er mjög ánægður hjá West Ham og er búið að ganga frá nýjum fimm ára samningi sem ég mun skrifa undir,¿ sagði Ísraelinn í gær. - esá Yossi Benayoun: Ánægður hjá West Ham FÓTBOLTI Hjálmar Jónsson og félagar í IFK Gautaborg unnu í gær góðan útivallasigur á BK Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í gær. IFK komst í 4-0 áður en heimamenn klóruðu í bakkann. Hjálmar lék allan leikinn fyrir IFK en Ari Freyr Skúlason, leikmaður Häcken, var ekki í leikmannahópi liðsins. Emil Hallfreðsson kom inn á sem varamaður er lið hans, Malmö, tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsing- borg. - esá Sænski boltinn: Stórsigur Gautaborgar ÚRSLITIN Í GÆR Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL CHELSEA-WERDER BREMEN 2-0 1-0 Essien (24.), 2-0 Ballack, víti (68.). BARCELONA-LEVSKI SOFIA 5-0 1-0 Iniesta (7.), 2-0 Giuly (39.), 3-0 Puyol (49.), 4-0 Eto¿o (58.), 5-0 Ronaldinho (90.). B-RIÐILL SPORTING LISSABON-INTER 1-0 1-0 Caneira (64.). BAYERN MÜNCHEN-SPARTAK MOSKVA 4-0 1-0 Pizarro (47.), 2-0 Santa Cruz (51.), 3-0 Schweinsteiger (71.), 4-0 Salihamidizic (84.). C-RIÐILL PSV-LIVERPOOL 0-0 GALATASARAY-BORDEAUX 0-0 D-RIÐILL ROMA-SHAKTAR DONETSK 4-0 1-0 Taddei (67.), 2-0 Totti (76.), 3-0 De Rossi (79.), 4-0 Pizaro (90.). OLYMPIAKOS-VALENCIA 2-4 1-0 Konstantinou (28.), 1-1 Morientes (34.), 1- 2 Morientes (39.), 2-2 Castillo (66.), 2-3 Albiol (85.), 2-4 Morientes (90.). FÓTBOLTI Evrópumeistarar Barce- lona hófu titilvörn sína í Meistara- deild Evrópu með miklum glæsi- brag er liðið vann 5-0 sigur á Levski Sofiu frá Búlgaríu á heima- velli sínum, Camp Nou. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðasta hálftímann í liði Börsunga en náði ekki að skora. Þrjú önnur lið, Roma, Valencia og Bayern München, skoruðu fjög- ur mörk í sínum leikjum en stein- dautt var í leikjunum í C-riðli, riðli Liverpool, þar sem báðum leikjun- um lauk með markalausu jafn- tefli. Ein óvæntustu úrslit kvöldsins urðu í Portúgal þar sem heima- menn í Sporting frá Lissabon gerðu sér lítið fyrir og unnu 1-0 sigur á Ítalíumeisturum Inter Milan. Þar var það Marco Caneira sem skoraði mark heimamanna í síðari hálfleik með glæsilegu skoti utan teigs en Toldo varði skot hans í slána og inn. Frakkinn Patrick Vieira fékk svo að líta rauða spjaldið í leiknum eftir fremur fólskulegt brot á Alecsandro sem lá óvígur eftir viðskipti þeirra. Börsungar sýndu hvers þeir eru megnugir með léttum 5-0 sigri á Levski frá Sofiu en leikurinn var sá fyrsti hjá búlgörsku liði í Meist- aradeild Evrópu. Fimm leikmenn skoruðu mörkin fimm í leiknum og sýnir það hversu gríðarlega góðum mannskap Frank Rijkaard hefur á að skipa. Í hinum leik A-riðils unnu Eng- landsmeistarar Chelsea 2-0 sigur á Werder Bremen og máttu þakka fyrir að Miroslav Klose skoraði ekki í leiknum en hann fékk að minnsta kosti tvö góð færi til þess. En Michael Essien og Michael Ballack voru á skotskónum í gær og skoraði sá síðarnefndi úr víti. Rafael Benitez stjóri Liverpool geymdi marga sína bestu leik- menn á bekknum er liðið lék gegn PSV Eindhoven í Hollandi í gær og má hann ágætlega vel við una að hafa náð í stig á erfiðum útivelli. Framundan er líka erfiður leikur gegn Chelsea í ensku úrvalsdeild- inni og veitir honum ekki af því að lykilmenn liðsins verði upp á sitt besta í þeim leik. Fernando Morientes skoraði þrennu fyrir Valencia er liðið vann Olympiakos á útivelli í gær en lið hans vann leikinn, 4-2. Roma og Bayern München skoruðu einnig fjögur mörk í sínum leikjum og fóru heldur illa með andstæðinga sína. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is TÖFRAMENN Ronaldinho og félagar í Barcelona léku á als oddi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Barcelona skoraði fimm Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fór af stað í gærkvöldi með miklum látum. Meistarar Barcelona hófu titilvörnina með því að skora fimm gegn Levski Sofiu á heimavelli en annars skoruðu þrjú önnur lið fjögur mörk í sínum leikjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.