Fréttablaðið - 26.04.2008, Blaðsíða 86
54 26. apríl 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. himinn 6. pfn. 8. blása 9. gogg
11. tónlistarmaður 12. sljóvga 14.
einkennis 16. ólæti 17. kusk 18. ágæt
20. frú 21. framkvæma.
LÓÐRÉTT
1. umdæmis 3. hola 4. flokkur sýkla-
lyfja 5. verkur 7. matarlím 10. óvild
13. skjól 15. listi 16. ái 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. loft, 6. ég, 8. púa, 9. nef,
11. kk, 12. slæva, 14. aðals, 16. at, 17.
ryk, 18. fín, 20. fr, 21. inna.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. op, 4. fúkalyf,
5. tak, 7. gelatín, 10. fæð, 13. var, 15.
skrá, 16. afi, 19. nn.
Gunnar Einarsson
Aldur: 31 árs.
Starf: Auglýs-
ingastjóri hjá
Víkurfréttum.
Fjölskylda:
Giftur Ásdísi Þor-
gilsdóttur, einka-
þjálfara. Á soninn
Einar Gunnarsson og stjúpdótturina
Indíönu Dís Ástþórsdóttur.
Foreldrar: Einar Gunnarsson,
starfar í fríhöfninni í Leifsstöð, og
Þorbjörg Ráðhildur Óskarsdóttir,
ritari.
Búseta: Heiðarbraut í Reykjanes-
bæ.
Stjörnumerki: Hrútur.
Gunnar Einarsson varð Íslandsmeistari í
körfubolta með Keflavík í vikunni, og var
valinn leikmaður úrslitanna.
Erlendir tónlistarmenn sem hing-
að koma fá borgað í erlendum
myntum og því hefur fall krónun-
ar haft mjög slæm áhrif á afkomu-
möguleika tónleikahaldara. Skatt-
urinn leggur annan stein í götu
þessarar viðkvæmu atvinnu-
greinar því nú þarf að borga
fimmtán prósenta skatt af tekjum
erlendra listamanna.
„Með þessu er verið að kippa
fótunum undan mjög brothættum
iðnaði því þessi skattur verður
beinn aukakostnaður fyrir okkur,“
segir Guðbjartur Finnbjörnsson,
sem flytur inn Paul Simon í sumar.
„Það verður erfitt að halda þessu
áfram. Menn þurfa að hugsa sig
mjög vel um áður en tekin er
ákvörðun og kannski verður
ástandið aftur eins og það var.
Kannski einir almennilegir tón-
leikar á svona tveggja ára
fresti.“
„Miðað við fallandi gengi krón-
unnar getur þessi skattur algjör-
lega drepið þetta,“ segir Björgvin
Rúnarsson hjá 2BC, sem flytur
inn Whitesnake í sumar. „Það er
nú ekki eins og menn hafi verið
að labba frá tónleikum með fulla
ruslapoka af peningum svo það
má hvergi út af bregða.“
„Þetta kippir sæmilega í því nú
bætist einfaldlega nýr og nokkuð
stór kostnaðarliður við,” segir
Ísleifur B. Þórhallsson hjá Conc-
ert. James Blunt og Bob Dylan
koma hingað á hans vegum í
sumar. „Við settum lögfræðinga í
að skoða það að fá undanþágu því
okkur fannst að þetta hlyti að telj-
ast tvísköttun. Listafólkið og
umboðsfyrirtækin borga náttúr-
lega skatt af þeim greiðslum sem
þau fá fyrir tónleika hér í sínu
heimalandi. Lögfræðingarnir
voru vongóðir í byrjun, enda
vísað í það í upprunalega bréfinu
frá skattinum að hægt væri að
sækja um undanþágu vegna tví-
sköttunar, en nú skilst okkur að
niðurstaðan sé sú að engar undan-
þágur sé hægt að fá og þetta er
sem sagt að enda sem hreinn
aukakostnaður fyrir okkur.“
- glh
Nýr skattur ógnar tónleikahaldi
SKATTURINN SEILIST Í VASA DYLAN Eða
öllu heldur tónleikahaldarans sem þarf
að borga skattinum 15 prósent af upp-
hæðinni sem Dylan fær fyrir að spila.
