Fréttablaðið - 26.04.2008, Page 28
28 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
VISSIR ÞÚ AÐ...
Hafið þið hist áður?
Jónsi: Ég hef ekki hitt þig áður, ekki í
eigin persónu.
Illugi: Nei.
Jónsi: Hef séð þig í sjónvarpinu.
Illugi: Já, sömuleiðis.
Jónsi: Það verður reyndar að viður-
kennast að fólk sem hefur aðeins séð
hvert annað í sjónvarpinu heilsast
samt sem áður úti á götu.
Illugi: Já, það er svolítið spes reynd-
ar og ég hef lengi haft leikjafræði-
lega útskýringu á því. En við skulum
ekki fara út í hana því hún er mjög
„politically incorrect“.
Elskar orðið Sjálfstæðisflokkurinn
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir
orðin „Í svörtum fötum“ Illugi? Og
hvað dettur þér í hug Jónsi þegar þú
heyrir orðið „Sjálfstæðisflokkurinn“?
Illugi: Fyrir utan að detta Jónsi í hug
þá er það myndin Men in Black. Hvern-
ig er tímaröðin á þessu – voruð þið í
bandinu á undan myndinni?
Jónsi: Ég held að við höfum verið rétt
aðeins á undan. Og þess vegna keypt-
um við líka www.mib.is
Illugi: Og þess vegna eru málaferlin
við Hollywood einmitt ennþá í gangi
eða hvað?
Jónsi: Akkúrat. En hvað varðar orðið
Sjálfstæðisflokkurinn þá líður mér
alltaf vel þegar ég heyri það. Það er
eiginlega ekkert sterkara í hjörtum
fólks en sú eilífa löngun að vera sjálf-
stæður, hvort sem það er frá öðrum
þjóðum, foreldrum eða lánastofnun-
um. Þetta er orð sem grípur Íslendinga
í heild.
Illugi: Ég hefði nú bara ekki getað
orðað þetta betur. Hreinlega endurtók
þá ákvörðun mína að ganga í Sjálfstæð-
isflokkinn!
Rámar í Eurovision-Jónsa
Nefnið þá þrjá hluti um hvorn annan
sem þið vitið ekki hvort eru sannir
eður ei en gætuð engu að síður trúað
að væru það?
Jónsi: Ég skal ríða á vaðið og ég tel að
þú strauir ekki skyrturnar þínar
sjálfur, Illugi.
Illugi: Svarið við þessu er: Kolrangt.
Jónsi: Ég trúi þér ekki.
Illugi: Það er að vísu sannleikskorn í
þessu, ég er ekki mjög húslegur,
þannig. En skyrturnar mínar strauja
ég alltaf sjálfur. Mín fyrsta spurning
er sú, og finnst ég jafnvel hafa heyrt
af því, að þú sért stundum ræðumað-
ur í kirkjum.
Jónsi: Hárrétt. Þá held ég að þú Illugi
hafir prýðisgott sjálfstraust og þessu
sjálftrausti blandar þú við létta lund.
Ég mæli þetta af merkilegum hlut
eða því að þú ert léttrauðhærður að
sjá og kominn með örlítið grátt í
vanga – en þú ert ekki einu sinni að
hafa fyrir því að lita á þér hárið. Er
þetta ekki rétt hjá mér?
Illugi: Þetta er rétt og ekki rétt. Ég er
tiltölulega hirðulaus um eigið útlit og
hvað varðar sjálfstraustið þá verður
maður auðvitað að hafa visst lág-
markssjálfstraust í því starfi sem ég
er í. Engu að síður leynist þessi efi
alltaf í manni um það sem maður er að
gera og ég hef minn skerf af honum.
Fólk sem efast aldrei getur enda bæði
verið nett óþolandi og eiginlega allt að
því hættulegt – því það er aldrei í vafa
um að það sé að gera rétt eða segja
rétt. En ég hefði átt að gúgla eitthvað
í nótt um Jónsa. Látum okkur sjá. Ég
hef á tilfinningunni að þú sért fyrir-
myndar fjölskyldumaður.
