Réttur


Réttur - 01.01.1947, Side 40

Réttur - 01.01.1947, Side 40
40 R ÉTTU R bæra stefnu í þjóðmálum það herrans ár 1886. Stjórn- arbótarmálið og efling atvinnuveganna var að vísu hvort- tveggja ofarlega á baugi meðal ýmissa forystumanna í þjóðmálum vorum, en hin ríka áherzla, sem lögð var í stefnuskránni á menntun alþýðu og aukinn pólitískan þroska hennar, er einkennandi fyrir stjórnmálaskoðanir Skúla Thoroddsen, og krafan um jafnrétti kvenna er hrein nýjung hjá íslenzkum stjórnmálamanni. Það yrði langt mál að rekja það, með hverjum hætti Skúli barðist fyrir stefnu sinni í Þjóðviljanum. Þó skal bent á nokkur atriði. Fyrsti liður. Stjórnarskrármálið. I Þjóðviljanum birt- ust ýtarlegar ritgerðir um stjórnarskrármálið. Er þar tekið fast í strenginn með sjálfstjórnarkröfum Islendinga, og haldið ötullega fram stefnu þeirri, sem mörkuð var í frumvarpi Benedikts Sveinssonar á Alþingi 1885. Betur og ákveðnar en nokkru sinni fyrr er sú skoðun túlkuð, að það sé þjóðin sjálf, hið starfandi fólk í landinu, sem eigi að ráða málum sínum, slíkt sé ótvíræður siðferði- legur réttur, en allt annað fásinna. — Ég get ekki stillt mig um að taka hér stuttan kafla úr upphafsritgerðinni um stjórnarskrána, en sú ritgerð birtist í öðru blaði Þjóðviljans, 15. nóvember 1886. ,,Vér skulum eigi fara út í það, hvernig þessi sæla stjórnarskrá er til orðin, þótt það atriði eitt ætti að vera nóg til þess að afla henni lítilla vinsælda hjá öll- um þeim, sem einhvers meta eigin sóma. Vér skulum halda oss til þess, sem vér höfum fyrir oss, til stjórnar- skrárinnar (frá 1874) eins og hún er á pappírnum, og eins og úr henni hefur togazt í framkvæmdinni. Og ofur vægilega skulum vér fara með hana, rétt eins og væri hún brothætt gler. Það er auðsætt að stjórnarlög hvers lands verða að vera sniðin eftir þjóðarþörfinni. Hvaða stjórnarfyrir- komulag er það þá, sem þjóð vor þarfnast, og þess

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.