Fréttablaðið - 26.04.2008, Page 12
12 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
Kaupmáttur launafólks dróst almennt
saman um næstum einn af hundraði frá
mars í fyrra til mars í ár. Þetta hefur ekki
gerst frá árinu 2000. Vaxandi verðbólgu er
spáð. Þrátt fyrir almenna kaupmáttaraukn-
ingu hafa stórir hópar upplifað kjararýrn-
un undanfarin ár. Helmingur heimila er í
mínus um hver mánaðamót.
„Þetta þýðir að launahækkanir halda ekki í við
verðbólguna, en á því eru skýringar,“ segir Rann-
veig Sigurðardóttir, forstöðumaður greiningar og
útgáfu í Seðlabankanum.
Kaupmáttur launatekna rýrnaði um 0,9 prósent
milli mars í fyrra og mars í ár. Launavísitalan
hækkaði um 7,8 prósent milli ára, en verðbólga var
hins vegar 8,7 prósent. Þetta, segir í Hagvísum
Seðlabankans, hefur ekki gerst frá því í apríl árið
2000.
Sérfræðingar Seðlabankans segja að alla jafna
komi launahækkanir fram um áramót. Svo hafi ekki
verið að öllu leyti nú, þar sem samingar stórra hópa
voru þá lausir. Áhrif nýgerðra kjarasaminga komi
fram um þessar mundir. Hins vegar spáir Seðla-
bankinn vaxandi verðbólgu, svo ekki er útlit fyrir
almenna kaupmáttaraukningu á næstunni.
En þótt kaupmáttur rýrni nú almennt, hefur hann
rýrnað hjá stórum hópum launafólks undanfarin ár.
Í haustskýrslu hagdeildar Alþýðusambands
Íslands í fyrra kom fram að kaupmáttur rýrnaði hjá
næstum 40 prósentum afgreiðslufólks á árunum
2005-07. Kaupmáttur 35 prósenta iðnaðarmanna
rýrnaði á árunum 2005-06 og hjá helmingi þeirra
árin 2006-07. Kaupmáttur rýrnaði hjá tæplega
þriðjungi verkafólks á árunum 2006-07 og hjá 40
prósentum þess árið á undan. Þá varð kaupmáttar-
rýrnun hjá næstum helmingi skrifstofufólks árin
2005-07.
Um 180 þúsund manns eru á vinnumarkaði hér á
landi, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Því má ætla
að þúsundir, ef ekki tugir þúsunda vinnandi fólks
hafi orðið útundan í þenslu undanfarinna ára.
Hagstofan birti nýlega tölur sem sýna að helming-
ur heimilanna í landinu lifir um efni fram. Tekju-
lægsti fjórðungur heimila er að jafnaði um 60
þúsund í mínus um hver mánaðamót. Þess má geta
að líklega séu námsmenn í þessum hópi. Sá fjórð-
ungur heimila sem hefur næstlægstar tekjur er að
jafnaði um tíu þúsund krónur í mínus um hver
mánaðamót. ingimar@markadurinn.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 426
5.266 +1,22% Velta: 5.627 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,34 +0,55% ... Bakkavör
41,90 -0,95% ... Eimskipafélagið 22,70 -0,66% ... Exista 12,30
+2,59% ... FL Group 6,53 +2,51% ... Glitnir 16,75 +0,90% ...
Icelandair Group 23,10 -0,86% ... Kaupþing 845,00 +0,96% ...
Landsbankinn 31,00 +0,65% ... Marel 90,50 +0,44% ... SPRON 5,09
+4,73% ... Straumur-Burðarás 12,73 +3,83% ... Teymi 4,01 +0,75% ...
Össur 98,10 +4,92%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR +4,92%
SPRON +4,73%
STRAUMUR-BURÐ. +3,83%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -0,95%
ICELANDAIR -0,86%
EIMSKIPAFÉLAGIÐ -0,66%
Bein lína
Eins og jafnan fór Kjartan Gunnarsson, varafor-
maður bankaráðs, á kostum sem fundarstjóri á
aðalfundi Landsbankans síðasta vetrardag. Kjart-
an sló oft á létta strengi milli þess sem hann bar
upp misformlegar tillögur til samþykktar. Þegar
fundur hófst bað hann fundarmenn um að
slökkva á farsímum sínum en lét þess getið um
leið að kveikt væri á einum síma í húsinu, nánar
tiltekið á háborðinu hjá bankaráðinu. Það
væri bein lína til Seðlabankans og stjórn
bankans biði í ofvæni eftir einhverjum
tíðindum, eins og aðrir...