„Þetta var stórkostleg árshátíð og mikill
gleðifundur. Allir voru góðir við mig og Mar-
gréti og við vorum umvafin góðu fólki. Ég
fann engan óvin í húsinu,“ segir Guðni
Ágústsson formaður Framsóknarflokksins.
Fréttablaðið greindi frá því nýverið að
mikill urgur hafi verið meðal stangveiði-
manna vegna þess að sérlegur heiðursgestur
á árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur
var Guðni Ágústsson. Fóru menn mikinn á
spjallsvæði félagsins og fundu margir Guðna
allt til foráttu og töldu hann hafa verið hinn
versta mann í landbúnaðarráðuneytinu. Voru
jafnvel uppi áform um að rísa á fætur og
ganga úr salnum þegar Guðni hæfi ræðu
sína. Fremstur í flokki gagnrýnenda var Jón
Þór Júlíusson, einhver umfangsmesti leigu-
taki landsins, og bjuggust menn frekar en
ekki við því að slægi jafnvel í brýnu milli
þeirra Guðna.
Troðfullur salur var á árshátíðinni sem
haldin var í vikunni. Freyr Eyjólfsson
útvarpsmaður fór á kostum sem veislustjóri.
Var spenna í lofti þegar heiðursgesturinn
flutti sína ræðu en Guðni var fljótur að sýna
hversu góður ræðumaður hann er. Hann hóf
mál sitt á að segja að aldrei hafi heiðursgest-
ur mátt búa við aðrar eins svívirðingar. Og
hér gæti dregið til tíðinda, jafnvel átaka en
Guðni beið líkt og veiðimaður við vatn,
hugrór og stilltur, spenntur að sjá þann stóra.
Guðni sagði svo frá að hann hefði hitt Jón Þór
sem hafi heilsað. Ungur, glæsilegur maður
vel klæddur líkt og hann væri nýfermdur.
Þegar hann heilsaði horfði Guðni í augu hans
kalt og rólega og sagði: Þú ætlaðir að drepa
mig. Nei, svaraði Jón Þór. Við erum vanir því
veiðimenn að koma flugu í kjaft þess stóra,
þreyta hann og sleppa síðan. Guðni horfði þá
á Jón og sagði: Syndir þínar eru fyrirgefnar
barnið mitt. Risu menn við svo búið á fætur
og klöppuðu. Óhætt er að segja að ræðan hafi
frá þeim punkti verið ein sigurganga.
Og seinna um kvöldið kvaddi Jón
Þór sér hljóðs, talaði til Guðna af
nokkurri hlýju og færði honum þá
flugu sem hann hafði hnýtt sjálfur,
flugu með framsóknarívafi, græna,
og kallaði Guðna sterka. - jbg
Veiðimenn átu úr lófa Guðna
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Vann hug og hjörtu
veiðimanna
með snjallri
ræðu.
„Jújú, þetta er náttúrulega sér-
kennilegt í ljósi þess sem síðar
varð. En það var bara hringt niður
á Þrótt og beðið um einhvern flott-
an bíl,” segir Sturla Jónsson vöru-
bílstjóri og byltingarforingi.
Sturla og frægur Volvo VN 670
byltingartrukkur hans voru í lykil-
hlutverki þegar Fíton í samvinnu
við Saga Film gerðu mikla og flotta
auglýsingu fyrir olíufyrirtækið N1.
Það skýtur skökku við í ljósi þeirra
atburða sem síðar urðu – þar sem
Sturla leiðir vörubílstjóra í baráttu
fyrir lækkun olíuverðs. „Ég er nátt-
úrulega ekkert í stríði við olíufur-
stana. Ég er í stríði við ríkisstjórn-
ina. Baráttan beinist eingöngu gegn
þeim. Þetta snýst um að lækka
gjald á olíu og kílómetragjald. Þeir
lofuðu á sínum tíma að díselolían
yrði 10 krónum ódýrari en bensínið
en það er vel öfugt,“ segir Sturla.
