Réttur


Réttur - 01.01.1947, Page 33

Réttur - 01.01.1947, Page 33
RÉTTUR 33 stundum áður en hann skildi við. Ég átti þennan heiður því að þakka, að við vorum einlægir vinir frá fornu fari. Honum hafði verið gefið svefnlyf, og er hann vaknaði og frétti, að ég væri staddur í húsinu, vildi hann endi- lega fá að sjá mig. „Mér þykir vænt um þig. . . . Mér þykir vænt um þig“ — hvíslaði hann, um leið og hann tók í hönd mér. Ó, hve vinur minn var nú orðinn tærð- ur. Þessi smávægilega áreynsla þreytti hann. Hann lok- aði augunum aftur, en hélt fast um hönd mér, og slitr- ótt orð komu frá skrælnuðum vörunum. Hvaða orð voru það? Þau hin sömu, er verið höfðu uppistaðan í lífi hans og starfi. „Góðvild", hvíslaði hann, „góðvild. . . . Við þörfnumst góðvildar .... Og réttlætis .... Það er ekki. . . . nóg um réttlæti. . . . í heiminum." Orðin dóu út á vörum hans. En það, sem hann var að leitast við að segja, sýndi hvað honum var hugstæðast: „Já. . . . Og góðvild!. . . . Við þurfum .... réttlæti .... réttlæti og jafnframt góðvild. . . .“ Svo kallaði hann á konu sína veikri röddu: „Marnrna!" Þetta voru síðustu orðin, sem ég heyrði af vörum hans, — samt hélt. hann enn um hönd mér og þrýsti hana hlýlega. „Fyrir góðvild og réttlæti" — Hefur mikilmenni nokkru sinni látið eftir sig göfugri og tilhlýðilegri erfða- skrá? 3

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.