Réttur


Réttur - 01.01.1947, Síða 64

Réttur - 01.01.1947, Síða 64
64 RÉTTU R að skapa lýðræðislegri samvinnutæki, sem gætu komið bæði í veg fyrir smá stríð og stór. Gagnsemi sáttmálans er fyrst og fremst komin undir sigri lýðræðisaflanna inn- an hvers lands um sig og sérstaklega í þeim löndum, sem hafa úrslitaþýðingu, stórveldunum. Það er í þessu sam- bandi, að þung skylda hvílir á oss í Bretlandi. Þáttur Bretlands getur ráðið miklu um það, hvernig Sameinuðu þjóðunum tekst að gegna hlutverki sínu. Baráttan fyrir heimsfriði er nátengd baráttunni gegn nýlenduskipulag- inu, þessari aðalundirrót nútímastyrjalda. Ef Sameinuðu þjóðirnar eiga að blessast, er nauðsynlegt, að meðilar þeirra séu frjálsar, jafnréttháar þjóðir. Það er vort að sjá um, að Bretland skipi sér í sveit með hinum lýðræð- issinnuðu framfaraöflum heimsins, er keppa að þessum markmiðum, sem stuðla að því að styrkja Sameinuðu þjóðirnar, en sundra þeim ekki. En til að það megi veTða, þurfum vér fyrst að gera hreint fyrir vorum eigin dyr- um. Vér verðum að binda endi á hernaðaríhlutun vora í öðrum löndum og undirokun þjóða heimsveldisins og sömuleiðis fella niður vopnasamkomulagið við banda- ríska afturhaldið. ER HEIMSVELDIÐ RAUNVERULEIKI ? Sá skilningur er nú útbreiddur og grípur æ meir um sig meðal lýðræðissinna hér á landi, að nauðsyn beri til að hverfa frá hinum gamla heimsveldisgrundvelli og við- urkenna þjóðfrelsisrétt þeirra þjóða, sem hingað til hafa \'3rið undirokaðar í heimsveldinu. Síminnkandi meirihluti þjóðarinnar er haldinn hinum gamla þjóðrembingi, sem nú er litinn óhýru auga af stjórnarvöldunum. Rétturinn til þjóðfrelsis er nú næsta almennt viðurkenndur sem grundvallarregla, að minnsta kosti þegar í hlut eiga þjóð- ir, sem eru svo langt á veg komnar að því er snertir stjórnmálaþroska, skipulagningu og þjóðfrelsisbaráttu,

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.