Réttur


Réttur - 01.06.1915, Page 5

Réttur - 01.06.1915, Page 5
11 flestir ráma eitthvað í það, þó ekki sjáist það mjög í framkvæmdinni sumstaðar á landinu. En það er ekki nema vel viðeigandi í fyrsta hefti þessa tímarits að skýra dálítið frá því, hvað það var, sem einkum vakti hana og hratt á stað. Hin frjálsa samkepni, sem spratt upp úr kenningum Adam Smiths, skotska þjóðmegunarfræðingsins, var grund- vallarhugsjónin og lyftistöng framfaranna á nítjándu öld- inni, og alt skipulag félagslífsins og atvinnuveganna hlaut að sníðast samkvæmt lögmáli hennar. Frjálsa samkepnin hafði líka aðrar afleiðingar, og þær mjög mikið til hins verra. Hún er nefnilega aðalorsökin til misskiftingar auðsins — að auðurinn hefir safnast að vissum mönnum og stéttum, en aðrar stéttir sokkið i örbyrgð. Samkepnin hefir reynst fölsk, og ýmiskonar einokun siglt undir hennar flaggi. Til sönnunar nægir að nefna aðeins — kaupmannahringina, olíuhringina og ýmiskonar »einokunar-samtök« — og sam- bönd ýmsra stétta til að halda við sérréttindum sínum. Lögin heimila það, og samkepnin helgar það. Gegn þessu verða hinar stéttirnar — bændur og verkamenn og fleiri — að beita sömu vopnum, það er samtökum; kaupfélögin t. d. eru ekkert annað en hringir, til að gæta hagsmuna og rétt- inda félagsmanna, til þess að vinna á móti hinum hringun- um og koma á jöfnuði. En annað lögmál liggur til grund- vallar fyrir félögunum. Samkepnin er strikuð út, en í stað hennar komin samhjálpin. Enda eru þessi lögmál jafn and- stæð og hvítt og svart. Samkepnin hampar þeim sterka, ryður þeim veika af stalli. Samhjálpin styður líka þann veika, þ. e. alla jafnt. — Nú dettur ykkur ef til vill í hug, að fyrst félögin, hringirnir berjast hvorir við annan, þá sé það samkepni. Nei; að vísu getur það litið svo út í bili. En markmið kaupfélaganna er ekki það að vernda aðeins sérréttindi vissra stétta, t. d. bænda, eða gera hinar rétt- lausar. Markmiðið er það að öll þjóðin geti verið einn hringur, eitt verzlunarfélag, og meira til, allar þjóðir, það er nógu hátt sett.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.