Réttur - 01.01.1947, Blaðsíða 56
56
RÉTTUR
álit er sett fram, að eina leiðin til úrlausnar sé að flytja
til Bretlands hálfa milljón erlendra verkamanna. Málið
á að leysa með því að leyfa pólskum fasistum landvist
í Bretlandi eða með því að halda eftir þýzkum stríðs-
föngum. The Times segir í ritstjórnargrein 17. janúar:
„Rökin fyrir því að flytja inn á næstu árum 500.000
valda verkamenn eru mjög sterk, og það er leitt, að
hvorki ríkisstjórnin né verkalýðshreyfingin virðast hafa
gefið því máli verulegan gaum.“
En hvar er vinnuafl Bretlands? Hver er meginástæð-
an til vöntunarinnar? Allir kunna svarið við því. Síð-
ustu skýrslur, frá nóvember, sýna, að 1.510.000 manns
eru í hernum og 474.000 starfa að framleiðslu á vopn-
um og öðrum útbúnaði handa hernum: samanlagt eru
það tæpar tvær milljónir eða einn tíundi hluti af vinnu-
afli landsins og tala hermanna meira en þrisvar sinnum
hærri en hún var fyrir stríð: 480.000. En þegar spurt
er um það, hvers vegna afvopnunin gangi svo hægt og
hvers vegna sé þörf á slíkum feiknafjölda í hernum,
bendir Attlee í svari sínu ekki aðeins á þarfir landvarn-
anna eða skyldur í sambandi við Sameinuðu þjóðirnar,
heldur á heimsveldiskvaðir í nálægum og fjarlægum
Austurlöndum. Ef allt herlið væri flutt heim nema frá
fyrrverandi óvinalöndum og afvopnun framkvæmd, ætti
að vera hægt að leysa eina milljón manns úr herþjónustu.
Hvernig er hægt að ræða hið alvarlega vandamál um
vinnuaflið öðru vísi en í sambandi við spurninguna um
heimsveldið ?
ÖNGÞVEITIÐ I GJALDEYRISMÁLUM
Eða tökum hið alvarlega öngþveiti í núverandi f jár-
hagsástandi Bretlands — greiðsluhallann. Bretland get-
ur ekki eins og sakir standa látið tekjur sínar hrökkva
fyrir útgjöldum og verður að greiða mismuninn með