Fréttablaðið - 28.08.2008, Page 22

Fréttablaðið - 28.08.2008, Page 22
22 28. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna „Verstu kaup sem ég hef gert eru þegar ég keypti árskort í líkamsrækt fyrir þremur árum,“ segir Guðjón Davíð Karlsson leikari hjá Borgar- leikhúsinu, oftast kallaður Gói. „Ég fór aðeins tvisvar. Ég er ennþá að jafna mig.“ Þetta eru algeng mis- tök hjá þeim sem ætla að drífa sig í ræktina, að byrja á því að kaupa árskort, en finna sig svo ekki í ræktinni. Gói er þó ekki alveg hættur við líkamstæktina, því hann segist verða að fara að huga aftur að ræktun líkamans. Spurningin sé bara hvernig hann fari að því, því tæki inni í sal eigi ekki nógu vel við hann eins og reynslan hafi sýnt. „Kannski ég athugi hlaupaskó,“ segir Gói, enda hollt og gott að skokka ef viðkomandi er rétt skóaður. Almennt segist hann þó vera skyn- samur maður og góður neytandi og því sleppa við slæm kaup. Bestu kaupin segir Gói að séu áskrift- arkort í Borgarleikhúsið, enda vill hann fá sem flesta í leikhúsið sitt. „Tuttugu og sex ára og yngri fá kortið á 4.450 kall. Með því kostar hver leikhús- miði tólf hundruð krónur, sem er gjafverð. Þetta verða gjafir mínar núna næstu vikurnar.“ NEYTANDINN: GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LEIKARI Enn að jafna sig eftir líkamsræktina Kostnaður við kaup á kennslubókum getur hlaup- ið á tugum þúsunda króna. Nemar eiga fáa aðra kosti en að leita til Bóksölu stúdenta á meðan, vegna kostnaðar við að panta að utan. Bókalán Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) er innifalið í námslánum og nemur 48 þúsund krónum á ári eða 24 þúsund krónum á önn. Kostnaðurinn getur þó verið mun meiri. Tekin voru dæmi af heimasíðu Bóksölu stúdenta á kostnaði ann- ars árs nema í rafmagns- og tölvu- verkfræði og kostnaði þriðja árs nema í hjúkrunarfræði nú í haust. Rafmagns- og tölvuverkfræði- nemarnir eru með bókalista sem kostar 57.960 krónur fyrir önnina. Bækurnar eru sjö og kosta á bilinu fimm til tíu þúsund krón- ur hver. Hjúkrunar- fræðinemarnir þurfa að greiða 45.007 krónur fyrir sínar bækur, sem einnig eru sjö talsins. Ódýrustu bækurnar kosta rúm- lega fjögur þúsund krónur en þær ódýrustu eru á um það bil 8.500 krónur. Eins og sjá má vantar talsvert upp á að bókalánin nái að koma fyllilega til móts við kostnað nem- enda. Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LÍN, segir að málið hafi ekki verið rætt innan lána- sjóðsins í háa herrans tíð. „Þegar breytileg lán hafa verið rædd hefur það frekar verið í tengslum við húsnæði vegna þess hve mikill munurinn er á leigu- verði hjá nemum.“ Sumir nemendur reyna að lækka kostnaðinn með því að kaupa bækur að utan í gegnum netið. Séu bækur nemanna sem um er rætt keyptar í gegnum Amazon lækkar heildarkostnaður hjúkrunarfræði- nemanna um níu þúsund krónur en rafmagns- og tölvuverkfræðinema um tíu þúsund krónur. Með nýrri tillögu Gísla Tryggva- sonar, talsmanns neytenda, getur kostnaður við innkaup í gegnum netið lækkað umtalsvert, einkum í þeim tilfellum sem ein til tvær bækur eru keyptar í einu. Þar gætu nemar sparað nokkur þúsund krón- ur en margir reyna að dreifa bóka- kaupum yfir önnina eins mikið og völ er á. Gísli segist vona að tillaga hans verði samþykkt og það verði til auk- innar samkeppni á bóka- og póst- verslunarmarkaði, sem muni von- andi leiða til einhverra lækkana. helgath@frettabladid.is Háskólanemar bundnir við verðlag Bóksölunnar BÆKUR Í BÓKSÖLU STÚDENTA Bókalán LÍN eru úr samhengi við raunverulegan kostnað fjölmargra háskólanema. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GÍSLI TRYGGVASON Nýtt! Gras.is beint á skjáborðið þitt! Gras.is hefur sett upp vefþjónustu (Gagdet) sem t engir þig beint við fréttirnar, án þess að þurfa opna vafrann þinn! Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is HELGA ÞÓREY neytendur@frettabladid.is Neytendavaktinni hafa borist bréf um kostnað foreldra við grunnskólanám barna. Arna skrifaði: Nú þegar sonur minn er að byrja í sex ára bekk þurfti ég að borga meira en tíu þúsund krónur bara til þess að hann gæti byrjað í skólanum. Þá átti ég eftir að kaupa á hann skólaföt og tösku. Er þetta leyfilegt? Leifur skrifaði okkur um svipað efni: Hvernig stendur á því að skólarnir geta rukkað foreldra um efnisgjöld og dýrar vörur? Eiga þær ekki að vera innifaldar í sköttum? Það er erfitt að átta sig á því hve mikið foreldrar eru að greiða því eflaust fer það eftir skólum og ekki síst eftir efnahag fólks. Í Aðalnáms- krá grunnskóla segir: „Samkvæmt lögum eiga grunnskólanem- ar að fá námsgögn til afnota sér að kostnaðarlausu í þeim námsgreinum sem aðalnámskrá grunnskóla kveður á um. Óheimilt er að krefja nemendur í skyldu- námi um greiðslu fyrir kennslu, námsgögn eða annað sem þeim er gert skylt að nota í náminu samkvæmt aðalnáms- krá.“ Í 33. grein laga um grunnskóla segir: „Opinberum aðilum er ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota, svo sem ritföng og pappír.“ Ekki er fjallað um möppur og aðra fylgihluti í lögunum. Foreldrar verða því að athuga að ritföng eiga ekki að falla undir námsgögn. Samkvæmt Aðalnámskrá eru það „prentað efni, myndefni, hljóðefni, tölvuforrit, efni á Netinu, margmiðlunarefni, efni til verklegrar kennslu og slíkt sem fellur undir skilgreiningu námsgagna“. Þessa hluti eiga foreldrar aldrei að þurfa að greiða fyrir. Foreldrar kvarta yfir dýrum innkaupalistum skólanna: Eiga skólar að leggja til ritföng? ■ Þorbjörn Pétursson, bóndi á Ósi, kann gott ráð vilji menn komast fljótt að því hvaða mann einhver hefur að geyma. „Það er nú þannig að sauðkindin finnur það strax á sér hvort einhver sé vel, sæmilega eða illa innrættur. Af viðbrögðum hennar má verða margs vísari um það hvaða mann einhver hefur að geyma. Það er því tóm vitleysa að tala um skynlausar skepnur, það eru vitlausir menn sem láta sér slíkt um munn fara.“ GÓÐ HÚSRÁÐ AÐ ÞEKKJA INNRÆTI FÓLKS Þegar skoðað er verð á ofnæmislyfinu Kestine má sjá að talsverður munur er á milli apóteka. Þrjátíu stykkja pakkning með 10 mg töflum er dýrust hjá Lyfjum og heilsu en þar kostar lyfið 2.440 krónur. Apótekarinn kemur næstur með pakkninguna á 2.248 krónur og síðan Lyfja á 2.118 krónur. Hjá Garðsapóteki kostaði pakkinn ekki nema 1.986 krónur en Lyfjaver átti vinninginn með lægsta verðið, 1.884 krónur. Það er 566 krónum ódýrara en hjá Lyfjum og heilsu. ■ Verðlag Lyf og heilsa með hæsta verðið Breytingargjald Icelandair hefur hækkað. Farþega Icelandair brá í brún þegar hann hafði í ógáti slegið inn rangar upplýsingar við pöntun flugmiða hjá félaginu. Þegar hann hringdi í Icelandair til þess að laga villuna var honum tjáð að hann þyrfti að greiða tíu þúsund króna breytingargjald auk verðmunar á sætunum tveimur. Þannig getur miði sem kostar 35 þúsund auðveld- lega hækkað upp í fimmtíu þúsund krónur. Því ríður á að gera ekki mistök þegar pantað er á netinu og fara vel yfir allar upplýsingar. ■ Hækkun Meiri munur á sæti og sæti hjá Flugleiðum Neyðarþjónustan hefur verið fundin sek um að kasta rýrð á vörur frá ASSA með bréfi til viðskiptamanna. Þetta kemur fram á heimasíðu Neytendastofu. Neyðarþjónustan braut gegn lögum um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðar- ins með athæfi sínu. Einnig braut fyrirtækið gegn ákvæði sömu laga „með ósönnuðum fullyrðingum í kynningarbréfi og á vefsíðu fyrirtækisins og með því að bera saman verð á ósamanburðarhæfum vörum frá MU og ASSA“. ■ Vörur Neyðarþjónustan rægði vöru- merkið ASSA Útgjöldin > Verð bíómiða á venjulega sýningu. HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS 90 0 KR . 1997 2007 58 8 KR .

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.