Réttur


Réttur - 01.01.1947, Page 70

Réttur - 01.01.1947, Page 70
70 RÉTTU R verkalýðs- bænda- og stúdenta-félaga. Tylliástæða þess- arar atlögu er sú, að flokkurinn hafi fyrir sex mánuðum birt greinar með tilvitnunum í opinber skjöl, sem skýra frá hernaðarráðstöfunum til að bæla niður almenna upp- reisn í Indlandi, sem búizt var við, að brjótast mundi út, ef samningaumleitanir brezku ráðherranefndarinnar færu út um þúfur. Þessi tylliástæða gefur enga skýringu á því, hvers vegna atlagan var hafin einmitt á þessum tíma. Skjöl þau, sem um ræðir, hafa verið birt í mörgum ind- verskum blöðum. Fréttaritari Times fullyrðir hreinskiln- islega, að hinnar raunverulegu ástæðu sé að leita í hinni pólitísku þróun, sem orðið hefur, síðan bráðabirgða- stjórnin var mynduð í september, og hinni vaxandi bar- áttu fjöldans undir forystu Kommúnistaflokksins, „sem náði hámarki sínu með hinni alvarlegu ólgu meðal millu- verkamanna í Cawnpore í síðastliðinni viku. Það varð sýnilega að taka þurfti í taumana, ef stöðva átti upp- lausnina“ (Times 15. jan. 1947). Það er athyglisvert, að indverskir ráðherrar hafa vlsað á bug allri ábyrgð á þessum lögregluaðgerðum. Hver sem er hlutdeild ind- versku ráðherranna, sem í rauninni eru ekki annað en valdalausir leppar brezks valds, er sýnilegt, að hér er um að ræða beina árás af hendi heimsveldissinnaðra yfir- valda gegn indversku verkalýðshreyfingunni, forystuliði indverskrar frelsisbaráttu og þeim flokki, sem ákveðn- ast berst gegn allri pólitískri skiptingu eftir héruðum og fyrir einingu indverskrar alþýðu. Það er óhæfa, að slík verk skuli vera unnin í nafni verkalýðsstéttar þessa lands. Vér minnumst dómanna í Cawnpore gegn Dange og öðrum foringjum indverska Kommúnistaflokksins í tíð fyrstu Verkamannaflokksstjórnarinnar. Vér minn- umst málaferlanna í Meerut gegn indverska kommún- ismanum og verkalýðshreyfingunni í tíð annarrar Verka- mannaflokksstjórnarinnar. Vér kærum oss ekki um að sjá þá atburði endurtaka sig nú.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.