Fréttablaðið - 10.05.2008, Page 19

Fréttablaðið - 10.05.2008, Page 19
LAUGARDAGUR 10. maí 2008 19 UMRÆÐAN Jón Bjartmarz skrifar um lög- gæslumál Hérlendis tíðkast að nota orðið almenn lögregla þegar rétt- ara væri að nota orðið gæslulög- regla til þess að lýsa hlutverki hinnar almennu lögreglu. Annars vegar er talað um almenna lög- reglu og hins vegar rannsóknar- lögreglu. Vísar einnig til þess mis- munandi hlutverks lögreglu að gæta almannaöryggis og halda uppi allsherjarreglu annars vegar og hins vegar þess hlutverks henn- ar að vinna að uppljóstrun brota og fylgja málum eftir skv. lögum um meðferð opinberra mála. Hrein viðbót Þess misskilnings hefur gætt að efling greiningardeildar og sér- sveitar ríkislögreglustjóra hafi verið á kostnað hinnar almennu lögreglu. Hið rétta er að engar fjárveitingar hafa enn fengist vegna greiningardeildar heldur hefur kostnaði verið mætt með endurskipulagningu hjá ríkislög- reglustjóra. Hvað varðar sérsveit- ina þá komu til auknar fjárveiting- ar vegna hennar á árunum 2004-2006. Eflingin kom til í tíð síðustu ríkisstjórnar og almenn löggæsla naut góðs af henni m.a. vegna þess að bætt var við 10 stöð- um lögreglumanna í þáverandi lögregluliði í Reykjavík auk fjölgunar sem varð í sérsveit. Fjölgun sérsveitarmanna var hrein viðbót við aðrar fjárveit- ingar til löggæslu sem ekki voru skornar niður og því fráleitt að tala um að eflingin hafi verið á kostnað hinnar almennu lögreglu. Einnig fráleitt í ljósi þess hlut- verks sveitarinnar að sinna dag- lega almennum lögreglustörfum á vöktum allan sólarhringinn, samhliða sérverkefnum og þjálf- un og þess að verkefni hennar eru hluti af því að gæta almannaör- yggis og halda uppi allsherjar- reglu og hún því hluti hinnar almennu lögreglu í landinu. Ára- tuga reynsla varð til þess að ákveðið var að færa sérsveitina undir ríkislögreglustjóra og hefur sú breyting reynst mjög vel. Betri nýting fjárveitinga Í nýlegri áfangaskýrslu um mat á þeim breytingum á nýskipan lög- reglu sem gerð var með fækkun umdæma úr 26 í 15 kemur fram að ekki hafa verið um nægilega róttækar breytingar að ræða til að tryggja bestu nýtingu mann- afla innan lögreglunnar alls stað- ar á landinu. Þá er bent á að hlut- fall stjórnenda sé óvenju hátt innan lögreglunnar og að brýnt sé að gera greinarmun á eiginlegum lögreglustörfum og öðrum störf- um sem ekki þarf lögreglumenn til að sinna. Einnig kemur fram að fjárveitingar til löggæslu hafa aukist á undanförnum árum. Ekki er mælt á móti því að full ástæða er til þess að efla lögregl- una og auka fjárveitingar til hennar. Þróun mála hérlendis varðandi skipulagða alþjóðlega glæpastarfsemi og aukin þörf á að efla öryggismál almennt kallar beinlínis á að stjórnvöld leggi meiri áherslu á löggæslu-, örygg- ismál og almannavarnir. Það að skapa stofnana- og deildarríg um hvort ákveðin starfsemi sé á kostnað annarrar innan lögregl- unnar skilar hins vegar engu. Þá er hægt að bæta nýtingu fjárveit- inga innan lögreglunnar með frekari endur- skipulagningu hennar og skyn- samlegast að lög- reglan öll verði eitt lögreglulið undir stjórn rík- islögreglustjóra með sama hætti og lögreglan á Írlandi. Skipulag neðan frá Einnig er rétt að skoða hlutfall þeirra lögreglumanna sem sinna innistörfum sérstaklega í stærri lögregluliðunum. Frasar um sýni- lega löggæslu eru marklausir ef ekki fylgja efndir um að fjölga lögreglumönnum á götunni á þeim svæðum þar sem þörfin er brýnust hverju sinni og að fólk fái skjóta lögregluaðstoð þegar það óskar. Of hátt hlutfall