Réttur - 01.01.1947, Blaðsíða 4
4.
RÉTTUR
ráðherra. Með þeim lögum var afkoma fiskimanna
tryggð á þessari vertíð þrátt fyrir stjórnarskiptin. I tíð
fráfarandi stjórnar var fiskverðið hækkað um 45%.
Grunnkaup hækkaði mjög verulega í nær öllum at-
vinnugreinum víðsvegar um land. Kaup opinberra starfs-
manna stórhækkaði með nýjum launalögum.
Með þátttöku sinni í ríkisstjórninni tókst Sósíalista-
flokknum að koma í veg fyrir, að Bandaríkin fengju
herstöðvar hér á landi fyrir flota og flugher til 99 ára,
eins og farið var fram á. I öllum flokkum nema Sósíal-
istaflokknum var almennur vilji að verða við þessum
kröfum. Sósíalistaflokkurinn gerði það að fráfararatriði,
að gengið yrði að þeim. Og það dugði. Hann hafði þjóð-
ina nær óskipta að baki sér. Hinir flokkarnir hikuðu.
Þessi árangur er svo mikilsverður, að ef hamingjan
fylgir okkur, verður hans minnzt í fslandssögunni sem
hins mesta heillaatburðar þessarar aldar. Nú hefur
Bandaríkjunum að vísu verið afhent flugstöð, en ef
þjóðin sýnir nægilegan einhug og festu í næstu kosn-
ingum, eru þó möguleikar til að losna við hin amerísku
yfirráð yfir íslenzku landi eftir 6 ár.
En afturhaldinu blöskraði þessi þróun, allar mál-
pípur þess æptu í kór, að nú væri nóg komið. Og í bili
hefur því tekizt að stöðva framvinduna. Það er nauð-
synlegt að gera sér grein fyrir, h\>3rs vegna svo er
komið, hvaða öfl hafa verið að verki, frá því að ný-
sköpunarstefnan var tekin upp og allt til þessa dags að
tekizt hefur að stöðva hana.
EF SÓSlALISTAFLOKKURINN HEFÐI
EKKI UNNIÐ KOSNINGASIGUR 1942
Upphaf hinnar miklu stefnubreytingar um stjórn
landsins 1944 má rekja til ársins 1942, er Sósíalista-
flokkurinn vann sinn glæsilega kosningasigur. Þá urðu