Eitthvað frágengið?
Litlum fregnum fer af mögulegu
útspili stjórnvalda og Seðlabank-
ans til að liðka fyrir fjármögnun
íslensku bankanna. Forsæt-
isráðherra hefur gefið í skyn
að unnið sé að málinu „baki
brotnu“ á bak við tjöldin og nú er er fullyrt að
einhverjar aðgerðir séu þegar frágengnar, en
beðið sé með að tilkynna þær. Eitt af því sem
nefnt er í því sambandi, eru lánalínur milli
Seðlabanka Íslands og Englandsbanka og eru
leiddar líkur að því að þau mál hafi m.a. komið
til umræðu á fundi forsætisráðherra landanna í
Lundúnum. Bankarnir íslensku hefðu þá mögu-
leika á að draga á slíkar línur, væntanlega
gegn veðum í ríkisskuldabréfum eða
öðrum verðbréfum, hefðu þeir á
annað borð þörf fyrir slíkt. Ekki er þó
talið að slík aðgerð ein og sér verði til
þess að eyða óvissu um fjármögnun
íslenska fjármálakerfisins, en með
öðru, t.d. aukningu gjaldeyris-
forðans, telja menn að unnt sé
að komast yfir erfiðasta hjallann
nú þegar margt bendir til þess
að botninum hafi verið náð á
erlendum mörkuðum...
Peningaskápurinn ...
Kaup norræna bankans Nordea á
sem nemur tæpum 5,5 prósentum
heildarhlutafjár í Straumi Fjárfest-
ingarbanka í gærmorgun urðu til
þess að nokkur kaupþrýsingur
myndaðist og verð bréfanna hækk-
aði allskarpt. Straumur hækkaði
um rúm 3,8 prósent í viðskiptum
dagsins.
Alls keypti Nordea 5.690.000
hluti á gengi sem hljóp á bilinu
12,31 til 12,71 í 11 færslum á tæpum
hálftíma frá klukkan rúmlega 10
um morguninn. Markaðsvirði hlut-
anna nemur tæplega 71 milljón
króna. Er talið að bankinn hafi
verið að loka skortstöðum fyrir
hönd viðskiptavina, en við slíkar
aðstæður getur verð hækkað skarpt
þegar eftirspurn eftir bréfum eykst
skyndilega. Bankinn hefur lokað
nokkrum slíkum stöðum á íslenska
markaðnum undanfarna daga, bæði
í Straumi og Landsbankanum.
Verð hlutabréfa Straums hækk-
aði lítillega eftir kauphrinu Nordea
og endaði í 12,73 krónum á hlut.
Alls skiptu rúmlega 62 milljónir
hluta um hendur í viðskiptum dags-
ins. - óká
Kaup Nordea í Straumi
hækka verð hlutabréfa
Kaupmáttur rýrnar
WILLIAM FALL FORSTJÓRI STRAUMS Straumur birtir tölur um afkomu fyrsta ársfjórð-
ungs þessa árs í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gengi bréfa Microsoft féll um allt
að 6,4 prósent á Nasdaq í gær eftir
að uppgjör félagsins sýndi fram á
24 prósenta samdrátt í sölu á síð-
asta ársfjórðungi.
Greint er frá því í frétt
Bloom berg að tekjur fyrirtækisins
af Windows-stýrikerfinu kunni að
verða minni en greinendur hafa
gert ráð fyrir. Gengi bréfa
Microsoft féll í rétt tæpa 29,77 dali
á hlut í fyrstu viðskiptum, sem er
mesta lækkun bréfanna í tvo mán-
uði, en þau náðu sér svo á strik
aftur.
Microsoft bendir á að hugbúnað-
arþjófnaður sé algengur á nýmörk-
uðum, þar sem mest aukning hefur
orðið í sölu vélbúnaðar. - óká
Microsoft fatast
flug á markaði
VIÐ UNDIRRITUN KJARASAMNINGA Í VETUR Verðbólgan hefur
undanfarið ár vaxið hraðar en laun fólks. Almennt hefur orðið
kaupmáttarrýrnun. Undanfarin ár hafa kjör stórra hópa fólks
rýrnað, þrátt fyrir kaupmáttaraukningu að meðaltali.
Fréttablaðið/Anton
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand
Hótel, Reykjavík þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 17.00.
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með
málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu
skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka
atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með
atkvæði á ársfundinum.
Reykjavík 10. apríl 2008,
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.