Jónsi: Já og nei. Ég vinn mikið og hef
kannski ekki alltaf tíma á þessum
dæmigerða fjölskyldutíma, því ég
vinn til dæmis mikið um helgar. Ég
hef hinsvegar verið annálaður sem
lélegur drykkjumaður og það hefur
Garðar Thór
og Bjarna Ár-
manns í mafíu
Ef Illugi Gunnarsson yrði að flytja í opinbera byggingu
à la Björgólfs-fjölskyldan yrði hann að helluleggja garð-
inn í bak og fyrir því hann er með grasofnæmi. Fengi
Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi, að
velja sér opinbera byggingu til að flytja í yrði tónlistar-
húsið fyrir valinu. Júlía Margrét Alexandersdóttir hlust-
aði á Rökstólapar vikunnar skipuleggja mafíustarfsemi.
ÓSKA-JARÐARBERJAJÓGÚRT OG TÓMATAR Þar sem tómatar eru í miklu uppáhaldi hjá Illuga og óska-jarðarberjajógúrt
hjá Jónsa, yrðu þær vörutegundir fyrir valinu fengju þeir að lækka einhverja vöruflokka úti í matvörubúð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
háð mér mjög í söfnun rokk-stiga í gegnum tíð-
ina. Fjölskyldan hefur verið mín stoð og stytta
enda eignaðist ég hana áður en kom að popp-
ferlinum.
Illugi: Já, það er alltaf gott að eignast sína nán-
ustu áður en maður gengur í gegnum eldskírn-
ina.
Jónsi: Þriðja atriðið: Ég held að þú hafir alltaf
kosið Sjálfstæðisflokkinn.
Illugi: Það er fullkomlega rangt hjá þér. Ég náði
að klára MR sem vinstrimaður.
Jónsi: Lentirðu í svona vinstri-villu?
Illugi: Ég var orðinn tvítugur þegar ég skipti um
skoðun. Mamma mín, vinstri-konan, segir hins
vegar að þetta hafi verið eitt það vandræðaleg-
asta sem yfir fjölskylduna hafi gengið. Mitt
þriðja atriði: Mig grunar Jónsi, að þú hafir verið
í Eurovision.
Jónsi: Jú, passar. 2004 í Tyrklandi.
Illugi: Það var nefnilega eins og mig rámaði í
það.
Jónsi: Með lagið Heaven.
Illugi: Unnum við?
Jónsi: Nei, nei, nei, nei. Við lentum í 19. sæti.
Illugi: Ég er nefnilega lélegur í að muna svona og
er ekki með þennan lista alveg á hreinu. Og það
er auðvitað pólitískt mjög ósnjallt að játa þetta.
Húsið sem kostar alla milljarða
Skundum í Hallargarð Björgólfs-fjölskyldunnar,
sem hefur verið talsvert í fréttum síðustu vik-
una. Ef þið yrðuð að flytja með fjölskylduna í
einhverja opinbera byggingu – hvert mynduð þið
flytja og hvað mynduð þið setja í garðinn? Hver
er fallegasti garðurinn á Íslandi?
Jónsi: Vilt þú ekki kýla á þetta Illugi, þú ert nú
meira í opinberum byggingum en ég.
Illugi: Þetta er auðvitað mjög viðkvæm spurn-
ing. Ef ég dytti í það að segjast vilja búa í Stjórn-
arráðinu yrði því eflaust tekið sem svo að ég
væri orðinn galinn og vildi verða forsætisráð-
herra.
Jónsi: Gott að ég er ekki pólitískt tengdur. Ég
get leyft mér að flytja hvert sem er.
Á RÖKSTÓLUM
...á milli Jónsa og Illuga eru 10 ár.
...þeir eru báðir á því að Gunnar Eyjólfsson
yrði góður forseti. Hann er með flotta
fortíð eins og Reagan.
...Illugi vonar að hann þurfi ekki að draga
úr vindlareykingum þegar hann eldist.
...Jónsi vonar að hann verði ekki farinn að
horfa á fótbolta þegar hann eldist.
...Jónsi myndi gefa Illuga reyfara í sumar-
gjöf.
...Illugi myndi aftur á móti gefa Jónsa
sokka í sumarglaðning.
Illugi: Já! Bjarni gæti virkað sem fixer. En þá vantar
okkur enn foringja.
Jónsi: Það verður náttúrulega að vera maður sem
hefur vald og getur hrifið fólk með sér.
Illugi: Já, ég vann náttúrulega með svoleiðis manni. Honum Davíð.
Jónsi: Er það ekki kjörið? Með fullri virðingu fyrir háttvirtum
seðlabankastjóra.