Auglýsingin var gerð síðasta
sumar. Hún byrjar þannig að Sturla
gengur að trukki sínum í dagrenn-
ingu, ræsir vélarnar, kveikir ljósin
og allt hefst. Og undir dúndra tónar
frá hljómsveitinni Queen: Don’t
Stop Me Now. Leikstjórar eru þeir
Sammi og Gunni. Sturla er ánægð-
ur með auglýsinguna sem slíka þó
verðið á olíu sé honum ekki að
skapi.
„Við vorum einhverja tvo klukku-
tíma að taka upp þetta atriði sem
varir svo í örfáar sekúndur. Þeim
datt í hug að fá bílinn minn því hann
er um það bil sá eini sinnar tegund-
ar á landinu. Það er einn gamall til
líka en ekki eins flottur og þessi,“
segir Sturla. Hann var reyndar,
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum, á leið með trukkinn á Vöku.
Hann er stórtjónaður eftir að hafa
lent í miðju átakanna. Sturla segir
lögreglu ætlast til að hann greiði
viðgerðina, sem sé galið – þegar
bíllinn var skemmdur var honum
löglega lagt.
„Ég held að menn ætli að halda
áfram,“ segir Sturla aðspurður
hvað sé næst á döfinni hjá vörubíl-
stjórum. Hann lýsir yfir sárum
vonbrigðum með aðgerðir lögreglu
þegar allt fór í loft upp á miðviku-
dag. „Lögreglan fékk náttúrulega
bara skipun frá Birni Bjarnasyni.
Hann á náttúrulega að segja af sér.
Forkastanleg vinnubrögð dóms-
málaráðherra.“ jakob@frettabladid.is
STURLA JÓNSSON: LÉK Í AUGLÝSINGU FYRIR N1
Byltingartrukkur Sturlu í
auglýsingu olíufélags
ÚR AUGLÝSINGUNNI Trukkurinn og Sturla leika lykilhlutverk í auglýsingu sem gerð
var fyrir olíufélagið N1.
STURLA JÓNSSON Skoðar skemmdir sem
urðu á bíl sínum í átökunum en lögregla
vill að hann greiði sjálfur viðgerðina.
FRÆGUR TRUKKUR Ekki aðeins sem
helsti byltingartrukkur landsins heldur
frægur úr auglýsingum.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
Kópavogs er nú staddur úti í
Kína. Hann lætur ekki slá sig út af
laginu fremur en flokkssystir hans
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
og telur ekki að hann sé
að styðja stjórnvöld þar
þó hann sæki landið
heim. Ekki eru það
erindi í tengslum við
Ólympíuleikana heldur
mun Gunnar vera
að ganga frá því að
Kópavogur eignist
kínverskan vinabæ.
Búið er að ganga
frá samningi við Þorstein J.
Vilhjálmsson á RÚV um að hann
verði með sérstaka spjallþætti í
tengsl- um við EM sem verður
haldið í sumar. Þáttur-
inn verður með
mannlegum vinkli
eins og Þorsteini er
lagið að kalla til
fólk sem
fáum hafði
fyrirfram
dottið í hug
að tengdust
fótbolta á
nokkurn
máta.
Félag kráareig-
enda hélt fund á sumardaginn
fyrsta á Glaumbar. Ýmislegt er það
sem þeir höfðu að ræða en eins
og Fréttablaðið greindi nýverið frá í
viðtali við Kormák Geirharðsson
hafa þeir áhyggjur af því að borgar-
yfirvöld ætli sér að stytta opnun-
artíma. Hugsanlegt er að Stefán
Eiríksson lögreglustjóri hafi fengið
hiksta því hann er ekki
efstur á vinsældalista
verta en Stefán hefur
sótt fast að borgaryf-
irvöldum þess efnis
að þrengt verði að
veitingarekstri í
miðborginni.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Ágúst Fylkisson.
2. Garðar Thór Cortes.
3. Færri.