Fréttablaðið - 28.08.2008, Síða 10
28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
40%
afsláttur
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík
...betri bitar!
TILBOÐIN GILDA 28. - 31. ÁGÚST
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
30%
afsláttur
40%
afsláttur
GOURMET UNGNAUTAHAKK
899 kr/kg
1.498 kr/kg
ÍRSKAR SVÍNALUNDIR
959 kr/kg
1.599 kr/kg
NAGGAR, SÆLKERABOLLUR
450g
440 kr/pk.
629 kr/pk.
DANSKAR
KJÚKLINGABRINGUR 900g
859 kr/pk.
STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins, breytti ræðu sem hann hélt á Alþingi áður
en hún fór í Alþingistíðindi. Breytingin var nokkur
og varla annað hægt að segja en að um merkingar-
breytingu hafi verið að ræða.
Í umræðu um ný grunnskólalög sagðist Guðni
sakna þess að ekki væri rætt um kristilegt siðgæði.
Orðrétt sagði hann: „Það er ekkert siðgæði til í
rauninni nema kristið siðgæði.“ Eftir breytingar
Guðna hljóðar setningin svona: „Það er í rauninni
ekki til neitt sem hefur bætt heiminn jafnmikið og
kristið siðgæði.“
Guðni Ágústsson segist ekki vanur að breyta
ræðum sínum. „Í þessu tilviki hélt ég ræðu blaðlaust
og af einhverjum ástæðum sagði
ég þetta öðruvísi en ég meinti. Ég
umorðaði þetta því eftir þeirri
efnislegu meiningu sem ég vildi
koma fram,“ segir Guðni.
Íris Ellenberger, formaður
Sagnfræðingafélags Íslands, segir
að svona breytingar geti skekkt
umræðu fræðimanna framtíðar-
innar.
„Auðvitað er bagalegt fyrir
sagnfræðinga að geta ekki gengið
að því sem vísu að þessar ræður
séu réttar, að þær séu eins og þær
voru sagðar á þingi. Ég vona hins
vegar að svona breytingar séu
ekki algengar,“ segir Íris.
Hún á ekki von á að stjórn
Sagnfræðingafélagsins fjalli um
þetta einstaka mál. „Ef í ljós
kemur að þetta er algengt verður
þetta kannski tekið upp.“
Gunnar Helgi Kristinsson
stjórnmálafræðingur segir það
lengi hafa tíðkast að þingmenn
breyti ræðum sínum. „Við vitum það að menn breyta
oft merkingum ræða sinna. Þingtíðindi eru hins
vegar grundvallarheimildir og það hefur mikla kosti
að menn séu ekki að fikta við þau.
Þetta getur verið bagalegt. Ímyndum okkur að
umræða eigi sér stað í fjölmiðlum í kjölfar ummæla
á þingi. Sú umræða verður óskiljanleg í framtíðinni
hafi menn breytt upprunalegu ummælunum í
þingtíðindum.“
Gunnar segir leiðréttingu Guðna ganga nokkuð
lengra en þingskaparlög heimili. „Maður hefur samt
ákveðna samúð með sjónarmiði Guðna. Hann vill
frekar að í skjölin fari það sem hann ætlaði að segja
frekar en það sem hann sagði.“ kolbeinn@frettabladid.is
Þingræðu breytt
fyrir þingtíðindi
Guðni Ágústsson breytti merkingu orða í ræðu áður en hún fór inn í þingtíð-
indi. Ekki í takt við þingsköp, segir stjórnmálafræðingur. Breyting þingmanna
á ræðum slæm fyrir umræðu framtíðarinnar en hefur tíðkast lengi.
ÍRIS ELLENBERGER
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
SKIPULAGSMÁL Magnús Skúlason,
áheyrnarfulltrúi F-listans í skipu-
lagsráði, lagði í gær fram tillögu
þess efnis að ráðið samþykkti að
taka til alvarlegra athugunar
hvort nota mætti aðrar tillögur
um Listaháskólann en vinningstil-
löguna. Þannig mætti varðveita
götumynd Laugavegar. Tillögunni
var vísað til skipulagsstjóra og
samkeppnisvinnu við Listaháskóla
Íslands.
„Ef aðstandendur vinningstil-
lögunnar og skólans eru tilbúnir
að aðlaga tillöguna þannig að
götumyndin haldi sér er það hið
besta mál. Annars eigum við að
skoða aðrar tillögur, sem gerðu
ráð fyrir að húsin við Laugaveg
41, 43 og 45 héldu sér,“ segir
Magnús.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, varaformaður skipulagsráðs,
segist sammála því að gott væri
að ná samkomulagi um að laga
vinningstillöguna að götumynd-
inni. Að fleiru þurfi hins vegar að
huga.
