Fréttablaðið - 16.12.2006, Síða 52
Á
þeim fimm árum
sem Art Basel hefur
skotið rótum í hinu
rómaða art-deco
hverfi á Miami
Beach hefur hún
skipað sér í röð fremstu lista-
kaupstefna heims, á meðal móð-
urmessunnar sjálfrar í Basel
Sviss og Frieze-listastefnunnar í
London.
Art Basel Miami Beach hefur
ákveðna sérstöðu og kemur fyrir
sjónir sem eins konar Cannes
myndlistarinnar – trópískur suðu-
pottur þar sem Hollywood-stjörn-
ur, heimsfrægir hönnuðir og auð-
jöfrar mæta til leiks auk fulltrúa
myndlistargeirans. Miami, höfuð-
borg hins suðræna glamúrs, er
hér í essinu sínu og margir freista
þess að komast á boðslista í umtöl-
uðustu veislurnar sem eru haldn-
ar í snekkjum, glæsibýlum og
einkasöfnum framáfólks í við-
skipta- og listalífinu. Vel meðvit-
aður um þessi skrautlegu veislu-
höld, bað stjórnandi Art Basel,
Samuel Keller, blaðamenn að
gleyma ekki að fjalla um það sem
listakaupstefnan snerist um:
sjálfa listina. Og víst er nóg af list
í boði: verk eftir rúmlega 2.000
listamenn frá 20. og 21. öld auk
útilistaverka, hljóð- og vídeó-
verka, sérstakrar sýningar fram-
sækinna gallería og ýmissa sér-
viðburða. Sum þeirra gallería
sem hlutu ekki náð hjá valnefnd-
inni í ár eru einnig mætt til leiks
með eigin og óháð verkefni og því
hefur Art Basel Miami Beach alið
af sér fjölda annarra listviðburða
og kaupstefna sem eru henni sam-
fara í borginni. Formleg dagskrá
stendur yfir frá 7.-10. desember,
en í raun er um að ræða allsherj-
ar myndlistarveislu í heila viku
með sérstaka gesti úr heimi tón-
listar, kvikmynda og arkitektúrs
á borð við Peaches, Dennis Hopp-
er og Zaha Hadid.
Fulltrúi Íslands í þessum suðu-
potti alþjóðlegrar myndlistar og
ákveðinn frumkvöðull á því sviði
er gallerí i8 í eigu Eddu Jónsdótt-
ur og Barkar Arnarsonar. Þetta er
annað árið í röð sem galleríið
kemst í gegnum nálarauga val-
nefndar Art Basel Miami Beach.
Það er mikill heiður að vera meðal
hinna útvöldu og augljóslega
ómetanlegt tækifæri til kynning-
ar á þeim listamönnum sem i8 er
með á sínum snærum – og
íslenskrar myndlistar almennt,
enda listastefnan í hæsta gæða-
flokki. „Þetta er aðalmálið fyrir
mig og íslenska listamenn – að
komast á markað í útlöndum,“
segir Edda, en galleríið tekur þátt
í allt að fjórum listastefnum
árlega. Hún segir mikilvægt að
vera virkur þátttakandi í hring-
iðu alþjóðalistheimsins sem skil-
ar sér beint á sjálfri listakaup-
stefnunni en einnig óbeint sem
kynning á galleríinu og lista-
mönnunum til lengri tíma litið.
Árangurinn lætur ekki á sér
standa og það er stöðugur straum-
ur áhugasamra kaupenda á bás-
inn hjá i8. „Þetta er búið að vera
mjög fjörugt,“ segir Börkur við
lok annars opnunardags og segir
það koma svolítið á óvart að eng-
inn einn standi upp úr, heldur
dreifist áhuginn tiltölulega jafnt
á þá listamenn sem galleríið
kynnir í ár. Það eru Ragnar Kjart-
ansson, Birgir Andrésson, Roni
Horn, Hrafnkell Sigurðsson,
Ragna Róbertsdóttir, Katrín Sig-
urðardóttir, Gabríela Friðriks-
dóttir, Hreinn Friðfinnsson,
Karen Sander og Hamish Fulton.
Við lok þriðja opnunardags er
kominn biðlisti á verk sumra
listamannanna sem hafa selst upp
– og aðrir hafa fengið tilboð um
sýningahald í söfnum og gallerí-
um. „Við höfum aldrei séð neitt
þessu líkt,“ segir Edda.
Frá sjónarhóli safnarans er Art
Basel Miami Beach líka gósen-
land, og hingað er mættur Pétur
Arason, sem um áratuga skeið
hefur safnað alþjóðlegri nútíma-
myndlist af mikilli ástríðu.
