Réttur


Réttur - 01.01.1947, Síða 31

Réttur - 01.01.1947, Síða 31
RÉTTUR 31 haldið þar í algerri einangrun. En á miðjum vetri 1944 slapp hann undan og hélt yfir snævi krýnd Júra-f jöllin. Þá var það, að hjarta þessa sjötuga öldungs tók að ,,bila“. Hann hafði orðið að horfa upp á píslarvætti og aftöku Jacques Solomons, ungs vísindamanns, sem jafn- framt var einn af tengdasonum hans. Ein af dætrum hans hafði verið flutt til hinna seigdrepandi fangabúða í Þýzkalandi. Hann hafði verið vitni að því, er nazistar tóku fjölda franskra menntamanna af lífi. Þessar sí- felldu raunir höfðu smám saman lamað þennan sterka og heilbrigða manna. Þjóðfrelsisherirnir leystu Frakkland úr ánauð, jafnt þeir, sem báru enga einkennisbúninga og hinir, sem voru einkennisklæddir — jafnt þeir, er komu erlendis frá sem hinir, er spruttu upp innanlands. Og Langevin fylgdi þeim eftir. Og jafnskjótt og hann kom til Parísar, tókst hann aftur á hendur stjórn hins víðfræga háskóla í eðlis- og efnafræði þar í borg. Hann byrjaði aftur á stærð- fræðiútreikningum sínum og rannsóknum sínum á til- raunastofunni. Hann tók að sér formannsstörf í nefnd þeirri,' er bráðabirgðastjórnin skipaði. Og átti hún að endurskipuleggja uppeldis- og fræðslumál í Frakklandi og hagnýta sér þar hina þungbæru reynslu stríðsáranna. Langevin gekk að þessu starfi með áhuga og notaði nú upp síðustu leifarnar af líkamsþreki sínu. Heilsa hans var mjög illa farin, og minniháttar uppskurður varð nú til þess að hann fékk taugaáfall, og batnaði ekki af því. Hann dó nokkrum klukkustundum síðar. Langevin var lærisveinn Curiehjónanna og varð síðar náinn vinur þeirra og samstarfsmaður. Sjálfur var hann kennari Frederics Joliots, en hann kvæntist Irene Curie, — þau tengdu saman nöfn sín og héldu svo uppi frægð og starfi Curianna. Hver kynslóð eða ættliður tók við merkinu af öðrum í hópi þessara nátengdu vísinda- manna. Frederic-Joliot-Curie, sem er einn alfrægasti

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.