Réttur


Réttur - 01.01.1947, Síða 37

Réttur - 01.01.1947, Síða 37
RÉTTUR 37 a.rvöldin, báðar ritaðar af Skúla Thoroddsen. Slíkt hafði ekki vakað fyrir Þorvaldi prófasti, heldur eingöngu það, að koma upp vestfirzku málgagni, fréttablaði, sem rabbaði um daginn og veginn á ísafirði, flytti dánar- minningar og afmælisgreinar heldri borgara, skýrði frá hverjir greiddu hæst útsvör og þar fram eftir götun- um. Hitt var honum ekki að skapi, að blaðið tæki að finna að gerðum sjálfra stjórnarvaldanna, sízt af öllu með því harðfylgi og krafti, sem raun var á orðin. Nú var til þess ráðs gripið að gera prentarann, Ás- mund Torfason, að ábyrgðarmanni blaðsins. Stóð svo þá stund, er hann starfaði við prentunina, og tók þá við eftirmaður hans, Jóhannes prentari Vigfússon. Það var ekki fyrr en í októbermánuði 1892, að Skúli tók form- lega við ritstjórn Þjóðviljans, eftir að ofsóknarmálið gegn honum var hafið og hann sviptur embætti. En þótt Skúli Thoroddsen væri ekki skráður ritstjóri blaðsins fyrstu árin, mótaði hann stefnu þess alla og var raunverulegur ritstjóri frá upphafi. Hver var þá stefna blaðs þessa? Hver urðu áhrif þess og hvaða þýðingu hafði það fyrir þjóðlíf vort? — Þetta eru yfirgripsmeiri spurningar en svo, að þeim verði svar- að að gagni í stuttri grein, einkum síðari spurningin. — En á fáein atriði er þó hægt að benda. Fyrsta grein fyrsta tölublaðsins fjallar um dráttinn á veitingu prentsmiðjuleyfisins. Þar sem grein þessi er gott dæmi um rithátt Skúla og sýnir nokkuð afstöð- una gagnvart stjórnarvöldunum, birtist upphaf hennar hér. Skúli segir: „Heiðruðu landar! „Seint koma sælir og koma þó“, megum vér segja. Vér erum orðnir ofurlítið seinni á oss en ætlað var í fyrstu. En hvað um það? „Þjóðviljinn“ brýzt nú fram, er hann hefur unnið sigur á hinni fyrstu mótspyrnu. Vér vonum að hann verði og sigursæll síðar í sviptingunum.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.