Réttur


Réttur - 01.01.1947, Page 67

Réttur - 01.01.1947, Page 67
R ÉTTUH 67 fresta frelsisgjöfinni. Sú ranga hugmynd, að frelsið hafi þegar verið veitt og eina hindrunin stafi frá nýlenduþjóð- unum sjálfum, er nú að verða aðal fyrirstaðan fyrir raunverulegu frelsi, því að hún gerir lýðræðisöflin í Bret- landi andvaralaus og styður þá skoðun, að ekkert þurfi frekar að gera af vorri hálfu einmitt á þeim tíma, þegar ástandið er raunverulega alvarlegast og útheimtir, að tafarlaust sé hafizt handa af vorri hálfu. Það er því mik- ilvægt fyrir alla ákveðna andstæðinga heimsveldisstefn- unnar og unnendur þjóðfrelsis að sjá í gegnum blekking- arnar og dæma rétt um hið raunverulega ástand. NÝJAR AÐFERÐIR HEIMSVALDA- STEFNUNNAR Það er rétt, að mikilvægar breytingar eiga sér stað. En 1 hvaða átt? Það er rétt, að gagnvart nýlenduupp- reisnunum hvarvetna um heim, sem eru of víðtækar til þess að auðvelt sé að bæla þær niður með valdinu einu saman, er heimsveldispólitíkin að reyna ný stjórnarfars- leg form og leita að nýjum leiðum til pólitískra lausna á vandamálum. En þessar nýju leiðir eru engan veginn í því fólgnar að kalla setulið vafningalaust heim og af- henda íbúunum völdin í sínar hendur. Heldur eru þær fólgnar í flóknum stjórnarfarslegum tilslökunum jafn framt því, að hagnýttir eru flokkadrættir innanlands, reynt að sundra þjóðfrelsis'hreyfingum og vinna for- réttindastéttirnar til samstarfs á grundvelli samn- inga, er tryggja mikilvæga heimsveldishagsmuni. Sú að- ferð að bjóða yfirskynssjálfstæði er í rauninni ekki eins ný og stundum er haldið fram. Hún er þegar kunn af dæminu um Egyptaland fyrir aldarfjórðungi. Síðan var hún endurtekin í Irak og enn nýlegar í Transjórdaníu. Bandaríkin hafa notað hina sömu aðferð á Filippseyjum. Ekkert þessara ríkja er raunverulega sjálfstætt. I þeim

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.