„Ég hef sagt að þetta sé býsna
mikið byggingarmagn fyrir þenn-
an reit og hef ekki dregið það til
baka. Ég var hins vegar kjörinn í
skipulagsráð til að ná einhvers
konar sátt í skipulagsmálum. Ég
vil því ekki tjá mig um þetta án
þess að kynna mér ýmis atriði
varðandi málið sem mér finnst
verða að huga að. Markmiðið er
að finna niðurstöðu sem allir geta
sætt sig við,“ segir Sigmundur.
- kóp
F-listinn leggur til að ekki verði farið eftir vinningstillögu um Listaháskóla:
Ekki óbreytta vinningstillögu
SKIPULAGSMÁL Íbúar í Lindahverfi
í Kópavogi efna til fundar í Linda-
skóla klukkan 20 í kvöld þar sem
fyrirhugaðar breytingar á deili-
skipulagi hverfisins verða kynnt-
ar. Meðal breytinga sem ræddar
verða eru hækkanir á byggingum
neðst í hverfinu úr þremur
hæðum í sjö til átta hæðir. Þar
með talin er hækkun byggingar
við verslunarkjarnann Lindir.
„Við ákváðum að halda fund til
að kynna fólki hvað búið er að
samþykkja og hvað verið er að
auglýsa núna sem nýjustu tillög-
ur,“ segir Anna S. Magnúsdóttir,
íbúi í Lindahverfi og einn fundar-
boðenda.
Hún segir íbúa hverfisins
svikna þar sem á sínum tíma hafi
hverfið verið auglýst sem fjöl-
skylduvænt. „Þegar ég kaupi í
þessu hverfi fyrir um tíu árum er
framhaldsskóli skipulagður þar
sem húsin eiga nú að rísa. Ég
flutti hingað á þeim forsendum að
hverfið væri fjölskylduvænt, með
tveimur leikskólum, grunnskóla
og framhaldsskóla,“ segir Anna.
Þess í stað hafi verslunar-, þjón-
ustu- og skrifstofuhúsnæði verið
reist í hverfinu.
„Ég hef áhyggjur af umferð og
mengun og tel að umferðarmann-
virki í hverfinu þoli ekki meira.“
Í því sambandi bendir hún á
aukna umferð um hverfið vegna
breytinga á Glaðheimasvæðinu
skammt frá. „Við viljum mót-
mæla hækkun húsanna og viljum
að eldra deiliskipulag standi.“
- ovd
Íbúar í Lindahverfi andvígir fyrirhuguðum hækkunum á byggingum í hverfinu:
Vilja að eldra deiliskipulag standi
ÓSÁTT VIÐ BREYTT DEILISKIPULAG Anna
S. Magnúsdóttir við framkvæmdasvæðið
neðst í Lindahverfi í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
BREYTTI ÞINGRÆÐU Orð Guðna Ágústssonar, þingmanns
og formanns Framsóknarflokksins, í þingræðu um kristið
siðgæði tóku breytingum áður en ræðan rataði í Alþingis-
tíðindi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þingmenn fá ræður sínar til yfirlestrar áður en þær fara
á vef þingsins og síðan í þingtíðindi.
Í lögum um þingsköp segir:
„Í Alþingistíðindunum má ekkert undan fella sem þar á
að standa og fram hefur komið í þinginu og hljóðupp-
taka ber með sér. Engar efnisbreytingar má gera nema
leiðrétta þurfi auðsæjar og sannanlegar villur.“ Þá má
engu bæta inn í Alþingistíðindin „nema þess sé óhjá-
kvæmilega þörf eða í því felist sjálfsögð leiðrétting.“
Í upplýsingariti Alþingis segir:
„Stundum getur verið álitamál hvort taka megi til
greina óskir um lagfæringar á ræðum þeirra [þing-
manna]. Villur sem stafa af misheyrn ritara, ef hljóð-
upptaka er óskýr, eða af ókunnugleika (t.d. ranglega
rituð erlend nöfn) er sjálfsagt að leiðrétta. Þá er
viðtekin venja að heimila lítils háttar fágun á orðalagi
ef merking er óbreytt, sem og augljós mismæli.“
YFIRLESTUR Á ÞINGRÆÐUM
MAGNÚS
SKÚLASON
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON