Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.08.2008, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 28.08.2008, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 28. ágúst 2008 5 Með haustinu, þegar birta fer að þverra á kvöldin, er þörf á hlýlegri lýsingu þegar gestum er boðið í mat. Lampinn Betty Lou var kynntur á hönnunarsýningu í New York í maí síðastliðinn, af hönnunar- fyrirtækinu Mmckenna. Betty Lou gefur hlýlega birtu við borð- haldið. Lampinn er glerkúpull sem hægt er að hvolfa yfir hvaða vín- glas sem er og engin snúra kemur nærri. Lampann knýr lítil lithíum rafhlaða sem er endurhlaðanleg en í botn vínglassins er sett linsa sem endurkastar ljósinu um glasið og stafar hlýlegum bjarma. Ljósið endist í sjö tíma í senn. Hönnunar og framleiðslufyrir- tækið Mmckenna hefur verið starfrækt í New York frá árinu 2002. Það sérhæfir sig í lýsinga- hönnun en stofnandi þess og aðal hönnuður, Mark McKenna lærði meðal annars hjá Ingo Maurer. Fyrirtækið leggur áherslu á að nýta nýjustu tækni en að útkoman verði elegant og gæsileg. - rat Betty Lou á borðið Glerkúplinum er hægt að hvolfa yfir hvaða vínglas sem er. MYND/ANTOINE BOOTZ Garðurinn – Endurvinnsla Það sem áður var skilgreint sem úrgangur eða rusl er í dag hrá- efni eða auðlind fyrir aðra fram- leiðslu. Úrgangur og rusl er ekk- ert annað en auðlind á villigötum. Næstum allt er hægt að endur- nota eða endurvinna. Lykillinn er að flokka úrgang rétt til að það sé mögulegt. Röng flokkun getur gert að verkum að ómögulegt sé að endurvinna úrgang á síðari stigum. Með endurvinnslu minnk- ar einnig þörfin á urðun, sem minnkar áhættu á jarðvegsmeng- un. Urðun er einnig dýr, en það endurspeglast ekki í verði vara þar sem það er innifalið í útsvari til sveitarfélaga. Best af öllu er hins vegar að forðast að kaupa „rusl“. Hversu oft er ekki verið að kaupa umbúðir sem fara beint í ruslið þegar heim er komið. Helstu endurvinnslu- flokkar eru skilgreindir af hverju sveitar- félagi fyrir sig og er þar stuðst við Fenúrflokk- ana. Mögulegir endurvinnsluflokkar á Reykjavíkursvæð- inu eru mun fleiri en úti á landi. Það skýrist af því að enduvinnsla er bein- tengd hagkvæmni og ef hag- kvæmni fæst ekki út úr flutningi á hráefni til enduvinnslu um lang- an veg er það látið vera. Sveitar- félög eru einnig misjafnlega í stakk búin til að taka við efni til endurvinnslu en stöðug framför er á þessu sviði. Öll sveitarfélög taka þó við spilliefnum og langflest við flokk- uðum pappír (dagblöðum, sléttum pappa og bylgjupappa), flöskum og skilagjaldskildum umbúðum (gosflöskum og áldósum), fern- um, timbri, fatnaði, húsbúnaði, garðaúrgangi og lyfjum. Á höfuð- borgarsvæðinu er víða er hægt að koma úrgangi frá sér í grenndargáma. Einn- ig í flestum sveitar- félögum. Þú getur kynnt þér hver tekur við hverju á Grænum síðum Nátt- úrunnar undir Endur- vinnsla eða leitað til sorpstöðvar þíns sveitar- félags. Meira um alla hluti í garðinum á: http://www.natturan.is/ husid/1261/ GÓÐ RÁÐ fyrir þig og umhverfið Náttúran.is – vefur með umhverfisvitund
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.