lögreglumanna sem vinna innistörf eða að verk- efnum sem ekki þarf menntaða lögreglumenn til að sinna er því röng forgangsröðun. Við skipu- lagningu lögregluliðs á að byrja neðanfrá og ákveða fyrst hvaða lágmarks mannskap þarf út á götu í almenna löggæslu en ekki ofan- frá og enda síðan með of fáa menn á götunni. Spyrja má hvort skipu- lagsbreytingar hjá stærri lög- regluliðunum hafi skilað þeim árangri sem að var stefnt og hvort lögreglumönnum hafi fjölgað við útistörf. Annar frasi sem stundum heyrist er að ríkislögreglustjóri eigi ekki að vera með „operativa“ starfsemi og eðlilegt væri að starf- semi eins og sérsveit, fjarskipta- miðstöð og alþjóðadeild væru hjá stærstu lögregluliðunum. Spyrja mætti hvort þetta þýddi að lög- reglustjórarnir ættu þó ekki að vera með neina „strategíska“ starfsemi sem er álíka gáfulegur frasi. Eins og skipan lögreglu er hérlendis er eðlilegt að öll hlut- verk sem eru á landsvísu séu hjá ríkislögreglustjóra. Á Norðurlönd- unum tíðkast ekki að landsvísu- hlutverk séu í höndum einstakra lögreglustjóra sem hafa land- fræðileg valdmörk. Uppskipting væri afturför Þróunin á hinum Norðurlöndunum hefur verið sú að hinar miðlægu lögreglustofnanir hafa verið efldar á síðustu árum til þess að takast á við nýjar ógnir. Þá hefur náðst mikill árangur hjá embætti ríkislögreglustjóra svo sem varð- andi starfrækslu fjarskiptamið- stöðvar á landsvísu, alþjóðadeild- ar sem tengir íslensku lögregluna við alþjóðlegar lögreglustofnanir og með eflingu sérsveitar og þar með öryggismála almennt, svo ekki sé minnst á almannavarnir ríkisins sem færðar voru til emb- ættisins. Uppskipting á embætt- inu myndi vera stórfelld afturför enda hefur það verið í forystuhlut- verki í breytingum á löggæslu- málum og framförum í þeim efnum síðustu 10 ár. Höfundur er yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra. SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. JÓN BJARTMARZ Almenna lögreglan – gæslulögreglan Fossháls 5-9 • Sími 551 5600 • www.utilegumadurinn.is Allt til ferðalagsins Þægindi um land allt Verið velkomin í Útilegumanninn, Fosshálsi 5-9 alla daga. Við sýnum ykkur fellihýsin, hjólhýsin og bátana okkar fyrir sumarið 2008 ásamt ferðavöru. Á ferðalögum þínum um landið getur þú notið sams konar þæginda og heima hjá þér á öllum uppáhaldsstöðunum þínum. Uppbúið rúm og fyrirtaks aðstaða til að framreiða og njóta yndislegra máltíða fylgja þér hvert sem leið þín liggur - en útsýnið er aldrei eins. OPIÐ Helgar 12-16 Virka daga 10-18 Ríkulegur staðalbúnaður Galvaníseruð grind Evrópskar þrýstibremsur Radial dekk / 13” álfelgur Góð fjöðrun, hentar vel á ísl. vegum Útdraganleg trappa við inngang Breitt nefhjól (uppblásið gúmmídekk) 50 mm kúlutengi 220v tengill (blár skv. reglugerð) Útvarp með geislaspilara, hátalarar inni og úti Upphitaðar 12 cm springdýnur Vatnsh. öndunardúkur í svefnrými Dometic kæliskápur XL 2,5 cubic SMEV ryðfrí gaseldavél m/rafstarti 2 gaskútar Gasviðvörunarkerfi Öflug Truma combi 4 miðstöð m/heitu vatni Stór loftlúga m/þriggja hraða viftu Skyggðir gluggar 2 feta geymsluhólf Stórt farangurshólf Voldugir öryggisarmar fyrir þak og tjald 1 x færanlegt lesljós með viftu 110 amp rafgeymir Heitt og kalt vatn, tengt Rafmagnsvatnsdæla 86 lítra vatnstankur Klósett með hengi CD spilari/ útvarp vatn tengt heitt/kalt Fjöðrun f. ísl. aðstæður Evrópskar Þrýstibremsur Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Rockwood fellihýsi Verð frá 1.398.000 kr.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.