Almenningi gefst kostur á að
njóta ávaxtanna í SAFNI Péturs
og eiginkonu hans, Rögnu
Róbertsdóttur, við Laugaveginn í
Reykjavík. Pétur hefur eignast
mörg listaverk vegna persónu-
legra kynna af heimsþekktum
listamönnum. Pétur kaupir líka
verk á alþjóðlegum listastefnum
og segist núorðið sækja tvær til
þrjár árlega, enda finnst honum
mjög mikilvægt að á Íslandi sé
alþjóðleg myndlist bæði til og
sýnd opinberlega og geti þannig
skapað samræðu við íslenska
myndlist. Pétur hefur sótt alþjóð-
legar listastefnur í um þrjátíu ár
og segir að á þeim tíma hafi orðið
miklar breytingar „Þegar ég var
að byrja í þessu voru þeir sem
stunduðu þetta álitnir eins konar
sérvitringar,“ segir Pétur og
minnist þess að á sínum tíma hafi
aðeins örfáir einstaklingar haft
áhuga á nútímamyndlist og sinnt
áhuganum í einhverjum mæli.
„En nú er fjandinn laus,“ heldur
hann áfram og segir að síðastliðin
fjögur til fimm ár hafi orðið
sprenging á markaðnum fyrir
nútímamyndlist. Pétur bendir á
að fyrir utan aukinn áhuga sé erf-
iðara en áður að hafa yfirsýn yfir
hlutina: „Fyrir nokkrum árum gat
maður fylgst með því sem var að
gerast, en nú eru þetta svo mörg
lög að það er útilokað að vita
allt.“
Hann segir kaupendur á lista-
stefnunni vera af ólíkum toga:
sumir koma mjög vel undirbúnir,
með mikla þekkingu í farteskinu
og vita upp á hár hvað þeir ætla
að kaupa. Aðrir renna blint í sjó-
inn og „kaupa með eyrunum“,
eins og hann orðar það. Pétur
segir greinilegt að nýr hópur fjár-
sterkra kaupenda sé kominn á
markaðinn. Það er fjárfest fyrir
svimandi háar upphæðir og menn
hvorki hugsa sig um né blikna
þegar þeir festa kaup á milljón
dollara verkum. Pétur telur lista-
stefnuna í Miami á vissan hátt
vera öruggan vettvang fyrir lista-
verkakaupendur, að því leyti að
þeir listamenn sem galleríin eru
að kynna eru flestir nú þegar
búnir að hasla sér völl á sviði
myndlistarinnar og einungis
fremstu gallerí heims á hverjum
tíma meðal þátttakenda. Engu að
síður leggur Pétur áherslu á að
myndlistarkaupum fylgi alltaf
áhætta. Að hans mati er áhættan
líka á margan hátt það sem er
spennandi og áhugavert við þessa
íþrótt.
„Ég veit hvað ég vil,“ segir
Pétur þegar hann er inntur eftir
eigin kaupum á listaverkum.
Hann segist hafa þjálfað auga
sem á meðal annars rætur að
rekja úr fatakaupmennsku sem
hann stundaði allt frá unglingsár-
unum með föður sínum. Hann vill
því helst ekki hugsa sig mikið um
þegar hann kemur auga á eitt-
hvað sem kveikir í honum, vegna
þess að þá er möguleiki á að hann
hætti við kaupin – og sjái eftir
því. Pétur bendir mér á verk eftir
japanskan listamann sem hann
féll fyrir en var of dýrt. Þó að
hann komist ekki yfir þetta verk
að sinni þarf hann samt ekki að
fara tómhentur heim frá Miami,
enda búinn að ákveða að festa
kaup á þremur verkum. Pétur vill
þó ekki gefa upp hvaða verk það
eru en segir: „Fólk verður að
koma og sjá fenginn í SAFNI.“
Fjandinn laus á
Art Basel Miami Beach
Það var handagangur í öskjunni þegar dyrunum að listakaupstefnunni Art Basel Miami Beach var
lokið upp í ráðstefnuhöllinni í Miami. Tæplega tvöhundruð alþjóðleg myndlistargallerí, valin úr hópi
650 umsækjenda, stóðu tilbúin með vöru sína og listaverkasafnarar, sýningastjórar og safnstjórar frá
öllum heimshornum voru mættir, vel undirbúnir fyrir átökin og æddu markvisst af einum bás á ann-
an. Anna María Bogadóttir fylgdist með.