Réttur


Réttur - 01.01.1947, Page 42

Réttur - 01.01.1947, Page 42
42 R É T T U R fastlega gegn henni, og átti mikinn þátt í því, að hún var kveðin niður. Allir þekkja afskipti Skúla af upp- kastinu fræga 1907—1908, og þarf ekki að rekja þau hér. Það mun óhætt að fullyrða, að Þjóðviljinn átti ekki lítinn þátt í hinum glæsilega kosningasigri andstæðinga uppkastsins 1908. Gott dæmi þess, hvernig Skúli notaði hvert tækifæri til að brýna menn í sjálfstæðismálinu, eru greinar hans út af harðærinu 1887. Hér er dálítið sýnishorn: „Það er ekki til neins að ætla sér að leyna því. Vér berum það flestir utan á oss, hvort sem er. Það er þjóð- arlöstur. Vér erum sára fjörlausir og framkvæmdadauf- ir, hugsunarlausir og hálfvolgir, allur fjöldinn. Ekki samt í einu; þar erum vér flestum þjóðum fremri. — Barlómurinn gengur fjöllum hærra. Sífellt heyrist talað um harðindi og vandræði, skepnufelli og hallærislán. „Bág er tíðin, kunningi.“ „Nú vill verða örðugt að lifa.“ „Bágir eru prísarnir hjá blessuðum kaupmanninum.“ „Og ekkert vill hann lána.“ Svona gengur dælan árið út og árið inn, oft og tíð- um, í hverri sveit og hverjum kofa, að kalla má. Og blöðin syngja oft í sama tón, enda þykir barning- urinn og harðindafréttir beztu blaðagreinarnar víða hvar. Því ber heldur eigi að neita, að árferðið er örðugt og verzlunin einkar óhagkvæm. En er þó ekki mál að létta ögn á þessu bágindatali? Ekki batnar tíðin, og eigi færist björg í búið við orðin ein. Er það ekki karlmannlegra, að bera sig hraustlega, þótt eitthvað andi á móti? Er það ekki nær, að hafa. orðin færri, en aðgerðirnar fleiri?

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.